Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 461  —  355. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um könnun á samstarfi við ríki utan Evrópu um móttöku einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd.


Flm.: Jens Garðar Helgason, Ólafur Adolfsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Gunnarsson, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson.


    Alþingi ályktar að skora á dómsmálaráðherra að kanna möguleika á því að Ísland taki þátt í alþjóðlegu samstarfi við eitt eða fleiri örugg ríki utan Evrópu um móttöku einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðalega vernd og bíða úrlausnar, eiga ekki rétt á alþjóðlegri vernd eða hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni um slíka vernd og sæta brottvísun. Við könnunina verði sérstaklega horft til þess samstarfs sem Austurríki, Danmörk, Grikkland, Holland og Þýskaland hafa ákveðið að hefja við stjórnvöld í Rúanda um uppbyggingu brottfararmiðstöðvar.
    Ráðherra verði falið að leggja mat á eftirfarandi atriði:
     1.      Möguleika á samstarfi. Kannað verði hvort Ísland geti tekið þátt í samstarfi við ríki utan Evrópu um móttöku einstaklinga sem hafa sótt um alþjóðlega vernd og bíða úrlausnar eða hafa fengið endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og eiga ekki lengur lögvarinn rétt til dvalar hér á landi.
     2.      Val á samstarfsríkjum. Greint verði hvaða ríki gætu komið til greina sem samstarfsaðilar með hliðsjón af stjórnskipulagi, öryggi, aðstæðum, innviðum og vilja þeirra til slíks samstarfs.
     3.      Lagalegar forsendur. Metið verði hvernig slíkt fyrirkomulag samræmist íslenskum lögum, Schengen-samstarfinu, alþjóðlegum skuldbindingum Íslands og mannréttindareglum, svo sem flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal meginreglunni um bann við því að senda einstaklinga til ríkis þar sem þeir eiga á hættu ofsóknir eða ómannúðlega meðferð.
     4.      Framkvæmd og ábyrgð. Greint verði hvernig staðið yrði að flutningi einstaklinga, móttöku þeirra, dvalarskilyrðum, eftirliti og ábyrgð íslenskra stjórnvalda í samstarfi við viðtökuríkið.
     5.      Kostnað og fjárhagslegan ávinning. Kostnaður verði metinn við slíkt fyrirkomulag og borinn saman við þann kostnað sem fylgir núverandi móttöku- og framfærslukerfi.
     6.      Áhrif á framkvæmd brottvísana. Metið verði hvort slíkt samstarf geti aukið skilvirkni við framkvæmd endanlegra ákvarðana um brottvísun og dregið úr því að einstaklingar dvelji hér á landi án dvalarheimildar árum saman.
     7.      Réttaröryggi og eftirlit. Tryggt verði að fyrirkomulagið feli í sér einstaklingsbundið mat, aðgang að viðeigandi úrræðum og óháð eftirlit með aðbúnaði og meðferð þeirra einstaklinga sem fluttir yrðu til samstarfsríkis.
    Ráðherra verði jafnframt falið að eiga samtal við stjórnvöld í þeim Evrópuríkjum sem standa að fyrrgreindu samstarfi, kanna möguleika á aðkomu Íslands að því og leita eftir upplýsingum um fyrirhugaða framkvæmd, kostnað og reynslu þeirra af verkefninu.
    Ráðherra leggi niðurstöður könnunarinnar fyrir Alþingi eigi síðar en sex mánuðum eftir samþykkt tillögu þessarar.

Greinargerð.

1. Tilefni og markmið.
    Málefni útlendinga og framkvæmd ákvarðana um alþjóðlega vernd eru meðal þeirra verkefna sem reynt hafa verulega á stjórnvöld í Evrópu á undanförnum árum. Mikilvægt er að tryggja þeim sem þurfa á alþjóðlegri vernd að halda öryggi og réttindi en jafnframt að tryggja að þeir sem ekki eiga rétt á slíkri vernd yfirgefi landið í samræmi við lög og ákvarðanir stjórnvalda.
    Ein helsta áskorunin í framkvæmd útlendingastefnu Evrópuríkja er að endanleg ákvörðun um synjun um alþjóðlega vernd leiðir ekki alltaf til þess að viðkomandi yfirgefi landið. Í mörgum tilvikum reynist erfitt að framkvæma brottvísanir, m.a. vegna þess að upprunaríki neita að taka við eigin ríkisborgurum eða samstarf um endurkomu og móttöku gengur illa.
    Afleiðingin getur orðið sú að einstaklingar sem ekki hafa dvalarheimild dvelji áfram í viðtökuríkinu, jafnvel um árabil, og njóti þar ýmiss konar þjónustu og framfærslu án þess að fyrir liggi heimild til dvalar.

2. Ný nálgun í Evrópu.
    Hinn 16. nóvember 2026 var greint frá því að Austurríki, Danmörk, Grikkland, Holland og Þýskaland hefðu ákveðið að hefja samstarf við Rúanda um svokallaða brottfararmiðstöð. Þar er gert ráð fyrir að einstaklingar sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og ekki er unnt að senda til upprunaríkis síns geti verið fluttir til Rúanda.
    Markmiðið er að finna raunhæfa leið til að framkvæma brottvísanir þegar hefðbundnar leiðir hafa reynst árangurslausar. Samkvæmt fyrirætlunum ríkjanna fimm er stefnt að því að hefja framkvæmd verkefnisins árið 2027.
    Þetta samstarf er hluti af breyttri nálgun í Evrópu þar sem aukin áhersla er lögð á að ákvarðanir um brottvísanir séu ekki aðeins teknar heldur einnig framkvæmdar.
    Ekki er með tillögu þessari lagt til að Ísland taki sjálfkrafa upp sama fyrirkomulag eða velji Rúanda sem samstarfsríki. Aftur á móti er mikilvægt að stjórnvöld fylgist með þessari þróun, kanni möguleika á þátttöku og meti hvort sambærileg úrræði geti nýst hér á landi.

3. Hagsmunir Íslands.
    Stjórnvöld þurfa að hafa raunhæf úrræði til að framfylgja ákvörðunum sínum í útlendingamálum. Það er grundvallaratriði að reglur um alþjóðlega vernd séu skýrar og að stjórnvöld geti tryggt að niðurstöðum málsmeðferðar sé fylgt eftir.
    Ef einstaklingur fær endanlega synjun um alþjóðlega vernd og engin önnur dvalarheimild stendur honum til boða verður að vera hægt að framkvæma brottvísun hans með skilvirkum hætti.
    Jafnframt er mikilvægt að koma í veg fyrir að langvarandi dvöl án dvalarheimildar verði að viðvarandi ástandi þar sem stjórnvöld hafa takmarkaða möguleika til að framfylgja eigin ákvörðunum.
    Með því að kanna samstarf við ríki utan Evrópu gætu stjórnvöld öðlast fleiri úrræði til að takast á við þennan vanda. Slíkt fyrirkomulag gæti einnig dregið úr kostnaði við langvarandi framfærslu einstaklinga sem ekki eiga rétt á alþjóðlegri vernd.

4. Mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Stjórnvöld verða ávallt að virða alþjóðlegar skuldbindingar sínar, þar á meðal flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, mannréttindasáttmála Evrópu og grundvallarregluna um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu.
    Því þarf að gera ríkar kröfur til samstarfsríkja um aðbúnað, eftirlit og réttaröryggi. Áður en slíkt samstarf yrði tekið upp þyrfti að liggja fyrir ítarlegt mat á því hvort viðtökuríkið geti tryggt réttindi þeirra einstaklinga sem þangað yrðu fluttir.
    Markmið tillögunnar er að kanna nýjar leiðir til að tryggja skilvirkari framkvæmd laga um útlendinga án þess að gengið sé á grundvallarmannréttindi eða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.

5. Niðurstaða.
    Stjórnvöld þurfa að fylgjast með breyttri stefnumótun Evrópuríkja í útlendingamálum og vera reiðubúin að skoða nýjar leiðir til að tryggja skilvirka framkvæmd laga.
    Mikilvægt er að Ísland sitji ekki hjá þegar önnur Evrópuríki kanna nýjar leiðir til að takast á við þann vanda sem felst í því að endanlegum ákvörðunum um brottvísanir er ekki fylgt eftir.
    Með tillögunni er dómsmálaráðherra falið að kanna hvort sambærilegt samstarf geti orðið hluti af úrræðum Íslands í útlendingamálum og leggja niðurstöður þess mats fyrir Alþingi.