Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 458 — 352. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um gjafsóknarnefnd.
Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
1. Hverjir skipa gjafsóknarnefnd og hver hefur árlegur kostnaður vegna hennar verið síðastliðin fimm ár?
2. Hversu margir starfsmenn starfa hjá nefndinni og hver hefur árlegur kostnaður vegna þeirra verið síðastliðin fimm ár?
3. Hversu margar gjafsóknarbeiðnir hefur nefndin samþykkt árlega síðastliðin fimm ár?
4. Hversu mörgum gjafsóknarbeiðnum hefur nefndin hafnað árlega síðastliðin fimm ár?
5. Í hversu mörgum gjafsóknarmálum hefur árlega fallið dómur um að endurgreiða ríkinu lögmannskostnað síðastliðin fimm ár?
Skriflegt svar óskast.