Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 439  —  345. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um persónuvernd í nettengdum ökutækjum.

Frá Þorgrími Sigmundssyni.


     1.      Er ráðherra kunnugt um umfang þeirrar söfnunar og vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í nettengdum ökutækjum, meðal annars um staðsetningu, aksturshegðun, samskipti eigenda, ökumanna og farþega og um vegfarendur og önnur ökutæki sem eru fönguð á mynd í návist þeirra?
     2.      Hefur ráðuneytið kannað hvaða áhrif slík gagnasöfnun kann að hafa á persónuvernd einstaklinga, einkum þegar söfnunin fer fram sjálfvirkt eða án sérstakrar vitneskju þeirra? Ef svo er, hverjar eru þær niðurstöður?
     3.      Hefur ráðuneytið kannað hvort framkvæmd slíkrar gagnasöfnunar samræmist gildandi persónuverndarlöggjöf eða er fyrirhugað að ráðast í slíka athugun?
     4.      Hefur ráðuneytið gert ráðstafanir um að mikilvægar upplýsingar eða ríkisleyndarmál séu ekki rædd í nettengdum ökutækjum?


Skriflegt svar óskast.