Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 440 — 223. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um þjónustu og viðhald malarvega í Norðausturkjördæmi.
1. Hvernig er forgangsröðun þjónustu og viðhalds malarvega sem þjóna byggð og atvinnustarfsemi í Norðausturkjördæmi háttað?
Viðhald og þjónusta malarvega er fjármagnað af fjárveitingu til framkvæmda á vegakerfinu. Sundurliðun fjárveitinga innan svæða byggist á gögnum úr vegaskrá um lengd vega með malaryfirborði og umferð sem um þá fer. Viðhald og þjónusta malarvega felst í vegheflun, rykbindingu, mölburði og öðrum viðgerðum.
Í töflu 1 má sjá umfang vega eftir vegflokkum og yfirborði innan hvers rekstrarumdæmis Vegagerðarinnar á Norðurlandi eystra og á þremur rekstrarumdæmum á Austursvæði innan Norðausturkjördæmis.
Tafla 1. Lengd vega í hverjum vegflokki og rekstrarumdæmi þjónustustöðva í Norðausturkjördæmi.
| Þjónustustöð Akureyri (81) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 240 | 0 | 201 | 197 | 119 | 757 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 240 | 0 | 102 | 27 | 0 | 370 |
| Þar af malarvegir | 0 | 0 | 99 | 170 | 119 | 388 |
| Þjónustustöð Húsavík (82) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 305 | 97 | 182 | 163 | 250 | 997 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 268 | 0 | 115 | 11 | 0 | 393 |
| Þar af malarvegir | 37 | 97 | 67 | 152 | 250 | 603 |
| Þjónustustöð Þórshöfn (83) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 172 | 0 | 89 | 88 | 88 | 438 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 165 | 0 | 6 | 3 | 0 | 175 |
| Þar af malarvegir | 7 | 0 | 83 | 85 | 88 | 264 |
| Þjónustustöð Vopnafjörður (84) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 68 | 0 | 84 | 39 | 0 | 191 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 68 | 0 | 32 | 1 | 0 | 101 |
| Þar af malarvegir | 0 | 0 | 52 | 38 | 0 | 90 |
| Þjónustustöð Fellabær (85) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 268 | 0 | 283 | 173 | 387 | 1.111 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 266 | 0 | 112 | 14 | 66 | 457 |
| Þar af malarvegir | 2 | 0 | 171 | 159 | 321 | 654 |
| Þjónustustöð Reyðarfjörður (84) | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 147 | 0 | 153 | 47 | 44 | 391 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 147 | 0 | 66 | 3 | 3 | 219 |
| Þar af malarvegir | 0 | 0 | 86 | 44 | 41 | 172 |
| Þjónustustöð Hornafjörður (84) frá Streyti suður að Hvalnesskriðum | Stofnvegir (km) | Stofnvegir á hálendi (km) | Tengivegir (km) | Héraðsvegir (km) | Landsvegir (km) | Samtals (km) |
| Alls km vega í flokki | 119 | 0 | 0 | 22 | 0 | 141 |
| Þar af með bundnu slitlagi | 99 | 0 | 0 | 1 | 0 | 100 |
| Þar af malarvegir | 20 | 0 | 0 | 21 | 0 | 41 |
Kostnað sundurliðaðan eftir rekstrarumdæmum fyrir árin 2020–2026 er að finna í töflu 2.
Tafla 2. Fjármagn til viðhalds malarvega eftir rekstrarumdæmi í millj. kr. (ekki sundurliðað á vegi).*
| Norðursvæði | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026 |
| Þjónustustöð Akureyri (81) | 64 | 69 | 48 | 67 | 57 | 68 | 85 |
| Þjónustustöð Húsavík (82) | 48 | 41 | 77 | 117 | 62 | 74 | 69 |
| Þjónustustöð Þórshöfn (83) og Vopnafjörður (84) | 45 | 87 | 63 | 71 | 68 | 121 | 94 |
| Austursvæði (85, 86 og 87)** | 146 | 145 | 194 | 159 | 182 | 203 | 233 |
| *Upphæðirnar innihalda fjárhæðir sem skráðar eru á almennt viðhald og mölburðarverkefni innan rekstrarumdæmisins. | |||||||
| **Þjónustusvæðið 87 er Hornafjörður, en mikill meiri hluti kostnaðar við viðhald malarvega þess er í sveitarfélaginu Múlaþingi, þ.e. Axarvegur. | |||||||
Fjármagn til viðhalds malarvega í kjördæminu hefur aukist á tímabilinu umfram verðlag. Árið 2026 nam það alls um 480 millj. kr. samanborið við um 300 millj. kr. árið 2020.
Kostnaður fyrir stærri aðgerðir í rekstrarumdæmum Akureyrar, Húsavíkur, Þórshafnar og Vopnafjarðar, sem er sundurliðaður eftir vegum sem spurt er um, er að finna í töflu 3.
Tafla 3. Stærri mölburðarverkefni á Norðurlandi eystra, viðhald malarvega, sundurliðuð á vegi sem voru nefndir í fyrirspurn.
|
|
2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026* |
| Bárðardalur og Útkinn | 13 | 0 | 0 | 44 | 0 | 32 | 0 |
| Laxárdalsvegur | 0 | 0 | 11 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Fnjóskadalur | 0 | 5 | 4 | 2 | 1 | 0 | 0 |
| Hörgárdalsvegur | 3 | 1 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| *Eingöngu er um að ræða stærri mölburðarverkefni sem voru skráð á verkþátt viðkomandi vegnúmers. Frekari aðgerðir hafa verið gerðar á vegunum fjármagnaðar úr almennri fjárveitingu til viðhalds malarvega úr úthlutun til viðkomandi rekstrarumdæmis samkvæmt töflu 2. | |||||||
Landsvegir hljóta sérstaka fjárveitingu og af henni (2026) renna um 55 millj. kr. á ári til Norðursvæðis og um 30 til Austursvæðis (meðtaldir tveir landsvegir í sveitarfélaginu Hornafirði). Fjárveitingar til viðhalds landsvega í Norðausturkjördæmi á árunum 2020–2026 skiptast svo samkvæmt töflu 4.
Tafla 4. Fjármagn til viðhalds landsvega á austurhluta Norðursvæðis eftir vegum í millj. kr.
| Norðursvæði | 2020 |
2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026 |
| 0026 – Sprengisandsleið 50 | 2 | 6 | 2 | 3 | 3 | 7 | 5 |
|
0088 – Öskjuleið
|
15 | 7 | 10 | 10 | 10 | 10 | 14 |
| 0821 – Eyjafjarðarleið | 4 | 1 | 4 | 5 | 5 | 4 | 4 |
| 0832 – Vaðlaheiðarvegur | 2 | 4 | 4 | 7 | 16 | 4 | 1 |
| 0839 – Leirdalsheiðarvegur | 2 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 1 |
| 0869 – Langanesvegur | 5 | 6 | 5 | 5 | 6 | 1 | 4 |
| 0875 – Hálsavegur | 4 | ||||||
| 0881 – Dragaleið | 1 | 0,2 | 1 | 1 | 1 | ||
| 0894 – Öskjuvatnsvegur | 1 | ||||||
| 0899 – Flateyjardalsvegur | 2 | 4 | 3 | 2 | 4 | 1 | 3 |
| Austursvæði | |||||||
| 9214 – Stuðlagilsvegur | 0 | 0 | 0 | 7 | 0 | 0 | 1 |
| 0905 – Arnardalsleið | 1 | 2 | 0 | 1 | 0 | 2 | 2 |
| 0903 – Hvannalindarvegur | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 | 1 | 2 |
| 0902 – Kverkfjallaleið | 1 | 1 | 1 | 2 | 0 | 4 | 4 |
| 0901 – Möðrudalsleið | 13 | 2 | 1 | 1 | 0 | 1 | 2 |
| 0959 – Viðfjarðarvegur | 4 | 0 | 3 | 0 | 0 | 2 | 2 |
| 0907 – Brúarvegur | 0 | 1 | 0 | 1 | 1 | 2 | 2 |
| 0910 – Austurleið | 3 | 5 | 3 | 3 | 1 | 2 | 3 |
| 0923 – Jökuldalsvegur | 0 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 |
| 0955 – Vattarnesvegur | 1 | 0 | 0 | 0 | 1 | 1 | 1 |
| 0958 – Vöðlavíkurvegur | 0 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 1 |
| 0936 – Þórdalsheiðarvegur | 0 | 0 | 1 | 0 | 2 | 5 | 1 |
| 0909 – Snæfellsleið | 3 | 7 | 8 | 1 | 2 | 2 | 3 |
| 0946 – Loðmundarfjarðarvegur | 2 | 2 | 4 | 3 | 3 | 0 | 3 |
Forgangsröðun þjónustu og viðhalds malarvega innan hvers rekstrarumdæmis fer fram samkvæmt ástandsmati. Ástand malarvega er mjög breytilegt og háð umferð og tíðarfari á hverjum tíma.
Vetrarþjónusta malarvega lýtur almennum reglum Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu sem staðfestar eru af innviðaráðuneyti. Í reglunum er skilgreint hvaða þjónustuflokki hver vegur tilheyrir sem ákvarðar tíðni og tímasetningu moksturs.
Vetrarþjónusta er að fullu fjármögnuð í samgönguáætlun, miðað við umfang hennar síðastliðin ár, og er tæpum 14 milljörðum kr. meira varið til hennar á fyrsta tímabili áætlunarinnar en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.
Forgangsröðun þjónustu og viðhalds malarvega er hagað með sama hætti á Norður- og Austursvæði og öðrum svæðum Vegagerðarinnar.
2. Hversu oft voru malarvegir sem þjóna byggð og atvinnustarfsemi í Norðausturkjördæmi heflaðir árin 2020–2026? Svar óskast sundurliðað eftir vegum, vegflokkum og árum, sérstaklega hvað varðar vegi í Bárðardal, Útkinn, Laxárdal og Fnjóskadal, auk Staðarbakkavegar og Hörgárdalsvegar.
Heflun er forgangsraðað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni. Markmiðið er að umferðarmeiri vegir, stofn-, tengi- og héraðsvegir sem ekki eru heimreiðar, séu heflaðir a.m.k. tvisvar sinnum að sumri (að vori og hausti). Umferðarminni vegir, svo sem heimreiðar, eru heflaðir þegar þörf er á en það er háð stöðu fjárveitinga. Líkt og fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er tíðni heflunar ekki sundurliðuð sérstaklega á vegi og vegflokka.
3. Telur ráðherra ástand og þjónustustig malarvega í Norðausturkjördæmi ásættanlegt með tilliti til umferðaröryggis, búsetuskilyrða og atvinnustarfsemi í kjördæminu?
Um langt árabil hafa framlög til viðhalds malarvega hér á landi ekki verið í samræmi við þörf. Af þeim sökum var tekin sú ákvörðun í mótun samgönguáætlunar að nýta það svigrúm sem fjármálaáætlun 2026–2030 veitti aukalega inn í málaflokkinn til viðhalds í stað nýframkvæmda. Þess vegna er sú samgönguáætlun sem samþykkt var á síðasta þingi sú fyrsta í sögunni þar sem hærri fjárhæð er veitt til viðhalds en nýframkvæmda öll ár hennar.
Aldrei hefur meira fjármagni verið varið til viðhalds vegakerfisins en nú, en framlög til viðhalds vega hafa hækkað úr 12,8 milljörðum kr. árið 2024 í 17,5 milljarða kr. árið 2026.
Vonir standa til að með aukinni fjárfestingu í viðhaldi vegakerfisins almennt verði einnig unnt að bæta ástand á malarvegum bæði í Norðausturkjördæmi sem og annars staðar á landinu.
4. Hvaða áform eru um endurbætur á malarvegum og lagningu bundins slitlags í Norðausturkjördæmi næstu fimm ár og hversu miklir fjármunir eru áætlaðir til framkvæmdanna?
Fjármagn til viðhalds malarvega á norðursvæði hefur verið af stærðargráðunni 500 millj. kr. ár hvert sl. þrjú ár og á austursvæði um 180 millj. kr. Unnið er að gerð áætlunar um viðhald malarvega, sér í lagi þeirra vega sem þarfnast mölburðar og efnisvinnslu. Þessu til viðbótar er árlega varið um 60–70 millj. kr. á norðursvæði og um 40 millj. kr. á austursvæði til styrkinga á malarvegum.
Tengivegaáætlun er fjárveiting ætluð til styrkinga og lagningar bundins slitlags á vegi með malarslitlagi. Fjármagn til tengivega er á bilinu 750–900 millj. kr. ár hvert til norðursvæðis og til ársins 2030.
Á gildandi tengivegaáætlun 2026–2030 norðursvæðis er Svarfaðardalsvegur (805) frá Tunguvegi að Göngustöðum á áætlun til framkvæmda árin 2028–2030. Gert er ráð fyrir 700 millj. kr. til verksins. Önnur verkefni á gildandi tengivegaáætlun eru á vesturhluta norðursvæðis.
Á tengivegaáætlun austursvæðis er gert ráð fyrir að árin 2026 og 2027 fari fjárveitingar svæðisins í Suðurkjördæmi (Stokksnesvegur) og þar á eftir næstu tvö ár á Hlíðarveg 917 í Múlaþingi.