Ferill 163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 445 — 163. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um viðtalsbeiðnir.
1. Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
Langflestar viðtalsbeiðnir íslenskra fjölmiðla og hluti viðtalsbeiðna erlendra fjölmiðla berast eftir óformlegum leiðum, í símtölum eða smáskilaboðum til aðstoðarmanna ráðherra eða upplýsingafulltrúa. Ekki er haldin sérstök skrá yfir þær beiðnir. Þegar fjölmiðlar, bæði innlendir og erlendir, óska skriflega eftir viðtali er beiðnin skráð og viðtalið veitt að því gefnu að svigrúm finnist í dagskrá ráðherra. Ef dagskrá leyfir ekki viðtöl er viðkomandi boðið að senda spurningar skriflega sem svarað er á sama máta.
2. Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Sem fyrr segir veitir ráðherra að jafnaði viðtöl þegar óskað er eftir, að því gefnu að svigrúm finnist í dagskrá. Viðkomandi er boðið að senda spurningar skriflega ef dagskrá leyfir ekki viðtöl. Sumir fjölmiðlar þiggja það boð, aðrir falla frá viðtalsbeiðninni.
3. Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Eins og kemur fram í fyrsta svari er ekki haldin sérstök skrá yfir óformlegar viðtalsbeiðnir sem ráðherra berast. Ekki er hægt að svara nákvæmlega um fjölda viðtala sem atvinnuvegaráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu þar sem stór hluti viðtala við ráðherra fer fram eftir ríkisstjórnarfundi þegar ráðherrar veita fjölmiðlum jafnan viðtöl ef aðstæður leyfa. Alls hafa verið haldnir um 150 ríkisstjórnarfundir það sem af er kjörtímabilinu.
Á þessu kjörtímabili hefur atvinnuvegaráðherra veitt fjölmörg fréttaviðtöl við helstu fjölmiðla landsins, verið gestur í fjölmörgum hlaðvörpum og umræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Af innlendum miðlum má nefna RÚV, Morgunblaðið og Mbl.is/Spursmál, Vísi/fréttastofu Sýnar, Bændablaðið, FF7, Sjókastið, Fiskifréttir, Sjómannadagsblaðið og ýmis hlaðvörp.
Meðal erlendra miðla sem hafa sent inn viðtalsbeiðni á kjörtímabilinu eru Nationen, Die Zeit, Frankfurter Allgemeine Zeitung, Berlingske Tidende, Politico, CNBC London, Le Figaro, SRF, The Times og Le Monde. Ráðherra hefur jafnframt veitt erlendum fjölmiðlum viðtöl í vinnuferðum erlendis.