Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 443  —  139. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um endurskoðun áhættumats erfðablöndunar.


     1.      Hvað líður endurskoðun áhættumats erfðablöndunar sem matvælaráðherra staðfesti 3. mars 2022? Hvenær er gert ráð fyrir því að nýtt áhættumat verði staðfest?
    Um gerð, endurskoðun og staðfestingu áhættumats erfðablöndunar fer samkvæmt 6. gr. a laga um fiskeldi, nr. 71/2008. Í 1. mgr. ákvæðisins segir: „Hafrannsóknastofnun gerir tillögu til ráðherra um það magn frjórra laxa, mælt í lífmassa, sem heimila skal að ala í sjó hverju sinni á tilteknu hafsvæði á grundvelli áhættumats erfðablöndunar.“ Markmið matsins er samkvæmt sama ákvæði að koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofnum. Í 3. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að áhættumat skuli endurskoða svo oft sem þörf þykir en þó eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti. Þar er jafnframt mælt fyrir um að Hafrannsóknastofnun skuli leita ráðgefandi álits samráðsnefndar um fiskeldi áður en stofnunin leggur tillögu sína fyrir ráðherra. Að fengnu áliti nefndarinnar ber stofnuninni að taka rökstudda afstöðu til þess og gera breytingar á tillögunni ef hún telur ástæðu til þess.
    Samráðsnefnd um fiskeldi starfar samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laganna. Samkvæmt því ákvæði er nefndin stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis og felst hlutverk hennar m.a. í að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á.
    Endurskoðun áhættumats erfðablöndunar hefur verið til meðferðar hjá Hafrannsóknastofnun og samráðsnefnd um fiskeldi. Drög að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um eldi á frjóum laxi eru dagsett 25. ágúst 2025 og voru kynnt samráðsnefndinni á fundi hennar 8. september sama ár. Drögin voru í kjölfarið birt á vef Hafrannsóknastofnunar 15. september 2025.
    Samráðsnefndin tók tillöguna til ítarlegrar umfjöllunar með hliðsjón af gildandi lögum, fyrri áhættumötum og fyrirliggjandi vísindagögnum. Við umfjöllunina aflaði nefndin frekari upplýsinga og skýringa frá Hafrannsóknastofnun. Alls hélt nefndin níu fundi vegna málsins og skilaði ráðgefandi áliti sínu til Hafrannsóknastofnunar 27. febrúar 2026.
    Með afhendingu álitsins lauk umfjöllun samráðsnefndarinnar um tillöguna. Eins og áður hefur verið rakið ber Hafrannsóknastofnun í kjölfarið að taka rökstudda afstöðu til álits nefndarinnar og gera breytingar á tillögunni ef stofnunin telur ástæðu til þess. Að þeirri málsmeðferð lokinni skal Hafrannsóknastofnun bera tillöguna undir ráðherra.
    Af framangreindu leiðir að lögin fela Hafrannsóknastofnun ábyrgð á vísindalegum undirbúningi og endanlegri tillögugerð, að fengnu ráðgefandi áliti samráðsnefndar um fiskeldi. Ekki liggja fyrir upplýsingar sem gera kleift að tilgreina hvenær nýtt áhættumat verður lagt fyrir ráðherra. Áður en að því kemur þarf Hafrannsóknastofnun að ljúka framangreindri málsmeðferð.

     2.      Hver er skoðun ráðherra á því að ný rekstrarleyfi til sjókvíaeldis séu enn gefin út á grundvelli áhættumats frá árinu 2022 þótt kveðið sé á um það í lögum um fiskeldi, nr. 71/2008, að áhættumat skuli endurskoða eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti?
    Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar er endurskoðun áhættumats erfðablöndunar háð tiltekinni lögbundinni málsmeðferð. Samkvæmt 4. mgr. 6. gr. a laga um fiskeldi, nr. 71/2008, gildir eldra áhættumat þar til nýtt hefur verið staðfest. Í sömu málsgrein segir jafnframt: „Rekstrarleyfi skulu samrýmast staðfestu áhættumati erfðablöndunar og skal Matvælastofnun, ef við á, breyta gildandi rekstrarleyfum, að gefnum hæfilegum fresti til aðlögunar.“
    Af framangreindu leiðir að áhættumat erfðablöndunar frá árinu 2022 heldur gildi sínu og er áfram lagt til grundvallar við afgreiðslu umsókna um rekstrarleyfi, að uppfylltum öðrum skilyrðum laga. Verði breytingar á heimiluðu umfangi eldis við staðfestingu nýs áhættumats ber Matvælastofnun, ef við á, að breyta gildandi rekstrarleyfum til samræmis við það, að gefnum hæfilegum fresti til aðlögunar. Lögin gera þannig ráð fyrir að nýtt áhættumat geti haft áhrif á þegar útgefin rekstrarleyfi.
    Reglubundin endurskoðun áhættumatsins er engu að síður mikilvæg til að tryggja að ákvarðanir um umfang sjókvíaeldis byggist á bestu fáanlegu vísindalegu þekkingu. Mikilvægt er því að endurskoðuninni verði lokið í samræmi við lögbundna málsmeðferð.

     3.      Hafa forsendur gildandi áhættumats breyst frá því að það var staðfest árið 2022? Ef svo er, hvaða áhrif hafa þær breytingar haft á útgáfu nýrra rekstrarleyfa af hálfu ráðuneytisins?
    Mat á því hvort og að hvaða marki forsendur gildandi áhættumats erfðablöndunar hafi breyst frá staðfestingu þess árið 2022 er í höndum Hafrannsóknastofnunar. Í 2. mgr. 6. gr. a laga um fiskeldi, nr. 71/2008, er kveðið á um að áhættumatið skuli byggt á þáttum eins og áætlun um fjölda strokufiska og endurkomuhlutfalli þeirra, áhrifum hafstrauma og dreifingu fiska, fjarlægð áa frá sjókvíaeldissvæðum, stofnstærð laxa í ám og öðru sem þýðingu kann að hafa. Það er því hlutverk Hafrannsóknastofnunar að meta hvort breytingar hafi orðið á þeim forsendum sem áhættumatið byggist á og hvaða áhrif þær kunni að hafa á niðurstöður þess.
    Hvað varðar útgáfu nýrra rekstrarleyfa er rétt að árétta að afgreiðsla umsókna um rekstrarleyfi er í höndum Matvælastofnunar en ekki ráðuneytisins. Við þá afgreiðslu ber stofnuninni að taka tillit til staðfests áhættumats erfðablöndunar, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um fiskeldi.

     4.      Var við útgáfu nýrra rekstrarleyfa í Seyðisfirði 11. september 2026 lagt sérstakt mat á það hvort rétt væri að bíða endurskoðunar áhættumats erfðablöndunar áður en leyfin yrðu gefin út? Ef svo er, í hverju fólst matið?
    Við útgáfu rekstrarleyfa í Seyðisfirði 11. september 2026 tók Matvælastofnun afstöðu til þess hvort yfirstandandi endurskoðun áhættumats erfðablöndunar gæfi tilefni til að fresta leyfisveitingunum.
    Í greinargerð Matvælastofnunar, sem fylgdi ákvörðuninni, er sérstaklega fjallað um þetta atriði. Þar vísar stofnunin til 6. gr. a laga um fiskeldi, nr. 71/2008, og þess að áhættumat erfðablöndunar sem staðfest var 3. mars 2022 sé enn í gildi. Jafnframt tekur stofnunin fram að í lögum sé ekki mælt fyrir um heimild til að fresta útgáfu rekstrarleyfis með vísan til þess að vænta megi staðfestingar nýs áhættumats erfðablöndunar.
    Í greinargerðinni er einnig fjallað um áhrif þess ef nýtt áhættumat leiðir til breytinga á heimiluðu umfangi eldis. Matvælastofnun bendir á að feli nýtt áhættumat í sér lægri hámarksheimild sé hún bindandi fyrir hlutaðeigandi, að gefnum hæfilegum tíma til aðlögunar. Stofnunin tekur jafnframt fram að rekstrarleyfið verði endurskoðað komi til breytinga á áhættumati erfðablöndunar.
    Af greinargerð Matvælastofnunar verður því ráðið að stofnunin hafi við afgreiðslu leyfanna tekið afstöðu til þess hvort yfirstandandi endurskoðun áhættumatsins gæfi tilefni til að fresta leyfisveitingunni.