Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 425 — 334. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra um stuðningsúrræði Menntasjóðs námsmanna.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hvaða styrki, lán, ívilnanir og undanþágur hefur verið hægt að sækja um hjá Menntasjóði námsmanna frá setningu laga nr. 60/2020, um Menntasjóð námsmanna?
2. Hversu margir fengu styrk, lán, ívilnun eða undanþágu úr hverjum flokki á hverju ári árin 2020–2026? Svar óskast sundurliðað eftir upprunalandi og kyni þeirra sem fengu úthlutun eða samþykki.
3. Hver var heildarfjárhæð hvers styrkja- og lánaflokks á hverju ári árin 2020–2026? Svar óskast sundurliðað eftir upprunalandi og kyni þeirra sem fengu styrk eða lán.
Skriflegt svar óskast.