Ferill 333. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 424  —  333. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um meðlagsgreiðslur.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hver var árlegur fjöldi meðlagsgreiðenda þar sem ríkið hafði milligöngu um innheimtu meðlags í gegnum sýslumann eða Tryggingastofnun ríkisins á árunum 2020 til og með 2025? Svar óskast sundurliðað eftir upprunalandi og kyni meðlagsgreiðanda.
     2.      Hver var árlegur fjöldi meðlagsgreiðenda sem um getur í 1. tölul. sem fékk greiddan barnalífeyri til greiðslu meðlagsins á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir upprunalandi og kyni meðlagsgreiðanda.
     3.      Hver var árlegur fjöldi meðlagsgreiðenda sem var í vanskilum í lok hvers árs á fyrrgreindu tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir upprunalandi og kyni skuldara.


Skriflegt svar óskast.