Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 448 — 347. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um brottfararstöð, nr. 48/2026 (frestun gildistöku).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar (AÍG, ÁRÞ, GunnG, GrímG, KÁB).
1. gr.
a. Í stað orðanna „1. desember 2026“ í 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. kemur: 1. desember 2027.
b. Á eftir orðunum „12. júní 2026“ í 2. mgr. kemur: m-liður 1. tölul. 22. gr. tekur gildi 1. desember 2026.
c. Í stað orðanna „l-, m- og n-liður“ í 2. mgr. kemur: l- og n-liður.
2. gr.
Greinargerð.
Uppbygging brottfararstöðvar er eitt af forgangsverkefnum dómsmálaráðuneytisins. Í samstarfi við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir (FSRE) og lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ráðuneytið farið í umfangsmikla vinnu við að finna og undirbúa hentugt húsnæði fyrir starfsemina. Húsnæði brottfararstöðvar þarf að uppfylla ríkar kröfur um aðbúnað og öryggi enda verða þar vistaðir frelsissviptir einstaklingar. Þá þarf notkun húsnæðisins að samrýmast gildandi skipulagi í viðkomandi sveitarfélagi og afla þarf nauðsynlegra byggingarleyfa. Mikilvægt er að veita hlutaðeigandi stjórnvöldum og sveitarfélögum nægilegt svigrúm til að gera nauðsynlegar breytingar vegna verkefnisins.
Við undirbúning verkefnisins hefur komið í ljós að ekki verður unnt að ljúka öllum nauðsynlegum þáttum fyrir fullbúna brottfararstöð fyrir 1. desember 2026. Því er nauðsynlegt að fresta gildistökunni á því að brottfararstöð taki til starfa til 1. desember 2027. Fram að þeim tíma gefst svigrúm til að undirbúa starfsemina þannig að hún uppfylli skilyrði laga. Frestun breytir ekki efnisreglum laga um brottfararstöð, nr. 48/2026.
Breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, sem tengjast starfsemi brottfararstöðvar skulu taka gildi um leið og úrræðið tekur til starfa. Umræddar breytingar fela m.a. í sér að tilteknar heimildir sem koma fram í 115. gr. laganna, sem fjalla um handtöku og gæsluvarðhald, falli brott og í þeirra stað komi heimild til vistunar í brottfararstöð.