Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 431 — 339. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um kostnað vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd árin 2016–2025.
Flm.: Árni Helgason, Jón Gunnarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Jón Pétur Zimsen, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Rósa Guðbjartsdóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna ítarlega greiningu á opinberum kostnaði árin 2016–2025 vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd og þjónustu sem tengist þeim, bæði beinum kostnaði við rekstur stofnana og við málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og óbeinum og afleiddum kostnaði, svo sem vegna heilbrigðisþjónustu, sálfræðiþjónustu, tannlæknaþjónustu, skólagöngu barna, svo og kostnaði sveitarfélaga við veitta þjónustu og hvers konar öðrum kostnaði sem af hefur hlotist.
Kynna skuli niðurstöður, sundurgreindar eftir árum og kostnaðarliðum, eigi síðar en sex mánuðum eftir samþykkt tillögu þessarar.
Greinargerð.
Aukinn fjöldi umsókna hefur í för með sér aukinn kostnað. Jafn mikill fjöldi umsókna og raun ber vitni hefur í för með sér ákveðinn þrýsting á ýmiss konar opinbera þjónustu og úrræði. Mikilvægt er að greina áhrif þessarar þróunar og tryggja að allir angar hennar séu skoðaðir. Þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd kemur til Íslands er umsókn viðkomandi einstaklings tekin til skoðunar og meðan á málsmeðferðartíma stendur á umsækjandi rétt á ýmiss konar þjónustu. Meðal þess er bein þjónusta við afgreiðslu mála, svo sem hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, auk annarra stofnana sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd beina þjónustu. Jafnframt má tiltaka þann kostnað sem fellur til við málsmeðferð, svo sem lögfræði- og túlkaþjónustu, kostnað við brottvísanir og ferðir frá landinu, einnig annan kostnað sem tengist beint dvöl umsækjanda á meðan umsókn hans er í vinnslu, svo sem húsnæðiskostnað og kostnað við uppihald.
Þessu til viðbótar sækja umsækjendur sér ýmiss konar þjónustu á meðan þeir dveljast hér á landi. Þetta getur verið heilbrigðis-, tannlækna- og geðheilbrigðisþjónusta. Þegar börn eru með í för er þeim tryggt pláss í leik- eða grunnskóla. Ýmiss konar önnur þjónusta fellur til, t.d. hjá starfsmönnum sveitarfélaga við umsýslu og önnur verkefni. Ljóst er að með auknum fjölda umsókna hefur þessi óbeini kostnaður aukist verulega.
Ekki hefur svo að kunnugt sé verið ráðist í að greina kostnaðinn heildstætt þótt umræða um þetta hafi reglulega komið upp. Mikilvægt er því að ráðist verði í þá vinnu að taka þessar upplýsingar saman til að unnt sé að fá fyllri mynd af kostnaði við málaflokkinn.