Ferill 174. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 476 — 174. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kerfi í fjarskiptum ríkisins.
1. Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta ráðuneytið og stofnanir þess í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og stofnun.
Fjarskipti tveggja aðila fara um þau fjarskiptakerfi sem fjarskiptaþjónusta beggja aðila byggir á og því er ekki unnt að telja upp með tæmandi hætti hvaða fjarskiptakerfi eða búnaður koma þar við sögu. Birting sundurliðaðra upplýsinga um fjarskiptaþjónustu ráðuneyta og ríkisstofnana og um notkun þeirra á tilteknum farsíma- og gagnaflutningskerfum eða búnaði slíkra kerfa getur haft í för með sér öryggisáhættu. Með vísan til þess verður hvorki upplýst hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi eru notuð né hverjir framleiðendur búnaðar kerfanna eru.
2. Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta félög sem ríkið á alfarið eða fer með ráðandi eignarhluta í í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og félagi.
Eigendastefna ríkisins felur í sér að ríkið sem eigandi hefur ekki afskipti af daglegum rekstrarákvörðunum á borð við val á fjarskiptakerfum. Ákvarðanir um viðskiptasambönd og hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi eru nýtt í fjarskiptum eru í höndum stjórna og stjórnenda hvers félags, í samræmi við lög og þær öryggiskröfur sem við eiga í rekstrinum. Í 2. tölul. er þannig ekki leitað svara um hvernig félögin sinna lögbundnu hlutverki sínu, veita almenningi opinbera þjónustu eða fara með opinbert vald og telst hún því ekki varða opinbert málefni í skilningi 2. mgr. 49. gr. laga um þingsköp Alþingis. Jafnframt kunna sömu sjónarmið að eiga við og þau sem reifuð eru í svari við 1. tölulið.