Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 496 — 365. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um fýsileika sameiningar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf.
Frá Gunnari Guðjónssyni.
Hyggst ráðherra athuga fýsileika sameiningar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. með tilliti til fyrirmynda á borð við Tonhalle-hljómsveitina í Zürich og Tonhalle í Zürich; Fílharmóníuhljómsveit Lúxemborgar og Fílharmóníuna í Lúxemborg; og Fílharmóníuhljómsveit Berlínar og Fílharmóníuna í Berlín, eftir atvikum í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra og Reykjavíkurborg?
Skriflegt svar óskast.