Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 447 — 78. mál.
3. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um barnavernd.
Frá velferðarnefnd.
Umfjöllun nefndarinnar.
Endurskoðun ráðstafana (3. mgr. 40. gr.).
Nefndin fjallaði um breytt skilyrði í 3. mgr. 40. gr. frumvarpsins. Þar er mælt fyrir um að krafa skv. 2. mgr. 40. gr. frumvarpsins um endurskoðun ráðstafana, svo sem um sviptingu forsjár, verði því aðeins tekin til greina að breyting þyki réttmæt vegna verulega breyttra aðstæðna, raski ekki stöðugleika í uppeldi barns og taki mið af hag og þörfum þess. Í gildandi barnaverndarlögum er kveðið á um að breyting þurfi að þykja réttmæt vegna „breyttra aðstæðna“ en ekki „verulega breyttra aðstæðna“ líkt og fyrirliggjandi frumvarp kveður á um.
Í athugasemdum við ákvæðið í greinargerð frumvarpsins kemur fram að 40. gr. frumvarpsins byggist að meginstefnu til á 34. gr. gildandi barnaverndarlaga. Ekki er að finna frekari útskýringar á því hvers vegna ákveðið var að auka við skilyrði 3. mgr. 40. gr. þannig að um verulega breyttar aðstæður þurfi að vera að ræða. Við umfjöllun nefndarinnar þótti mikilvægt að skýra þetta viðbótarskilyrði frumvarpsins og rökin fyrir breytingunni.
Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti, dags. 18. nóvember 2026, er fjallað um frekari skýringar á breyttu skilyrði í 3. mgr. 40. gr. frumvarpsins. Þegar frumvarpið var í samráðsgátt komu fram athugasemdir frá barnaverndarþjónustum um að reglan sem fram kemur í 40. gr. frumvarpsins (34. gr. núgildandi barnaverndarlaga), um endurskoðun ráðstafana, leiddi til þess að aðilar gætu farið fram á endurskoðun á ráðstöfunum án þess að nein gögn bentu til þess að raunverulegt tilefni væri til slíkrar endurskoðunar, sem skapi álag á barnaverndarþjónustur. Ýmsar hugmyndir komu fram í samráðsgátt um hvernig mætti takmarka möguleika foreldra á því að fá fram endurskoðun ráðstafana. Sem dæmi kom fram hugmynd um að lengja frestinn til endurskoðunar sem má finna í síðari málslið 3. mgr. 40. gr. frumvarpsins úr 12 mánuðum í 24 mánuði. Ráðuneytið taldi slíka breytingu ekki tryggja réttaröryggi foreldra nægilega vel.
Rýni ráðuneytisins á ákvæðinu hafi hins vegar leitt til þeirrar niðurstöðu að orðalag ákvæðisins væri frekar opið í samanburði við sambærileg ákvæði. Horfði ráðuneytið til orðalags í 24. gr. stjórnsýslulaga, sem fjallar um endurupptöku, þar sem skilyrði endurupptöku er að atvik hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Tekur ráðuneytið fram að breytingin á 3. mgr. 40. gr. eigi ekki að leiða til þess að réttaröryggi foreldra skerðist en mögulega leiði hún til minna umfangs við vinnslu beiðna um endurskoðun ráðstafana sem ljóst þyki að muni ekki leiða til breytingar á ráðstöfunum.
Nefndin tekur undir með ráðuneytinu um nauðsyn þess að setja takmörk fyrir því hvernig og hversu oft foreldri getur krafist endurskoðunar á ráðstöfun. Að mati nefndarinnar skipta hér mestu máli hagsmunir barnsins og stöðugleiki umhverfis þess. Með vísan til skýringa í umræddu minnisblaði ráðuneytisins telur nefndin ljóst að tilgangur hins aukna skilyrðis um „verulega“ breyttar aðstæður sé ekki að koma í veg fyrir að foreldrar geti fengið fram endurskoðun ráðstafana heldur að gera viðmiðið ögn hærra þannig að barnaverndarþjónustur þurfi ekki að leggja út í mikla vinnu við að endurskoða ráðstöfun þegar ljóst þykir að engar eða afar takmarkaðar breytingar hafi orðið á aðstæðum foreldris.
Breytingartillögur.
Um 1. mgr. 99. gr.
Við umfjöllun um málið kom í ljós ósamræmi í 1. mgr. 99. gr. frumvarpsins þannig að ábyrgðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga varð óljós. Við nánari skoðun kom í ljós að millivísanir í frumvarpinu voru rangar og leggur því nefndin til breytingu þess efnis, þannig að ábyrgð ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar á barnaverndarstarfi sé skýr.
Ákvæði til bráðabirgða III.
Nefndin fjallaði um nauðsyn þess að endurskoðun ráðuneytisins á fósturkafla frumvarpsins færi fram sem allra fyrst. Í ákvæði til bráðabirgða III í frumvarpinu er kveðið á um skýrslu ráðherra til þingsins um framkvæmd laganna tólf mánuðum frá gildistöku þeirra. Er þar kveðið á um að í skýrslunni skuli fjalla um framvindu málaflokksins og hvort tilefni sé til að bæta umgjörð hans, svo sem með breytingum á lögum og reglugerðum, og er þar sérstaklega nefnt að fjalla skuli um framkvæmd ákvæða VIII. kafla um fóstur.
Telur nefndin rétt að bæta við ákvæðið skyldu ráðherra til að hefja vinnu við endurskoðun á VIII. kafla laganna um fóstur og leggur til breytingu þess efnis.
Þá er lögð til ein lagatæknileg breyting sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað tilvísunarinnar „c-, d- og g-liðar“ í 1. mgr. 99. gr. komi: b-, c- og f-liðar.
2. Í stað tilvísunarinnar „1. málsl. 3. mgr.“ í 3. tölul. b-liðar 18. tölul. 112. gr. komi: 1. mgr.
3. Við ákvæði til bráðabirgða III bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Jafnframt skal ráðherra hefja vinnu við endurskoðun VIII. kafla um fóstur.
Þórarinn Ingi Pétursson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 20. nóvember 2026.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form., frsm. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Sigríður Á. Andersen. |
| Árni Helgason. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | Ragna Sigurðardóttir. |
| Rósa Guðbjartsdóttir. | Sigmar Guðmundsson. | Þórarinn Ingi Pétursson. |