Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.








Lög



um breytingu á lögum um brottfararstöð,
nr. 48/2026 (frestun gildistöku ).


________




1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „1. desember 2026“ í 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. kemur: 1. desember 2027.
     b.      Á eftir orðunum „12. júní 2026“ í 2. mgr. kemur: m-liður 1. tölul. 22. gr. tekur gildi 1. desember 2026.
     c.      Í stað orðanna „l-, m- og n-liður“ í 2. mgr. kemur: l- og n-liður.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.



_____________







Samþykkt á Alþingi 23. nóvember 2026.