Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 459  —  353. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um uppbyggingu og rekstur hjúkrunarheimila í Hafnarfirði.

Frá Árna Rúnari Þorvaldssyni.


     1.      Hefur ráðuneytið hafið viðræður við þá aðila sem standa að uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hamranesi í Hafnarfirði og þá sem hafa áform um uppbyggingu hjúkrunarheimila við Hrafnistu og Vatnshlíð?
     2.      Hver er staða viðræðna Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna við áðurnefnda aðila?
     3.      Hver er staða viðræðna Sjúkratrygginga Íslands við rekstraraðila um rekstur áðurnefndra hjúkrunarheimila til framtíðar?


Skriflegt svar óskast.