Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 477 — 361. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um lokun prófstöðvar ökuprófa á Hvolsvelli.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hver er afstaða ráðherra til lokunar prófstöðvar ökuprófa á Hvolsvelli?
2. Hver tók ákvörðun um að hætta að bjóða upp á próftöku á Hvolsvelli?
3. Var ákvörðun um lokun tekin í samráði við hagaðila, þ.e. Ökukennarafélag Íslands, sveitarstjórnir, íbúa á svæðinu eða aðra?
Skriflegt svar óskast.