Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 450  —  348. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum nr. 45/2026, um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (frestun gildistöku).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar (EÁs, KÞS, LRM, SGuðm, SigurjÞ).


1. gr.

    Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2027“ í 2. málsl. 11. gr. laganna kemur: 1. júlí 2027.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að gildistöku tiltekinna ákvæða laga nr. 45/2026, um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuviðskipti), sem eiga að taka gildi 1. janúar 2027, verði frestað til 1. júlí 2027. Um er að ræða ákvæði um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði fyrir raforku og breytingar á viðurlagaheimildum Raforkueftirlitsins.
    Með lögum nr. 45/2026 voru gerðar breytingar á raforkulögum, nr. 65/2003, sem miða að því að styrkja gagnsæi, heilindi og eftirlit á heildsöluorkumarkaði fyrir raforku. Með 6. gr. laganna er tíu nýjum greinum, 20. gr. a – 20. gr. j, bætt við raforkulög. Í 20. gr. a – 20. gr. i er m.a. fjallað um innherjaupplýsingar, bann við innherjasvikum og markaðsmisnotkun, birtingu innherjaupplýsinga og gagnaskil til Raforkueftirlitsins. Í 20. gr. j er ráðherra veitt heimild til að setja reglugerð um framkvæmd ákvæðanna og Raforkueftirlitinu gert að birta leiðbeiningar um reglufylgni. Með 7. gr. laganna er kveðið á um stjórnvaldssektir vegna brota gegn nánar tilgreindum ákvæðum.
    Samkvæmt 1. málsl. 11. gr. laga nr. 45/2026 öðluðust lögin að meginstefnu þegar gildi, en gildistöku 6. og 7. gr. var frestað til 1. janúar 2027, sbr. 2. málsl. sömu greinar. Frá samþykkt laganna hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti unnið að reglugerð um framkvæmd a–i-liðar 6. gr. laganna (20. gr. a – 20. gr. i raforkulaga) og að undirbúningi leiðbeininga Raforkueftirlitsins. Við þá vinnu hefur komið í ljós að markaðsaðilar og eftirlitsaðili þurfa lengri tíma til að undirbúa framkvæmd þessara nýju reglna.
    Drög að reglugerð um framkvæmd a–i-liðar 6. gr. laganna (20. gr. a – 20. gr. i raforkulaga) voru lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda sumarið 2026 og endurskoðuð drög birt að nýju í október. Í umsögnum í samráðsgátt stjórnvalda kom fram almennur stuðningur við markmið regluverksins en jafnframt ábendingar um að fyrirhuguð gildistaka 1. janúar 2027 veitti ekki nægilegt svigrúm til undirbúnings. Einkum var bent á þörf fyrir aðlögun upplýsingakerfa og innri verkferla, tæknilega útfærslu gagnaskila, endanlegar leiðbeiningar og þjálfun starfsfólks. Breytingar á reglugerðardrögunum í kjölfar fyrra samráðsins hafa auk þess kallað á frekari vinnu við leiðbeiningar og tæknilega framkvæmd.
    Í umsögnum hagaðila í samráðsgátt stjórnvalda var lögð áhersla á að markaðsaðilar hefðu raunhæfan tíma til að laga starfsemi sína að nýjum skyldum eftir að efni reglugerðar, leiðbeininga og nauðsynlegra tæknilegra gagna liggur fyrir. Í umsögn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, var dagsetningin 1. júlí 2027 nefnd sem mögulegur gildistökudagur, að því gefnu að nauðsynlegt framkvæmdarefni liggi fyrir eigi síðar en 1. apríl sama ár. Önnur sjónarmið hafa einnig komið fram um lengd aðlögunartíma og áfangaskipta innleiðingu. Við val á gildistökudegi er leitast við að tryggja svigrúm til undirbúnings án þess að fresta markmiðum laganna umfram það sem nauðsynlegt er.
    Við mat á fyrirkomulagi gildistöku má jafnframt líta til framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/256 frá 30. janúar 2026 um gagnaskil á grundvelli REMIT-regluverksins. Í 17. gr. hennar er gert ráð fyrir áfangaskiptri gildistöku einstakra ákvæða og að leiðbeiningar og rafræn gagnasnið verði birt áður en viðkomandi skilaskyldur koma til framkvæmda. Sú tilhögun sýnir mikilvægi þess að tæknilegar forsendur gagnaskila liggi fyrir með hæfilegum fyrirvara. Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpi þessu er ekki lagt til að umrædd framkvæmdarreglugerð verði innleidd í íslenskan rétt.
    Áhersla er lögð á að frestunin nái til 6. og 7. gr. laga nr. 45/2026 í heild, þar á meðal efnislegra skyldna skv. a–i-lið 6. gr. laganna (20. gr. a – 20. gr. i raforkulaga), ákvæðis um reglugerð og leiðbeiningar og breytinga á viðurlagaheimildum Raforkueftirlitsins. Þannig er komið í veg fyrir að tilgreindar skyldur taki gildi áður en aðilar hafa fengið hæfilegt svigrúm til undirbúnings og að tilteknar heimildir til stjórnvaldssekta taki gildi á öðrum tíma en þær skyldur sem þeim er ætlað að tryggja. Frumvarpið hefur ekki að geyma breytingar á efni skyldnanna eða viðurlaga.
    Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti verður unnið að undirbúningi reglugerðar um framkvæmd 6. og 7. gr. og leiðbeininga Raforkueftirlitsins, ásamt nauðsynlegri tæknilegri útfærslu nýrra reglna. Meiri hlutinn gerir ráð fyrir því að efni reglugerðarinnar, leiðbeininga og nauðsynlegra tæknilegra gagna liggi fyrir með nægilegum fyrirvara og er 1. apríl 2027 viðmiðunardagsetning í þeirri vinnu. Sú dagsetning er þó ekki sett fram sem sjálfstætt lagaskilyrði í frumvarpinu heldur til leiðbeiningar fyrir ráðuneytið.