Ferill 357. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 466  —  357. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um atvinnutengingu VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hversu margir lögaðilar réðu starfsfólk í gegnum atvinnutengingu VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs á ári hverju tímabilið 2020–2026? Svar óskast sundurliðað eftir rekstrarformi lögaðila.
     2.      Hversu margir skjólstæðingar VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs fengu ráðningu í gegnum atvinnutengingu VIRK ár hvert á sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir starfshlutfalli, kyni og fæðingarlandi ráðinna.


Skriflegt svar óskast.