Ferill 168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 409  —  168. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einardóttur um meðferð viðtalsbeiðna.


     1.      Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
    Viðtalsbeiðnir eru tvenns konar:
    Frá veitendum heilbrigðisþjónustu, fagfólki, félagasamtökum, einstaklingum o.fl. Um þær gilda vinnureglur sem þó eru ekki skráðar. Óskað er minnisblaðs frá viðtalsbeiðanda þar sem fram kemur erindi og markmið fundar. Viðtalsbeiðnir eru svo metnar af ráðherra, aðstoðarmönnum eða öðrum til þess bærum aðilum eftir því sem við á og viðtal samþykkt eða því hafnað og þá með rökstuðningi eða vísan annað eftir því sem við á.
    Frá fjölmiðlum. Hér liggur einnig fyrir óskráð vinnuregla en ráðherra hefur þá meginreglu að verða við beiðnum fjölmiðla um viðtöl og leggur sig fram um að bregðast við slíkum óskum. Ef ráðherra er ekki unnt að veita viðtal þegar eftir því er óskað er ýmist reynt að finna annan tíma sem hentar, eða óskað eftir að viðtalsbeiðandi sendi skriflegar spurningar sem þá er svarað eins skjótt og auðið er. Í sumum tilvikum lúta beiðnir um viðtöl að flóknum viðfangsefnum sem kalla á töluverða vinnu, aðkomu sérfræðinga ráðuneytisins og upplýsingaöflunar frá stofnunum ráðuneytisins. Þegar svo háttar fer oftast betur á að svara spurningum skriflega en með viðtali og fjölmiðlar sýna því jafnan fullan skilning.

     2.      Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
     3.      Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?

    Beiðnir fjölmiðla um viðtöl við ráðherra ber að með ýmsu móti. Oft eru fjölmiðlar viðstaddir ráðstefnur og fundi sem ráðherra sækir og falast eftir og fá viðtöl við ráðherra á staðnum, án þess að það hafi verið ákveðið með fyrirvara. Sama máli gegnir um viðtöl við fjölmiðla að loknum ríkisstjórnarfundum sem falast er eftir á staðnum. Fjölmiðlar óska einnig eftir viðtölum eftir öðrum óformlegum leiðum, svo sem með símtölum eða SMS-skilaboðum til aðstoðarmanna ráðherra, til upplýsingafulltrúa eða til ráðherrans sjálfs. Af þessu leiðir að ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort eða hve oft ráðherra hefur hafnað viðtalsbeiðni eða frá hvaða miðlum en það er afar sjaldgæft. Ráðherra man eftir að hafa hafnað einu viðtali við hlaðvarp þar sem umræðuefnið varðaði mál á málefnasviði annars ráðherra.
    Af þeim ástæðum sem að framan greinir liggur ekki fyrir hve oft ráðherra hefur samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili, frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum.