Ferill 344. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 438 — 344. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um fæðingar á Íslandi.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hversu mörg börn fæddust árlega á Íslandi á árunum 2010–2025? Svar óskast sundurliðað eftir fæðingarlandi móður. Ef fæðingarland móður liggur ekki fyrir óskast svar sundurliðað eftir ríkisfangi.
2. Í hversu mörgum tilvikum á sama tímabili:
a. voru báðir foreldrar fæddir á Íslandi,
b. voru báðir foreldrar fæddir erlendis,
c. var móðir fædd á Íslandi en faðir fæddur erlendis,
d. var móðir fædd á Íslandi en faðerni ekki skráð,
e. var móðir fædd erlendis en faðir fæddur á Íslandi,
f. var móðir fædd erlendis og faðerni ekki skráð?
Skriflegt svar óskast.