Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 428  —  337. mál.


                             

Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um biðlista barna eftir þjónustu.

Frá Jens Garðari Helgasyni.


     1.      Er miðlægur biðlisti barna eftir heilbrigðisþjónustu, svo sem varðandi heyrn og tal, geðheilsu, meðferðarúrræði, fóstur o.fl., kominn að fullu í notkun? Ef svo er, hversu mörg börn eru skráð á hann og hefur þjónustuþörf hvers barns verið metin?
     2.      Hversu mörg börn fóru ekki á miðlægan lista af eftirfarandi ástæðum:
                  a.      þau höfðu fengið þjónustu,
                  b.      staðfesting á greiningu barst ekki,
                  c.      af öðrum ástæðum?
     3.      Hefur ráðherra sett sér markmið um fjölda barna á biðlista í lok árs 2027? Ef svo er, hvert er markmiðið?
     4.      Hversu mörgum nýjum stöðugildum var fyrirhugað að bæta við hjá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og hversu mörg hafa verið mönnuð?
     5.      Hvert verður formlegt hlutverk nýrrar Heyrnar- og talmeinastöðvar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins? Hvaða börn fá þjónustu þar og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá þjónustuna?
     6.      Hver er staða samninga ríkisins við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga og hvenær er gert ráð fyrir að nýr samningur taki gildi? Hversu mikið fjármagn fylgir nýjum samningi og hversu marga nýja meðferðartíma tryggir hann?
     7.      Í hverju felst sú styrking Geðheilsumiðstöðvar barna sem þegar hefur komið til framkvæmda og greint hefur verið frá?
     8.      Hver ber ábyrgð á að tryggja barni þjónustu sem hefur fengið synjun frá sveitarfélagi, heilsugæslu, sjálfstætt starfandi talmeinafræðingi, Geðheilsumiðstöð barna eða Ráðgjafar- og greiningarstöð?
     9.      Telur ráðherra bið barns eftir nauðsynlegri þjónustu vera brot á rétti barna til heilbrigðisþjónustu, brot á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins eða á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks?


Skriflegt svar óskast.