Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 429  —  170. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.


     1.      Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
    Alla jafna veitir félags- og húsnæðismálaráðherra fjölmiðlum viðtöl eins og kostur er þegar eftir því er leitað. Beiðnirnar berast oftast eftir óformlegum leiðum, til aðstoðarmanns ráðherra, sem kemur þeim áfram til ráðherra.

     2.      Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Algengast er að fjölmiðlar óski eftir viðtali við ráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi og þar veitir ráðherra þeim jafnan viðtal. Öðru hverju berast beiðnir jafnframt á ráðstefnum eða fundum sem ráðherra sækir og þar sem fjölmiðlar eru viðstaddir. Ef dagskrá ráðherra leyfir ekki viðtal er venjulega reynt að verða við viðtalsbeiðninni síðar.
    Sem fyrr segir berast beiðnir um fjölmiðlaviðtöl oftast eftir óformlegum leiðum. Einungis fannst í málaskrá ráðuneytisins ein beiðni þar sem ráðherra varð ekki við formlegri beiðni um viðtal sem send var skriflega og var það beiðni frá bandarísku hlaðvarpi um húsnæðismál sem var hafnað vegna lítils fyrirvara.

     3.      Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Ekki er hægt að svara nákvæmlega um fjölda viðtala sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu en stór hluti þeirra fer sem fyrr segir fram eftir ríkisstjórnarfundi. Um 60 slíkir fundir hafa verið haldnir síðan ráðherra kom inn í ríkisstjórn. Hann hefur enn fremur mætt í ótal umræðuþætti bæði í útvarpi og sjónvarpi.