Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 434  —  342. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um stjórnarhætti og fundi með stjórnum ríkisfyrirtækja.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Eru til skriflegar verklagsreglur um góða stjórnarhætti í ríkisfyrirtækjunum Landsvirkjun, Landsneti hf., Rarik ohf., Íslandspósti ohf. og Isavia ohf.? Ef svo er, hverjar eru þær hjá hverju fyrirtæki fyrir sig? Ef svo er ekki, við hvaða regluverk styðjast stjórnir ríkisfyrirtækja til að tryggja sjálfstæði sitt og góða stjórnarhætti?
     2.      Hvað fundaði ráðherra oft með stjórnum fyrrnefndra fyrirtækja á árunum 2021–2026, sundurliðað eftir ári, annars vegar með stjórnarformanni einum og hins vegar með stjórnum ásamt stjórnarformanni?
     3.      Hvað funduðu starfsmenn ráðuneytisins oft með stjórnum fyrrnefndra fyrirtækja á árunum 2021–2026, sundurliðað eftir ári, annars vegar með stjórnarformanni einum og hins vegar með stjórnum ásamt stjórnarformanni?


Skriflegt svar óskast.