Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 437  —  288. mál.



                                  

Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um sýningu í Náttúruhúsi í Nesi og framtíðarskipan Náttúruminjasafns Íslands.

Inngangur.
    Í apríl 2026 skilaði stýrihópur skipaður af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra niðurstöðum varðandi frumathugun á sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Tilefni frumathugunarinnar voru hvoru tveggja ítrekaðar ábendingar Ríkisendurskoðunar um skörun verkefna stofnananna sem og áralangur fjárhags- og rekstrarvandi Náttúruminjasafnsins en í árslok 2025 nam uppsafnaður halli safnsins 419,8 millj. kr. Niðurstöður athugunarinnar voru að hvoru tveggja fjárhagslegur og faglegur ávinningur hlytist af sameiningu.
    Á grundvelli niðurstaðnanna ákváðu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að vinna að sameiningunni. Skipuð var verkefnisstjórn sem falið var að vinna að undirbúningi sameiningar. Sú vinna stendur nú yfir en frumvarp um nauðsynlegar lagabreytingar er í undirbúningi og er á þingmálaskrá ríkisstjórnar fyrir vorþing 2027. Í vinnunni er miðað við að lagabreytingin taki gildi 1. janúar 2028 en að fram að þeim tíma muni undirbúningur standa yfir. Nauðsynleg verkefni við sameininguna eru þríþætt, þ.e. vinna við að leysa uppsafnaðan rekstrarhalla Náttúruminjasafnsins, vinna við að fjármagna og ljúka sýningargerð og hefja starfsemi að Safnatröð 5, Seltjarnarnesi, auk undirbúnings lagafrumvarps og annarra framkvæmdaþátta sameiningar, svo sem varðandi mannauðsmál, húsnæðismál og sameiningu upplýsingakerfa.

Samantekt á rekstraraðstæðum Náttúruminjasafns Íslands.
    Fjárheimild Náttúruminjasafns Íslands samkvæmt fjárlögum 2026 nam 155 millj. kr. Uppsafnaður rekstrarhalli safnsins í árslok 2025 nam 419,8 millj. kr. Af uppsöfnuðum rekstrarhalla nam gjaldfærður kostnaður vegna sýningar í árslok 2025 288 millj. kr. Stærstu kostnaðarþættir eru 207 millj. kr. vegna hönnunar sýningar og um 40 millj. kr. vegna forvörslu beinagrindar íslandssléttbaks. Samkvæmt áætlun safnsins nemur kostnaður vegna framleiðslu sýningar 270 millj. kr. Miðað við framangreindar fyrirliggjandi upplýsingar má vera ljóst að stofnkostnaður vegna sýningargerðar geti a.m.k. numið 558 millj. kr.
    Í þessu samhengi er rétt að greina einnig frá stofnkostnaði vegna framkvæmda við nýtt húsnæði safnsins að Safnatröð 5, Seltjarnarnesi. Samkvæmt síðustu útgönguspá frá FSRE um framkvæmdir við lokafrágang húsnæðis er gert ráð fyrir að kostnaður vegna þeirra nemi um 1.320 millj. kr. Tekið skal fram að frágangi á lóð og bílastæðum er enn ólokið og er utan framangreindrar fjárhæðar. Unnið er að kostnaðarmati vegna frágangsins svo ljúka megi lóð og bílastæði.

Um forsendur fyrir sameiningu.
    Fyrirhuguð sameining Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar fellur að stefnu stjórnvalda um færri og öflugri ríkisstofnanir. Í umfjöllun fjármála- og efnahagsráðuneytis um skipulag og stjórnun ríkisstofnana er lögð áhersla á að stærri rekstrareiningar geti betur sinnt kjarnaverkefnum og veitt góða þjónustu. Ríkisendurskoðun hvatti í skýrslunni „Stofnanir ríkisins – fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni“ frá 22. febrúar 2022 til þess að stjórnvöld tækju afstöðu til fyrirliggjandi tillagna um samstarf og sameiningar og skoðuðu sérstaklega skipulag smárra stofnana með einföldun, hagkvæmni og skilvirkni að leiðarljósi. Í hraðúttektinni Stofnanir ráðuneyta – fjöldi, stærð og stærðarhagkvæmni frá 22. október 2026 telur Ríkisendurskoðun ríka ástæðu til að kanna frekari sameiningar smæstu stofnananna. Jafnframt áréttar embættið mikilvægi vandaðs undirbúnings, skýrrar forystu ráðuneyta, samráðs við forstöðumenn og upplýsingamiðlunar til starfsfólks og annarra hagaðila.
    Líkt og nefnt var að framan hefur Ríkisendurskoðun ítrekað bent á faglega skörun verkefna þessara tveggja stofnana. Eins ber að nefna að við setningu laga um Náttúruminjasafn Íslands árið 2007 kom fram að löggjafinn gerði ráð fyrir nánu samstarfi þessara tveggja stofnana, m.a. að Náttúrufræðistofnun yrði vísindalegur bakhjarl safnsins. Í frumathugun um sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar er að finna ítarlega greiningu á starfsemi og verkefnum stofnananna og er niðurstaðan, sem fyrr segir, að hvoru tveggja fjárhagslegur og faglegur ávinningur verði af sameiningu.
    Mikilvæg forsenda við ákvörðun um sameiningu stofnananna er að byggt verði á styrkleikum beggja stofnana og að til verði heildstæð þekkingarstofnun um náttúru Íslands með skýrt hlutverk við samfélagið. Að auki er með nauðsynlegri endurskipulagningu á fjármálum Náttúruminjasafnsins og sameiningu við Náttúrufræðistofnun hægt að skjóta sterkari stoðum undir rekstur og grunnstarfsemi Náttúruminjasafnsins, þar með talið hlutverk þess sem höfuðsafns á sviði náttúrufræða.

     1.      Stendur áætlun um að opna sýningu Náttúruminjasafns Íslands í Náttúruhúsi í Nesi árið 2027, sem ráðherra kynnti 10. júní 2026, og við hvaða opnunardag er miðað? Hver er staða undirbúnings og hverjir eru helstu áfangar fram að opnun? Óskað er eftir tímasettri verkáætlun.
    Já, unnið er að því að Náttúruminjasafn Íslands hefji starfsemi að Safnatröð 5, Seltjarnarnesi, með nýrri grunnsýningu og er stefnt að því að það geti orðið á seinni hluta árs 2027. Hönnun sýningar um hafið er lokið. Ráðuneytið skipaði í byrjun nóvember sl. faghóp sem hefur það hlutverk að rýna stöðu sýningarinnar, stofnkostnað og áætlaðan rekstrarkostnað sem og mögulega áfangaskiptingu. Hópurinn hefur stuttan skipunartíma og skal skila ráðherra niðurstöðum um miðjan desember nk. Niðurstöður hópsins verða ráðgefandi fyrir ráðuneytið varðandi næstu skref og fjármögnun verkefnisins.
    Þegar ákvarðanir um næstu skref liggja fyrir verður gerð tímasett verkáætlun sem tilgreinir ákvarðanir um umfang og áfangaskiptingu, fjármögnun, innkaup, framleiðslu, uppsetningu og opnun, ásamt ábyrgð á hverjum áfanga.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við uppsetningu sýningarinnar og hvaða fjármunir hafa verið tryggðir til hennar? Hvaða fjármunir eru áætlaðir til árlegs rekstrar, þar á meðal vegna starfsfólks og fræðslu fyrir skólahópa?
    Náttúruminjasafn Íslands hefur um nokkurra ára skeið unnið að gerð nýrrar grunnsýningar. Samkvæmt kostnaðaráætlun frá 2019 var gert ráð fyrir að heildarkostnaður vegna hennar næmi 425 millj. kr. Ráðist var í útboð hönnunarfasans árið 2022 þar sem hollenska fyrirtækið Kossmanndejong varð hlutskarpast. Hönnun sýningar er nú lokið og nemur hönnunarkostnaðurinn einn og sér 207 millj. kr. en í árslok 2025 hafði safnið bókfært 288 millj. kr. í kostnað vegna sýningar. Samkvæmt uppreiknuðu mati frá september síðastliðnum er áætlað að uppsetning og framleiðsla sýningar kosti 270 millj. kr. Miðað við þær forsendur má gera ráð fyrir að heildarkostnaður við sýninguna muni nema 558 millj. kr. Líkt og áður greinir skipaði ráðherra faghóp til að rýna og meta stöðu sýningargerðar með tilliti til stofn- og rekstrarkostnaðar. Niðurstaðna er að vænta í desember.
    Samkvæmt gildandi fjármálaáætlun 2027–2031 er ekki gert ráð fyrir hækkun fjárframlaga á málefnasviði 18.10 til að mæta sérstaklega lausn á uppsöfnuðum halla Náttúruminjasafnsins, stofnkostnaði vegna sýningargerðar eða framkvæmda við Safnatröð 5. Fjármögnun þessara skuldbindinga mun því reyna á svigrúm ráðuneytisins og kalla á forgangsröðun verkefna innan fyrirliggjandi fjárheimilda. Óhjákvæmilegt verður að falla frá öðrum verkefnum eða fresta þeim til að unnt verði að standa undir þeim kostnaði sem verkefnum safnsins fylgir.
    Í fjárlögum fyrir árið 2027 sem og gildandi fjármálaáætlun 2027–2031 kemur fram hver rekstrargrundvöllur Náttúruminjasafns Íslands er. Í fjárlögum fyrir árið 2027 nemur framlag ríkissjóðs til reksturs safnsins 161,3 millj. kr.

     3.      Hvað stendur í vegi fyrir því að Náttúruhús í Nesi verði afhent Náttúruminjasafni Íslands til afnota og hvenær er áætlað að safnið fái húsið til umráða? Hvaða verkþáttum eða skilyrðum þarf að ljúka áður en afhending getur farið fram og hver ber ábyrgð á að fylgja þeim eftir? Getur safnið hafið nýtingu hússins að hluta áður en sýningin verður opnuð?
    Framkvæmdum við húsið að Safnatröð 5 er nú lokið og húsið tilbúið til afhendingar. Fjárhagsstaða safnsins leyfði ekki að stofnunin tæki við húsinu en samanlagður halli fyrri ára nam í árslok 2025 um 420 millj. kr. Þar fyrir utan voru safninu í fjárlögum fyrir árið 2026 ekki tryggðar fjárheimildir til að mæta leigukostnaði hússins en árleg leigugreiðsla nemur um 100 millj. kr. Þetta eru ástæður þess að safnið hefur ekki getað tekið húsið í notkun. Ráðuneytið upplýsti FSRE um þessa stöðu. Með fjárhagslegri endurskipulagningu safnsins og sameiningu við Náttúrufræðistofnun er unnið að því að treysta fjárhags- og rekstrargrundvöll safnsins þannig að hægt verði að taka húsið í notkun. Forsenda þess að húsið verði tekið í notkun, að hluta eða í heild, er að fjármögnun leigu og annars rekstrarkostnaðar sé tryggð. Meta þarf sérstaklega hvort unnt sé að nýta hluta hússins áður en sýningin verður opnuð. Þá er ljóst að ljúka þarf frágangi á lóð og við bílastæði áður en húsið verður opnað almenningi.

     4.      Er opnun sýningarinnar háð framgangi fyrirhugaðrar sameiningar stofnananna eða lagabreytingum vegna hennar? Hvernig verður tryggt að breytingar á stofnanafyrirkomulagi tefji ekki opnun?
    Opnun á grunnsýningu Náttúruminjasafns er ekki háð framgangi nauðsynlegra lagabreytinga vegna sameiningar. Unnið er að undirbúningi og fjármögnun sýningarinnar samhliða sameiningarferlinu. Verkáætlun sýningarinnar verður aðgreind frá tímaáætlun lagabreytinga, með skýrri ábyrgð á framkvæmd og reglulegri eftirfylgni ráðuneytisins.

     5.      Hvaða tillögur að breytingum á lögum vegna sameiningarinnar eru fyrirhugaðar og hvenær verða þær lagðar fyrir Alþingi? Verður Náttúruminjasafn Íslands áfram skilgreint í lögum sem eitt af höfuðsöfnum Íslands?
    Unnið er að undirbúningi nauðsynlegra lagabreytinga. Í þingmálaskrá er gert ráð fyrir að frumvarp vegna málsins verði lagt fram á vorþingi 2027. Áður en til þess kemur verða áform um lagasetninguna kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið sjálft mun jafnframt vera kynnt í samráðsgátt. Í þessu samráðsferli verður kallað eftir umsögnum hagaðila, þar á meðal safnaráðs, annarra höfuðsafna og viðeigandi fagfélaga. Forsenda sameiningarinnar er að Náttúruminjasafn Íslands verði áfram skilgreint í lögum sem höfuðsafn á sviði náttúrufræða.

     6.      Hvernig verður ábyrgð á höfuðsafnshlutverki Náttúruminjasafns Íslands háttað við fyrirhugaða stofnanabreytingu? Hvernig verða lögbundin hlutverk safnsins, faglegt sjálfstæði þess og tengsl við önnur höfuðsöfn og stjórnsýslu safnamála tryggð?
    Við nauðsynlegar lagabreytingar vegna sameiningar Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar er gengið út frá því að safnið verði áfram höfuðsafn á sviði náttúrufræða í samræmi við safnalög, sem hluti af sameinaðri stofnun. Við útfærslu lagabreytinga verður kveðið á um höfuðsafnshlutverk og faglegt safnastarf í samræmi við safnalög.

     7.      Hvaða stjórnfyrirkomulag er fyrirhugað fyrir safnið innan sameinaðrar stofnunar? Verður það með sérstaka stjórn eða faglega yfirstjórn og hvaða vald mun hún hafa yfir stefnumótun, fjármunum, ráðningum starfsfólks og safnastarfi?
    Endanleg útfærsla stjórnfyrirkomulags og einstakra lagaákvæða vegna fyrirhugaðrar sameiningar liggur ekki fyrir. Hún verður kynnt með drögum að frumvarpi í samráðsgátt.

     8.      Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á störfum, fjölda stöðugilda og starfsaðstöðu starfsfólks Náttúruminjasafns Íslands? Hvernig verður tryggt að safnið búi yfir þeirri sérþekkingu og mannafla sem þarf til að sinna höfuðsafnshlutverki sínu og reka sýninguna í Náttúruhúsi í Nesi?
    Náttúruminjasafn Íslands hefur undanfarið ár verið með starfsaðstöðu í ófullnægjandi leiguhúsnæði. Fyrir liggur að starfsfólk safnsins mun um áramót flytjast í skrifstofuhúsnæði Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti í Garðabæ. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif sameining mun hafa á starfsmannafjölda í tengslum við safna- og sýningarstarf. Fyrirhugaðar lagabreytingar munu kveða á um stofnanafyrirkomulag og lögbundið hlutverk sameinaðrar stofnunar, þar með talið safnahlutverkið.

     9.      Hvernig verður húsnæðismálum safnsins háttað eftir sameiningu, bæði hvað varðar sýningar og fræðslu, skrifstofur og vinnuaðstöðu, varðveislu safnkosts og rannsóknir? Hvaða ákvarðanir hafa þegar verið teknar þar að lútandi?
    Árið 2025 var leigu á skrifstofuhúsnæði safnsins við Suðurlandsbraut og leiguhúsnæði fyrir safnkost sagt upp. Í kjölfarið flutti safnið starfsemi sína í iðnaðarhús við Bygggarða á Seltjarnarnesi. Um er að ræða ófullnægjandi húsnæði fyrir hvort tveggja starfsfólk og safnkost. Leigu á þessu húsnæði hefur nú verið sagt upp. Um áramótin 2026–2027 mun starfsfólk safnsins flytjast í fullbúið og nútímalegt skrifstofuhúsnæði Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti í Garðabæ en aðstaða í húsinu er til fyrirmyndar. Samhliða verður safnkostur fluttur í annað og hagkvæmara leiguhúsnæði. Líkt og að framan greinir er unnið að því að taka Safnatröð 5 í notkun með nýrri grunnsýningu. Það kemur í hlut sameinaðrar stofnunar að skipuleggja verkefni og starfsaðstöðu starfsfólks til að sinna lögbundnu hlutverki, þ.m.t. safna- og sýningarstarfsemi.

     10.      Hvaða samráð fór fram áður en ákvörðun um að vinna að sameiningunni var tilkynnt og hvaða samráð er fyrirhugað við frekari undirbúning hennar? Óskað er upplýsinga um aðkomu starfsfólks, stjórnenda Náttúruminjasafns Íslands, safnaráðs og annarra hlutaðeigandi, helstu sjónarmið þeirra og hvernig tekið hefur verið tillit til þeirra.
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipaði stýrihóp til að vinna frumathugun á fýsileika sameiningar Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Líkt og að framan greinir skilaði hópurinn niðurstöðu í apríl 2026 sem var birt á vef Stjórnarráðsins. Í hópnum sátu starfsmaður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og starfsmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, auk forstöðumanna beggja stofnana. Í vinnu hópsins var óskað eftir samtali og áliti frá safnaráði og hinum höfuðsöfnunum, Þjóðminjasafni Íslands og Listasafni Íslands. Í frumathuguninni er greint frá sjónarmiðum þessara aðila og um þau fjallað í greiningu og niðurstöðum.
    Á grundvelli niðurstaðna frumathugunarinnar var tekin ákvörðun um að vinna að sameiningunni og verkefnisstjórn skipuð sem hefur starfað frá því í júní 2026. Í þeirri vinnu sem unnin hefur verið frá því í júní hefur verkefnisstjórnin sem og ráðuneytið sjálft átt samstarf við forstöðumenn beggja stofnana um framvindu verkefnisins. Líkt og fram hefur komið að framan munu áform um lagasetningu sem og drög að frumvarpi um nauðsynlegar lagabreytingar verða kynnt í samráðsgátt. Í því ferli verður kallað eftir sjónarmiðum hagaðila, líkt og viðeigandi fagfélaga, safnaráðs o.fl. áður en málið fær þinglega meðferð. Einnig er gert ráð fyrir hefðbundnu samráðsferli í meðförum Alþingis á frumvarpi um sameiningu stofnananna.