Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 433  —  341. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um sektir flutningsaðila vegna farþega án fullnægjandi ferðaskilríkja.

Frá Jens Garðari Helgasyni.


     1.      Hversu oft hefur stjórnanda skips eða loftfars verið gerð sekt fyrir að flytja farþega til landsins án fullnægjandi ferðaskilríkja eða vegabréfsáritunar, sbr. 1. mgr. 17. gr. og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 136/2022, um landamæri, allt frá gildistöku laganna? Svar óskast sundurliðað eftir árum og flutningsaðilum.
     2.      Hver er fjárhæð sektar samkvæmt reglugerð, sbr. j-lið 1. mgr. 23. gr. fyrrgreindra laga, hvenær var hún síðast endurskoðuð og hversu stór hluti álagðra sekta hefur verið innheimtur?
     3.      Hversu margir farþegar komu til landsins á áðurnefndu tímabili án fullnægjandi ferðaskilríkja eða vegabréfsáritunar? Svar óskast sundurliðað eftir árum, flutningsaðilum og brottfararstað.
     4.      Í hversu mörgum þessara tilvika var sekt ekki beitt og hvaða ástæður lágu þar að baki?
     5.      Hver var kostnaður ríkisins vegna þessara farþega, þar á meðal við frávísun og brottflutning, og hversu stór hluti hans var endurkrafinn hjá flutningsaðilum?
     6.      Telur ráðherra að refsisekt á stjórnanda skips eða loftfars tryggi fullnægjandi varnaðaráhrif eða kemur til álita að taka upp stjórnvaldssektir á flutningsaðila líkt og tíðkast í öðrum Schengen-ríkjum?


Skriflegt svar óskast.