Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 468 — 359. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um framkvæmdir á Reykjanesbraut og Setbergsgöng.
Frá Árna Rúnari Þorvaldssyni.
1. Liggur fyrir valkostagreining af hálfu Vegagerðarinnar vegna framkvæmdar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði sem nefnist Álftanesvegur – Lækjargata í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Ef svo er ekki, hvenær er stefnt að því að ljúka valkostagreiningunni og kynna hana viðkomandi sveitarfélagi?
2. Hefur komið til skoðunar af hálfu ráðuneytisins og Vegagerðarinnar að Setbergsgöng í Hafnarfirði verði á forræði innviðafélagsins Göng og brú ohf. eins og nefnt er sem möguleiki í samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040?
Skriflegt svar óskast.