Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 465 — 356. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um skráningu barnaverndarmála og samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hver er staða aðgerðanna „Ný barnaverndargátt“ og „Samhæfðir stafrænir innviðir í þágu farsældar barna“, sem báðar eru merktar „hafið“ í aðgerðaáætlun stjórnvalda um opinbera þjónustu 2026–2029? Hvað felst í stöðulýsingunni, hvaða verkþáttum er lokið, hverjir eru næstu áfangar og hvenær er áætlað að lausnirnar verði teknar í notkun?
2. Felur ný barnaverndargátt eingöngu í sér sameiginlega móttöku barnaverndartilkynninga eða er einnig gert ráð fyrir samræmdri stafrænni málaskrá fyrir barnaverndarmál sem allar barnaverndarþjónustur landsins geti notað?
3. Er fyrirhugað að koma á einu samræmdu landskerfi fyrir skráningu barnaverndarmála eða tengja saman núverandi málaskrár sveitarfélaga? Hvernig verður tryggt að upplýsingar séu skráðar samkvæmt sömu skilgreiningum, á sambærilegu formi og í samræmi við samræmd gæðaviðmið?
4. Hver verður ábyrgðaraðili fyrirhugaðra lausna og hver mun eiga þær og reka? Hvaða hlutverk munu Barna- og fjölskyldustofa, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, sveitarfélögin og Stafrænt Ísland hafa við þróun og rekstur lausnanna og meðferð gagna?
5. Verður Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála tryggður beinn aðgangur að nauðsynlegum gögnum á grundvelli farsældarlaga svo að stofnunin geti sinnt reglubundnu og áhættumiðuðu eftirliti án þess að þurfa að óska sérstaklega eftir gögnum frá hverri barnaverndarþjónustu og fá þau afhent í einstökum skjölum?
6. Hver er áætlaður stofn-, þróunar- og rekstrarkostnaður vegna:
a. nýrrar barnaverndargáttar,
b. samræmdrar skráningar barnaverndarmála,
c. stafrænnar lausnar vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna?
Hvaða fjárheimildir hafa verið veittar til verkefnanna fyrir árin 2026 og 2027 og hver er áætluð fjármögnun þeirra til ársins 2030? Hvernig verður kostnaði skipt milli ríkis og sveitarfélaga?
7. Hefur verið lagt mat á áhrif fyrirhugaðra lausna á persónuvernd og upplýsingaöryggi? Hvernig verður tryggt að farið sé að meginreglum um meðalhóf, aðgangsstýringu, rekjanleika, varðveislu og örugga miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga?
8. Hvaða ávinningi telur ráðherra að samræmd stafræn skráning geti skilað börnum, fjölskyldum og starfsfólki? Hefur verið lagt mat á mögulega hagræðingu, svo sem minni tvískráningu, færri handvirkar gagnabeiðnir, aukið öryggi, betri samfellu í þjónustu og skilvirkara eftirlit?
9. Telur ráðherra að stafræn skráning sé forgangsmál við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og þróun barnaverndarþjónustu? Ef svo er, hvaða mælanlegu markmið og tímasettu áfangar hafa verið skilgreindir til að tryggja framgang þess?
Skriflegt svar óskast.