Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 455 — 350. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hversu margir einstaklingar sem dvelja hér á landi á grundvelli verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu njóta jafnframt verndar í öðru ríki? Hversu margir hafa áður notið slíkrar verndar og hvernig er kannað hvort einstaklingar njóti eða hafi notið verndar í öðru ríki?
2. Hvaða reglur gilda um ferðir einstaklinga sem njóta verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu til heimalandsins og hvaða áhrif geta slíkar ferðir haft á dvalarleyfi þeirra og verndarstöðu hér á landi?
3. Frá hvaða héruðum Úkraínu koma þeir einstaklingar sem njóta verndar vegna fjöldaflótta hér á landi, miðað við síðasta fasta búsetustað þeirra fyrir brottför? Svar óskast sundurliðað eftir héruðum og komuári.
4. Hefur verið metið hvort takmarka eigi vernd vegna fjöldaflótta við einstaklinga frá tilteknum búsetusvæðum í Úkraínu, líkt og gert hefur verið í Noregi? Ef svo er, hver er niðurstaða matsins?
5. Hver er atvinnuþátttaka og hvert er hlutfall starfandi meðal fullorðinna sem njóta verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu, sundurliðað eftir kyni, aldri og dvalarlengd? Óskað er eftir upplýsingum um starfshlutfall og þær skilgreiningar sem liggja til grundvallar tölunum.
6. Hvaða rétt eiga börn og fullorðnir sem njóta verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu til framfærslu, húsnæðisstuðnings, heilbrigðisþjónustu og annarrar velferðarþjónustu? Hvaða skilyrði gilda um þann rétt?
7. Liggur fyrir mat á þjónustuþörf einstaklinga sem njóta verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu og heildarkostnaði ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við þá, sundurliðað eftir börnum og fullorðnum og helstu þjónustuþáttum?
Skriflegt svar óskast.