Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 442  —  346. mál.




Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar


um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Samkeppniseftirlitið.


    Með bréfi, dags. 14. september 2026, sendi forseti Alþingis eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Samkeppniseftirlitið til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er gerð grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um Samkeppniseftirlitið frá árinu 2022. Nefndin fjallaði um þá skýrslu á 153. löggjafarþingi og veitti álit um hana ( þskj. 624, 509. mál). Umræða um álitið fór fram á þingfundi 9. maí 2023.
    Nefndin hefur fjallað um eftirfylgniskýrsluna á fundum sínum og fengið til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, atvinnuvegaráðuneyti og Samkeppniseftirlitinu.

Niðurstöður eftirfylgniskýrslu.
    Í skýrslu sinni frá árinu 2022 setti Ríkisendurskoðun fram átta tillögur til úrbóta. Fjölluðu þær um að formfesta þyrfti betur skipulag innra eftirlits og innleiða innri endurskoðun, að leggja þyrfti áframhaldandi áherslu á leiðbeiningar og fræðslu, ljúka þyrfti endurskoðun málsmeðferðar- og verklagsreglna, bæta þyrfti árangursmat og efla gagnasöfnun. Jafnframt þyrfti greining á áhrifum breyttra veltumarka að vera ítarlegri og endurskoða þyrfti samrunagjald.
    Atvinnuvegaráðuneyti og Samkeppniseftirlitið hafa unnið að úrbótum og komið hefur verið að fullu til móts við þrjár úrbótatillögur. Komið hefur verið til móts við fimm úrbótatillögur að hluta. Ríkisendurskoðun leggur áherslu á innleiðingu innri endurskoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu sem og endurskoðun verklags- og málsmeðferðarreglna. Þá þarf atvinnuvegaráðherra að ljúka endurskoðun veltumarka og samrunagjalds með framlagningu frumvarps til breytinga á samkeppnislögum, nr. 44/2005.

Umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Innra eftirlit og innri endurskoðun.
    Í skýrslunni frá árinu 2022 beindi Ríkisendurskoðun þeirri tillögu til úrbóta að formfesta þyrfti betur skipulag innra eftirlits og innleiða innri endurskoðun.
    Í eftirfylgniskýrslunni og fyrir nefndinni kom fram að Samkeppniseftirlitið hefði unnið að innleiðingu innri endurskoðunar hjá stofnuninni. Fáar stofnanir hefðu innleitt innra eftirlit og þá helst stærri stofnanir. Samkeppniseftirlitið hefði framkvæmt þarfagreiningu og óskað samstarfs við stjórnvöld í ljósi þess að ekki væru dæmi um að hliðstæðar stofnanir hefðu tekið upp innri endurskoðun. Í ljósi þess að upptaka innri endurskoðunar kallaði á viðbótarfjárveitingar var óskað sérstakra fjárveitinga til verksins og væri nú unnið að innleiðingu innri endurskoðunar.
    Að mati nefndarinnar er jákvætt að unnið sé að innleiðingu innri endurskoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Innri endurskoðun er þýðingarmikill þáttur í starfsemi stofnana. Nefndin vill því vekja athygli á því að hún hefur í tvígang beint því til fjármála- og efnahagsráðuneytis að ljúka setningu reglugerðar um innri endurskoðun, sbr. 65. gr. laga um opinber fjármál (sjá álit nefndarinnar annars vegar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fjársýslu ríkisins, þskj. 423, 302. mál á 157. löggjafarþingi, og hins vegar um Hafrannsóknastofnun, þskj. 505, 392. mál á 156. löggjafarþingi). Að mati nefndarinnar þarf ráðuneytið að ljúka setningu þessarar reglugerðar eða taka ákvæði 65. gr. laganna til endurskoðunar. Beinir nefndin því til ráðuneytisins.

Endurskoðun málsmeðferðar- og verklagsreglna.
    Ein af tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu sinni frá árinu 2022 var að ljúka þyrfti endurskoðun bæði málsmeðferðar- og verklagsreglna að teknu tilliti til þeirra breytinga sem orðið hefðu á skipulagi og stjórnun verkefna stofnunarinnar á undanförnum árum. Við eftirfylgni Ríkisendurskoðunar kom fram að drög að nýjum málsmeðferðarreglum væru í vinnslu. Þá væru jafnframt í vinnslu drög að breytingum á reglum um meðferð samruna, drög að nýjum reglum um niðurfellingu og lækkun sekta í samráðsmálum og drög að nýjum reglum um ákvörðun stjórnvaldssekta. Samkeppniseftirlitið hefur endurskoðað innri verklagsreglur og starfar eftir þeim þó að nokkur ákvæði þeirra séu enn í vinnslu, samhliða framangreindri endurskoðun á málsmeðferðarreglum eftirlitsins.
    Fyrir nefndinni kom fram að Samkeppniseftirlitið væri að hefja kynningu á reglunum en vinnan hefði tafist vegna anna. Nefndin tekur undir með Ríkisendurskoðun um að komið hafi verið til móts við þessa úrbótatillögu að hluta. Nefndin hvetur Samkeppniseftirlitið til að ljúka endurskoðuninni sem fyrst og gera reglurnar aðgengilegar á vef stofnunarinnar.

Veltumörk og endurskoðun samrunagjalds.
    Tvær úrbótatillögur Ríkisendurskoðunar kalla á breytingar á samkeppnislögum, annars vegar er varðar veltumörk og hins vegar samrunagjald. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er mælt fyrir um að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á samkeppnislögum í nóvember 2026. Með frumvarpinu er m.a. ætlunin að bregðast við þessum úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar. Nefndin leggur áherslu á að þessi áform atvinnuvegaráðherra nái fram að ganga.

Heimild til skipunar eftirlitsaðila og verklagsreglur um störf þeirra.
    Síðasta úrbótatillaga Ríkisendurskoðunar sem komið hefur verið til móts við að hluta varðar skipun og störf eftirlitsaðila. Að mati Ríkisendurskoðunar þurfti að skýra þá lagaheimild sem lægi til grundvallar skipun eftirlitsaðila og útfæra nánar verklagsreglur um störf þeirra. Við eftirfylgni Ríkisendurskoðunar kom fram að fyrirhugað væri að setja nánari ákvæði um skipun eftirlitsaðila í reglur um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum. Samhliða yrðu verklagsreglur um störf eftirlitsaðila endurskoðaðar. Vinna við þessa endurskoðun hefði tafist vegna anna hjá stofnuninni og nefndin hvetur Samkeppniseftirlitið til að ljúka endurskoðuninni sem fyrst.

Um Samkeppniseftirlitið.
    Nefndin fjallaði sérstaklega um stöðu Samkeppniseftirlitsins og verkefni þess. Nefndin áréttar þau sjónarmið sem fram komu í áliti sínu frá árinu 2023 um að Samkeppniseftirlitið gegni því mikilvæga hlutverki að stuðla að virkri samkeppni í þágu neytenda og hagkvæmni í atvinnulífinu. Á sama tíma hafa verið reifuð sjónarmið um að rétt sé að taka fyrirkomulag málaflokksins til skoðunar, þar á meðal um að tryggja þurfi aðgengi stofnunarinnar að fagþekkingu á þeim ólíku málum sem koma til eftirlitsins. Samkeppniseftirlitið tók til starfa á grundvelli samkeppnislaga, nr. 44/2005. Í greinargerð með þeim lögum kom fram að nauðsynlegt þótti að gera breytingar á fyrirkomulagi samkeppniseftirlits í ljósi fenginnar reynslu af skipulagi á starfi og eftirliti samkeppnisyfirvalda en þá hafði Samkeppnisstofnun, sem var forveri Samkeppniseftirlitsins, starfað í ellefu ár. Nú þegar Samkeppniseftirlitið hefur starfað í 21 ár telur nefndin rétt að atvinnuvegaráðherra taki málaflokkinn og stofnanafyrirkomulag hans til heildarendurskoðunar með það fyrir augum að styrkja enn frekar virka samkeppni í þágu neytenda og atvinnulífs.

    Halla Hrund Logadóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 19. nóvember 2026.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir. Árni Rúnar Þorvaldsson.
Guðmundur Ari Sigurjónsson. Guðmundur Ingi Kristinsson. Gunnar Guðjónsson.
Karólína Helga Símonardóttir . Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.