Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 472  —  360. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um leigutaka á stúdentagörðum.

Frá Snorra Mássyni.


     1.      Hversu margir einstaklingar voru skráðir leigutakar með gildan leigusamning á stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta 1. október ár hvert árin 2010–2026?
     2.      Hvernig skiptust þeir eftir ríkisfangi, hvert var hlutfall hvers ríkisfangs af heildarfjölda leigutaka ár hvert á sama tímabili og hversu margir þessara leigutaka voru skiptinemar? Ef sundurliðun eftir einstökum ríkisföngum liggur ekki fyrir er óskað eftir fjölda og hlutfalli leigutaka með íslenskt ríkisfang, annað ríkisfang eða óskráð ríkisfang, eftir því sem gögn leyfa.
     3.      Hvaða reglur gilda um umsóknarrétt og forgang við úthlutun húsnæðis á stúdentagörðum? Hefur ríkisfang eða lögheimili umsækjanda áhrif á umsóknarrétt eða forgang? Eru skiptinemar á sama biðlista og nemendur í námi til prófgráðu eða er umsóknum þeirra skipað í sérstakan flokk við úthlutun?


Skriflegt svar óskast.