Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 407  —  77. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2026 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Félagi löggiltra endurskoðenda, GK endurskoðun ehf., Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og KPMG.
    Nefndinni bárust ellefu umsagnir auk minnisblaðs frá atvinnuvegaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Málið var áður lagt fram á 157. löggjafarþingi ( 556. mál) og hafði nefndin einnig hliðsjón af umsögnum og minnisblaði sem bárust þá.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, í því skyni að innleiða í íslenskan rétt tvær Evróputilskipanir sem báðar gera breytingar á ársreikningatilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB.
    Annars vegar er um að ræða framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775 frá 17. október 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB að því er varðar breytingar á stærðarviðmiðunum fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður.
    Hins vegar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja og útibúa.
    Í meginatriðum felur þessi innleiðing í sér þrenns konar breytingar. Í fyrsta lagi breytingu á stærðarviðmiðum félaga í lögum um ársreikninga. Í öðru lagi felur hún í sér skyldu tiltekinna stórra fjölþjóðlegra samstæðna og útibúa þeirra til að birta opinberlega skýrslu með upplýsingum um tekjuskatt. Í þriðja lagi er um að ræða breytingar er lúta að skilum ársreikninga til opinberrar birtingar þar sem lagt er til að stærri og kerfislega mikilvæg félög skili ársreikningum fyrr á árinu en minni félög. Auk þess er lögð til hækkun á endurskoðunarmörkum í lögunum um 25% sökum verulegrar verðbólgu frá síðustu endurskoðun markanna.

Stærðarviðmið örfélaga (1. gr.).
    Með a-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að viðmiðunarmörk fyrir örfélög, lítil, meðalstór og stór félög í 11. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga verði hækkuð til samræmis við hækkun stærðarmarka í tilskipun Evrópusambandsins 2023/2775. Með því er lagt til að viðmiðunarmörk heildareigna og hreinnar veltu hækki um 25% fyrir lítil, meðalstór og stór félög og litlar, meðalstórar og stórar samstæður. Þá er lagt til að viðmiðunarmörk heildareigna og hreinnar veltu verði hækkuð verulega fyrir örfélög, eða um 150%. Ársreikningatilskipunin veitir aðildarríkjum svigrúm innan ákveðins ramma til að taka tillit til sérstakra skilyrða og þarfa eigin markaða við ákvörðun um hvort eða hvernig skuli staðið að sérstöku fyrirkomulagi varðandi örfélög. Við innleiðingu ársreikningatilskipunarinnar árið 2016 var ákveðið að fara ekki upp í hæstu leyfilegu mörkin. Þá var komið á valkvæðu úrræði fyrir örfélög sem heitir „hnappurinn“. Það veitir örfélögum heimild til að skila „hnappsreikningi“ sem er einföld birting ársreiknings með takmarkaðri fjárhagsupplýsingum en hefðbundnir ársreikningar og undanþegin skoðun þriðja aðila.
    Í umsögn Skattsins var fjallað um að þegar viðmiðunarmörkin voru fyrst ákveðin lá fyrir mat á stærðum evrópskra félaga og samkvæmt því var talið að 1% félaga myndu flokkast sem stór félög, 2% félaga sem meðalstór, 97% félaga sem lítil félög og 75% félaga sem örfélög, en öll örfélög eru jafnframt lítil félög. Þá kom fram að miðað við greiningu á ársreikningum félaga ársins 2024 og 2023 flokkuðust 80,9% félaga árið 2023 sem örfélög og 81,6% félaga árið 2024. Miðað við breytingar samkvæmt frumvarpinu á viðmiðunarmörkum örfélaga mætti gera ráð fyrir að um það bil 87,9% félaga árið 2023 hefðu flokkast sem örfélög og árið 2024 hefðu það verið 89,1% félaga.
    Með hliðsjón af framangreindri greiningu á hlutfalli örfélaga telur meiri hlutinn ekki tilefni til að leggja til breytingu þess efnis að nýta viðmiðunarmörk örfélaga til fulls. Hefur meiri hlutinn hliðsjón af því að hækkun viðmiðunarmarka örfélaga samkvæmt frumvarpinu muni að óbreyttu fela í sér allnokkra fjölgun félaga í hópi örfélaga.

Endurskoðunarmörk félaga (a-liður 5. gr.).
    Í a-lið 5. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 1. málsl. 1. mgr. 98. gr. laga um ársreikninga þess efnis að í stað þess að kveðið verði á um „tvö næstliðin reikningsár“ segi „viðkomandi og síðastliðið reikningsár“. Sama orðalag má finna í öðrum ákvæðum frumvarpsins til samræmis. Í skýringum í greinargerð við a-lið 5. gr. er fjallað um að misskilnings hafi gætt hjá félögum um hvernig túlka eigi orðalagið „tvö næstliðin reikningsár“. Orðalaginu er því breytt í „viðkomandi og síðastliðið reikningsár“ til einföldunar og í samræmi við önnur ákvæði laganna. Þá er orðalagið til samræmis við ársreikningatilskipunina, en þar er kveðið á um þessa tveggja ára reglu til að tryggja meðalhóf og stöðugleika. Hún túlkast sem svo að félag færist um stærðarflokk þegar það fer yfir a.m.k. tvö af þremur viðmiðunarmörkum stærðarflokkanna sem er að finna í 11. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári. Orðið „viðkomandi“ er því árið N, þ.e. það reikningsár sem reikningsskilin sem verið er að gera taka til, og orðin „síðastliðið“ er þá árið á undan, þ.e. N-1. Þá er ítrekað að hér sé eingöngu um orðalagsbreytingu að ræða og efnislega hefur framangreind regla gilt hér á landi frá setningu laga um hlutafélög, nr. 32/1978.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram áhyggjur af því að orðalag þetta væri óskýrt og gæti leitt til mismunandi túlkunar í framkvæmd. Bent var á að slíkur óskýrleiki gæti haft áhrif á það hvenær stærðarflokkun félaga breyttist og hvenær endurskoðunarskylda tæki gildi. Í umsögnum var nefnt sem dæmi að færsla félaga milli stærðarflokka hefði áhrif á hvort félag flokkaðist sem eining tengd almannahagsmunum, sbr. e-i-lið 3. tölul. 2. gr. laga um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.
    Í minnisblaði atvinnuvegaráðuneytisins, dags. 14. október sl., ítrekar ráðuneytið að ekki sé um að ræða efnislega breytingu heldur sé verið að samræma orðalag innan laganna. Bent er á að 11. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga var lögfestur með lögum nr. 73/2016 sem innleiddu tilskipun Evrópusambandsins 2013/34/ESB. Í 3. gr. tilskipunarinnar er fjallað um flokkun fyrirtækja. Í 10. mgr. ákvæðisins, sem samsvarar lokamálsgrein 11. tölul. 2. gr. laga um ársreikninga, segir að þegar fyrirtæki fer við dagsetningu efnahagsreiknings yfir eða hættir að fara yfir tvö af þeim þremur viðmiðunarmörkum sem tilgreind eru í 1.–7. gr. hafi það ekki áhrif á að frávikunum, sem kveðið er á um í þessari tilskipun, sé beitt nema það gerist tvö fjárhagsár í röð. Þá vekur ráðuneytið athygli á því að í nýlegri ákvörðun endurskoðendaráðs reyndi á þessa túlkun, þ.e. hvenær félag yrði eining tengd almannahagsmunum. Með vísan til lögskýringargagna, Evrópugerða og framkvæmdar í Evrópu var niðurstaðan í samræmi við framangreint, nánar tiltekið að félag teldist stórt félag á öðru ári.
    Meiri hlutinn fellst á það með ráðuneytinu að með þessu sé ljóst að ákvæði íslenskra laga og tilskipunarinnar séu sambærileg og túlkun þeirra leiði til sömu niðurstöðu. Félag færist milli stærðarflokka ef það fer yfir eða undir tvö af þremur viðmiðunarmörkum í tvö ár samfellt, þ.e. á viðkomandi reikningsári og árinu þar á undan.

Félög með heildareignir yfir 1,5 ma.kr. (e-liður 5. gr.).
    Með e-lið 5. gr. frumvarpsins er lagt til að ný málsgrein bætist við 98. gr. laga um ársreikninga. Í 1. mgr. 98. gr. er kveðið á um að félögum sem eru undir tveimur af þremur stærðarmörkum í 1.–3. tölul. málsgreinarinnar sé ekki skylt að kjósa sér endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki. Með breytingunni í e-lið 5. gr. frumvarpsins er lagt til að undanþáguheimildin skv. 1. mgr. 98. gr. taki ekki til félaga ef heildareignir fari yfir a.m.k. 1.500.000.000 kr. á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram athugasemdir þess efnis að ákvæði þetta væri of íþyngjandi og þá sérstaklega fyrir eignarhalds- og fjárfestingarfélög. Fjárhæð heildareigna segi takmarkað um eðli, umfang og áhættu starfsemi. Þá kveði ársreikningatilskipunin ekki á um eignaviðmið.
    Í minnisblaði ráðuneytisins frá síðasta löggjafarþingi, dags. 8. maí sl., kom fram að markmið ákvæðisins væri að tryggja að félög með verulegar eignir féllu undir kröfu um endurskoðun, þar sem slík félög geta haft umtalsverð áhrif þrátt fyrir lága veltu. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 14. október sl., mátti finna samanburð á endurskoðunarmörkum á Norðurlöndunum. Viðmiðunarmörk fyrir endurskoðun á Íslandi sem lögð eru til í frumvarpinu eru hærri en annars staðar á Norðurlöndunum. Þá undirstrikaði ráðuneytið að með ákvæðinu væri tryggt að félög með verulegar eignir féllu ekki utan þess eftirlits sem endurskoðun endurskoðenda fæli í sér. Jafnframt væri tryggt eftirlitið sem fram fer hjá annars vegar endurskoðendaráði sem hefur eftirlit með endurskoðendum samkvæmt lögum um endurskoðendur og endurskoðun og hins vegar ársreikningaskrá. Ráðuneytið tiltekur einnig að ársreikningar félaga sem falla undir endurskoðunarskyldu hafi að geyma ítarlegri upplýsingar um reikningsskil viðkomandi félaga. Félag sem á umtalsverðar eignir, þ.e. heildareignir upp á a.m.k. 1,5 milljarða kr., þurfi að fá endurskoðanda til þess að endurskoða ársreikninginn sinn en ekki einungis bókara sem skili síðan einföldum upplýsingum um reikningsskil inn til Skattsins með hnappinum. Það úrræði sé einungis ætlað fyrir allra minnstu félögin, þ.e. örfélög.
    Meiri hlutinn fellst á markmið e-liðar 5. gr. frumvarpsins. Með ákvæðinu er gagnsæi tryggt og gætt að hagsmunum notenda reikningsskilanna. Þá bendir meiri hlutinn á að sambærileg ákvæði um heildareignir megi finna í dönskum og norskum lögum.

Leiðrétting á vísun til málsgreina í skýringum við 3. gr. í greinargerð.
    Í skýringum við 3. gr. frumvarpsins í greinargerð er vísun til 9. og 10. mgr. 3. gr. og er þar kveðið á um skýringu við endanlegt móðurfélag fjölþjóðlegrar samstæðu. Meiri hlutinn vill leiðrétta þessa vísun, hugtök þessi er að finna í a-lið 1. mgr. 3. gr. frumvarpsins.

Breytingartillögur.
    Í 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins kemur m.a. fram að opinber skýrsla með tekjuskattsupplýsingum skv. 1. mgr. skuli innihalda upplýsingar um alla starfsemi félags skv. a- eða b-lið 1. mgr. Meiri hlutinn leggur til að orðið „alla“ falli brott. Orðalag ákvæðisins á sér stoð í 48. gr. c tilskipunar 2013/34/ESB eins og henni var breytt með tilskipun (ESB) 2021/2101. Í ákvæði tilskipunarinnar er nánar afmarkað hvaða upplýsingar skýrslan skal innihalda. Með brottfalli orðsins „alla“ er tryggt að upplýsingaskyldan er ekki víðtækari en mælt er fyrir um í tilskipuninni.
    Þá gerir meiri hlutinn minni háttar orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 3. gr.
                  a.      Í stað orðanna „varðandi félögin“ í d-lið 1. mgr. komi: félaga.
                  b.      Á eftir orðunum „hrein velta“ í 2. mgr. komi: félags.
                  c.      Orðið „alla“ í 3. mgr. falli brott.
     2.      Í stað orðsins „söluhagnaði“ í d-lið 5. gr. komi: söluhagnað.
     3.      Við 6. gr.
                  a.      Inngangsmálsgrein orðist svo:
                        Í stað 1. og 2. mgr. 109. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi.
                  b.      Á eftir orðunum „Á sama hátt“ í b-lið komi: og um getur í 1. mgr.
     4.      Á undan orðunum „tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775“ í 2. mgr. 9. gr. komi: framseldri.

    Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. nóvember 2026.

Arna Lára Jónsdóttir, form., frsm. Anna María Jónsdóttir. Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Ragna Sigurðardóttir.