Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 497  —  366. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fýsileika sameiningar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf.

Frá Gunnari Guðjónssyni.


    Hyggst ráðherra athuga fýsileika sameiningar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. með tilliti til fyrirmynda á borð við Tonhalle-hljómsveitina í Zürich og Tonhalle í Zürich; Fílharmóníuhljómsveit Lúxemborgar og Fílharmóníuna í Lúxemborg; og Fílharmóníuhljómsveit Berlínar og Fílharmóníuna í Berlín, eftir atvikum í samráði við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Reykjavíkurborg?


Skriflegt svar óskast.