Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 470  —  79. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (EES-innleiðing).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu.
    Í gildistökuákvæði frumvarpsins er lagt til að gildistaka ákvæðis 2. gr. um starfskjarastefnu og starfskjaraskýrslu verði 1. maí 2027. Einnig er lagt til að breytingar á gildissviði ákvæða um starfskjarastefnu frá því sem er í gildandi lögum taki gildi 1. janúar 2027. Fyrir vikið mun frá og með 1. janúar 2027 ákvæði um starfskjarastefnu eingöngu gilda um félög með hlutabréf sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum markaði og er það í samræmi við gildissvið SRD II. Jafnframt er lagt til að framangreind félög samþykki starfskjarastefnu á aðalfundum vorið 2027 í samræmi við núgildandi 79. gr. a laga um hlutafélög.
    Meiri hlutinn telur að höfðu samráði við ráðuneytið rétt að gera breytingu á gildistökuákvæði 1. málsl. 3. mgr. 12. gr. frumvarpsins þannig að 2. gr. öðlist gildi 1. júlí 2027 í stað 1. maí 2027. Ákvæði 1. mgr. a-liðar 2. gr. öðlast þó áfram gildi 1. janúar 2027 en með breytingunni þrengist gildissvið ákvæða um starfskjarastefnu strax um áramótin. Eins og fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 23. nóvember, byggist breytingartillagan á því að félögum með hlutabréf sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum markaði beri að skila ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs. Reikningsár sumra þessara félaga er frá 1. mars til loka febrúar og má því gera ráð fyrir að aðalfundir þeirra séu haldnir síðar en 1. maí. Með breytingunni er tryggt að aðalfundir allra félaganna á árinu 2027 verði haldnir fyrir gildistöku ákvæðanna. Á þeim fundum fer um starfskjarastefnu eftir gildandi 79. gr. a laganna. Starfskjarastefna og starfskjaraskýrsla samkvæmt nýju ákvæðunum koma þannig fyrst til framkvæmda á aðalfundi á árinu 2028.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað orðsins „maí“ í 1. málsl. 3. mgr. 12. gr. komi: júlí.

    Hildur Sverrisdóttir og Stefán Vagn Stefánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 24. nóvember 2026.


Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Gunnar Guðjónsson.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. Jens Garðar Helgason. Ragna Sigurðardóttir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson.