Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 436 — 329. mál.
1. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tekjuskattur, tollar o.fl.).
Frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur.
1. Á eftir 2. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
a. (3. gr.)
Við 2. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Við innlausn eða sölu hlutdeildarskírteinis, keyptra verðbréfa, víxla og sambærilegra eigna skal ákvarða hagnað eða tap og gefa upp til skatts.
b. (4. gr.)
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
a. Við 4. málsl. bætist: eða mismunur á kaupverði samkvæmt kaupréttarsamningi og söluverði hlutabréfa reynist söluverð hlutabréfa lægra en gangverð á nýtingardegi kaupréttar.
b. 5. málsl. orðast svo: Skattlagningu samkvæmt þessari grein skal frestað þar til eigendaskipti verða á hlutabréfunum eða kaupréttarsamningi og falla niður ef söluverð hlutabréfa reynist lægra en kaupverð samkvæmt kaupréttarsamningi.
2. Við 3. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Á eftir 2. málsl. 7. tölul. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Víkja má frá skilyrði 2. málsl. um skráningu á almannaheillaskrá ef viðtakandi gjafar eða framlags hefur með höndum starfsemi sem fellur undir 2. mgr. 4. tölul. 4. gr. og um tímabundna starfsemi er að ræða.
3. 4. gr. orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 31. gr. laganna:
a. Á eftir orðunum „Einstakar gjafir og framlög“ í 1. málsl. 2. tölul. kemur: í reiðufé.
b. Á eftir 1. málsl. 2. tölul. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þrátt fyrir kröfu um að framlög séu í reiðufé falla hér eftir atvikum undir framlög í formi lausafjár, þ.e. einstakra gjafa. Við þær aðstæður að virði einstaks hlutar nemi hærri fjárhæð en 2.000.000 kr. skal það verðmat staðfest af löggiltum endurskoðanda enda sé ekki til að dreifa fullnægjandi fylgiskjölum um verðmæti hvers hlutar, svo sem kaup- eða sölureikningum, dagsettum innan tólf mánaða frá veitingu gjafar eða framlags.
c. Á eftir 3. málsl. 2. tölul. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Víkja má frá skilyrði 3. málsl. ef viðtakandi gjafar eða framlags hefur með höndum starfsemi sem fellur undir 2. mgr. 4. tölul. 4. gr. og um tímabundna starfsemi er að ræða.
d. Í stað orðanna „frá síðustu tíu árum á undan tekjuári“ í 1. málsl. 8. tölul. kemur: fyrri ára.
4. Á eftir 5. gr. komi fimm nýjar greinar, svohljóðandi:
a. (8. gr.)
Á eftir 2. málsl. 3. mgr. 57. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Við mat á viðskiptum og eftir atvikum leiðréttingu viðskiptakjara skal ríkisskattstjóri fylgja aðferðum milliverðlagningarreglna Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París (OECD).
b. (9. gr.)
Eftirfarandi breytingar verða á 57. gr. b laganna:
a. Í stað orðanna „100 millj. kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 375 millj. kr.
b. Orðin „þegar öll félög samstæðu eru heimilisföst á Íslandi“ í b-lið 3. mgr. falla brott.
c. (10. gr.)
Við 2. mgr. 97. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir ef ófullnægjandi framtalsskil má rekja til rangra leiðbeininga eða upplýsingagjafar ríkisskattstjóra, svo og í þeim tilvikum þegar um er að ræða breytta réttarframkvæmd eða túlkun ríkisskattstjóra á réttarreglum.
d. (11. gr.)
Eftirfarandi breytingar verða á 118. gr. laganna:
a. Í stað orðsins „ráðherra“ kemur: Alþingis.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Tillaga ríkisskattstjóra skal hljóta meðferð skv. 5. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
e. (12. gr.)
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 8. tölul. 31. gr. er aðeins heimilt að nýta eftirstöðvar rekstrartapa sem mynduðust á rekstrarári sem lauk á rekstrarárinu 2017 eða síðar.
5. Á eftir 13. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
a. (21. gr.)
Á eftir orðunum „úr ríkissjóði“ í 1. málsl. 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: vegna meðferðar máls hjá lægra settu stjórnvaldi og fyrir nefndinni.
b. (22. gr.)
14. gr. laganna orðast svo:
Yfirskattanefnd skal birta úrskurði á vefsíðu sinni eigi síðar en þremur vikum frá uppkvaðningu hvers úrskurðar.
6. Við 15. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Í stað fjárhæðarinnar „2.000.000 kr.“ í 3. tölul. 4. gr. laganna kemur: 10.000.000 kr.
7. Á eftir 15. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Í stað fjárhæðarinnar „4.000.000 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 24. gr. laganna kemur: 20.000.000 kr.
8. Við bætist nýr kafli, X. kafli, Breyting á lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019, með einni grein, 32. gr., svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
a. 2. mgr. orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim tíma er gjaldandi sannanlega lagði fram kröfu um endurgreiðslu ofgreiddra skatta eða gjalda. Dráttarvextir skulu þó ekki greiddir ef endurgreiðsla fer fram innan 30 daga frá því að krafa um endurgreiðslu var gerð.
b. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi gjald verið dæmt ólögmætt skal greiða gjaldendum, öðrum en málshefjanda, sem eins er ástatt um, dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er 30 dagar hafa liðið frá dómsuppsögu.
c. 4. og 5. mgr. falla brott.
9. Við 22. gr bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði X. kafla þegar gildi og taka til endurupptekinna mála, úrskurða sem kærðir eru til æðra stjórnvalds eða stefnt fyrir dóm eftir gildistöku ákvæðisins, svo og ákvarðana, úrskurða og dóma um endurgreiðslukröfur eftir það tímamark.
Greinargerð.