Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 406  —  167. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
     2.      Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
     3.      Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?


    Ekki hafa verið settar sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Reynt er eftir fremsta megni að verða við viðtalsbeiðnum fjölmiðla en það er ekki alltaf mögulegt vegna tímaskorts og annarra verkefna.
    Ekki er hægt að svara nákvæmlega um fjölda viðtala sem ráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu en stór hluti þeirra fer fram eftir ríkisstjórnarfundi, blaðamannafundi og kynningar þar sem ráðherra veitir fjölmiðlum jafnan viðtöl ef aðstæður leyfa. Alls hafa verið haldnir um 150 ríkisstjórnarfundir það sem af er kjörtímabilinu.
    Á þessu kjörtímabili hefur ráðherra veitt ótal fréttaviðtöl við helstu fjölmiðla landsins og verið gestur í umræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Má þar nefna viðtöl við fréttastofu RÚV, Spegilinn, fréttastofu Sýnar (áður Stöðvar 2) og Vísi, Morgunblaðið, Vikuna með Gísla Marteini, Samstöðina og Eyjuna. Ráðherra hefur einnig verið gestur í umræðuþáttum, m.a. Kastljósi, Silfrinu, Bítinu, Morgunútvarpinu o.fl. Einnig hefur þurft að hafna viðtalsbeiðnum frá einhverjum fyrrgreindra miðla einhvern tímann á kjörtímabilinu vegna tímaskorts.
    Á kjörtímabilinu hafa einnig borist fjölmargar viðtalsbeiðnir frá erlendum fjölmiðlum og líkt og með íslenska miðla er reynt að verða við viðtalsbeiðnum erlendra miðla ef svigrúm er í dagskrá ráðherra.
    Á kjörtímabilinu hefur ráðherra m.a. veitt viðtöl eða sent svör við skriflegum fyrirspurnum til eftirfarandi miðla: Politico, L'Obs, Prospect, Nouvel Obs, Washington Post, CNN, Reuters og Guardian,
    Viðtalsbeiðnum frá eftirfarandi erlendum fjölmiðlum hefur verið hafnað á kjörtímabilinu: Forbes, CNBC, Algemeen Dagblad, Foreign Policy Magazine, CBC/Radio Canada og New York Times.