Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 435  —  343. mál.




Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar


um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Sinfóníuhljómsveit Íslands.


    Með bréfi, dags. 14. september 2026, sendi forseti Alþingis eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Sinfóníuhljómsveit Íslands til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er gerð grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og ábendingum sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2023. Nefndin fjallaði um þá skýrslu á 154. löggjafarþingi og veitti álit um hana ( þskj. 616, 531. mál).
    Nefndin hefur fjallað um eftirfylgniskýrsluna á fundum sínum og fengið til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Niðurstöður eftirfylgniskýrslu.
    Í skýrslu sinni frá árinu 2023 setti Ríkisendurskoðun fram fjórar ábendingar. Fjölluðu þær um að skýra þyrfti stöðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, að menningar- og viðskiptaráðuneyti, nú menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, sinnti eftirliti með fjármálum hljómsveitarinnar, að skýra þyrfti stefnu um markmið og rekstur og að hlúa þyrfti að innri starfsemi og skýra hlutverk nefnda. Að mati Ríkisendurskoðunar hefur verið komið til móts við eina ábendingu og að hluta til móts við tvær. Hvað varðar ábendingu um að skýra þyrfti stöðu hljómsveitarinnar hefur lítil sem engin vinna átt sér stað.

Umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Staða Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Í skýrslu sinni frá árinu 2023 fjallaði Ríkisendurskoðun um stöðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Að mati stofnunarinnar var ekki að fullu ljóst hver eignarréttarleg staða hljómsveitarinnar væri. Ríkisendurskoðun setti því fram þá ábendingu að skoða þyrfti skilgreiningu á eignarhaldi og rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands til framtíðar.
    Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að lítil sem engin vinna hafi átt sér stað af hálfu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis í tengslum við þessa ábendingu. Málinu hafi verið ítrekað frestað. Í svörum ráðuneytisins við eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kom fram að nú væri í undirbúningi að rýna þessa stöðu og leggja til lagabreytingar sem skýra ættu stöðu hljómsveitarinnar, m.a. með því að koma á fót starfshópi sem á að skoða möguleika á breyttu eignarhaldi og aðra útfærslu á aðkomu Reykjavíkurborgar. Fyrir nefndinni áréttaði ráðuneytið að endurskoðun væri í undirbúningi.
    Í áliti sínu um skýrsluna frá árinu 2023 taldi nefndin mikilvægt að staða Sinfóníuhljómsveitar Íslands væri leidd til lykta og hvatti ráðuneytið til að flýta þeirri vinnu. Nefndin er enn þeirrar skoðunar og telur alvarlegt að lítið hafi verið unnið að úrbótum vegna þessarar ábendingar.

Eftirlitshlutverk ráðuneytis.
    Önnur ábending Ríkisendurskoðunar sneri að mikilvægi þess að ráðuneytið sinnti skyldum sínum við eftirlit með fjármálum sveitarinnar. Af eftirfylgniskýrslunni má ráða að komið hafi verið að hluta til móts við þessa ábendingu. Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti vinni nú þétt með Sinfóníuhljómsveit Íslands að fjárhagsáætlunargerð hverju sinni og að samskiptin hafi verið reglubundin frá útgáfu skýrslunnar árið 2023. Fyrir nefndinni kom jafnframt fram að aukið samtal ætti sér stað með reglubundnum hætti og að bæði stjórn og framkvæmdastjórn hljómsveitarinnar ættu í reglulegum samskiptum við ráðuneytið. Var ráðuneytið því ósammála mati Ríkisendurskoðunar um að aðeins væri búið að koma að hluta til móts við ábendinguna.
    Í áliti sínu um skýrsluna frá árinu 2023 lagði nefndin áherslu á mikilvægi samvinnu ráðuneytis og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á sama tíma og gætt væri að sjálfstæði hljómsveitarinnar. Nefndin lýsir því ánægju sinni með aukin og bætt samskipti milli ráðuneytis og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Í ljósi afstöðu ráðuneytisins til framgangs þessarar ábendingar telur nefndin að það hefði verið til bóta að setja fram nánari skýringar á því hvers vegna aðeins væri búið að koma til móts við ábendinguna að hluta.

Setja þarf stefnu um markmið og rekstur.
    Í skýrslu sinni frá árinu 2023 setti Ríkisendurskoðun fram þá ábendingu að skýra þyrfti stefnu um markmið og rekstur Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Endurskoða þyrfti þau stefnumarkmið hljómsveitarinnar sem sett væru fram í ljósi árangurs síðustu ára. Setja þyrfti skýra stefnu um markmið og rekstur hljómsveitarinnar til framtíðar.
    Við eftirfylgni Ríkisendurskoðunar kom fram að ráðuneyti og Sinfóníuhljómsveit Íslands hefðu haft samráð við stefnumótun og samþykkt var stefna fyrir árin 2024–2027. Í stefnunni væru m.a. skilgreind hlutverk, sýn og gildi sveitarinnar auk stefnuáherslna sem lytu að mannauði, fjármögnun, listrænum metnaði og aðgengi að starfsemi hennar. Ríkisendurskoðun bendir þó á að afkoma hljómsveitarinnar hafi verið neikvæð árið 2025 sem og eigið fé á sama tíma og aðsókn hafi dregist saman og áskrifendum fækkað.
    Að mati nefndarinnar er jákvætt að brugðist hafi verið við ábendingu Ríkisendurskoðunar með þeim hætti sem að framan er lýst. Ljóst er þó að mikið uppbyggingarverk er enn fyrir höndum. Að mati nefndarinnar er því mikilvægt að ráðuneytið styðji Sinfóníuhljómsveit Íslands í að setja raunhæf markmið í rekstri, þar á meðal um tekjuöflun af miða- og áskriftarsölu.

    Halla Hrund Logadóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 18. nóvember 2026.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir. Eydís Ásbjörnsdóttir.
Guðmundur Ingi Kristinsson.
                        
Gunnar Guðjónsson. Karólína Helga Símonardóttir.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þorgrímur Sigmundsson.