Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 2  —  2. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027.

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.


I. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009.
1. gr.

    Í stað „28,30 kr.“, „24,25 kr.“, „33,10 kr.“ og „28,45 kr.“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: 29,75 kr.; 25,50 kr.; 34,80 kr.; og: 29,95 kr.

II. KAFLI
Breyting á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025.
2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Fjárhæð gjalds á hvern kílómetra samkvæmt akstursmæli vegna aksturs ökutækis sem fellur undir 2.–4. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal vera eftirfarandi:
Leyfð heildarþyngd, kg Kílómetragjald, kr. Leyfð heildarþyngd, kg Kílómetragjald, kr.
3.500 8,05 18.001–19.000 31,70
3.501–5.000 11,40 19.001–20.000 33,10
5.001–6.000 12,10 20.001–21.000 34,50
6.001–7.000 12,80 21.001–22.000 36,00
7.001–8.000 13,60 22.001–23.000 37,55
8.001–9.000 14,40 23.001–24.000 39,15
9.001–10.000 15,25 24.001–25.000 40,85
10.001–11.000 16,20 25.001–26.000 42,60
11.001–12.000 17,15 26.001–27.000 44,10
12.001–13.000 18,90 27.001–28.000 45,60
13.001–14.000 20,75 28.001–29.000 47,20
14.001–15.000 22,85 29.001–30.000 48,85
15.001–16.000 25,10 30.001–31.000 50,60
16.001–17.000 27,65 31.001 og yfir 52,35
17.001–18.000 30,40
     b.      Í stað „4,15 kr.“ í 3. mgr. kemur: 4,80 kr.
     c.      Í stað „1.390 kr.“ í 4. mgr. kemur: 1.610 kr.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 11. gr. laganna:
     a.      1. málsl. orðast svo: Greiða skal fast akstursgjald af ökutækjum skv. 1. mgr. út frá eftirfarandi forsendum:
Leyfð heildarþyngd, kg Fast akstursgjald, 10 dagar eða skemur Fast akstursgjald, 11–20 dagar Fast akstursgjald, 21 dagur eða lengur
             0 – 3.500 16.105 kr. 24.160 kr. 28.185 kr.
             3.501 – 5.000 22.830 kr. 34.240 kr. 39.950 kr.
             5.001 – 6.000 24.195 kr. 36.295 kr. 42.340 kr.
             6.001 – 7.000 25.630 kr. 38.450 kr. 44.855 kr.
             7.001 – 8.000 27.185 kr. 40.775 kr. 47.575 kr.
             8.001 – 9.000 28.805 kr. 43.210 kr. 50.415 kr.
             9.001 – 9.999 30.545 kr. 45.715 kr. 53.455 kr.
     b.      Í stað „8.300 kr.“, „12.450 kr.“ og „14.525 kr.“ í 2. málsl. kemur: 9.620 kr.; 14.425 kr.; og: 16.830 kr.

III. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995.
4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:
     a.      Í stað „156,45 kr.“ í 1. tölul. kemur: 164,60 kr.
     b.      Í stað „142,50 kr.“ í 2. tölul. kemur: 149,90 kr.
     c.      Í stað „192,85 kr.“ í 3. tölul. kemur: 202,90 kr.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 9. gr. laganna:
     a.      Í stað „642,25 kr.“ í 1. tölul. kemur: 675,65 kr.
     b.      Í stað „35,70 kr.“ í 2. og 3. tölul. kemur: 37,55 kr.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:
     a.      Í stað „806,70 kr.“ í 1. tölul. kemur: 848,65 kr.
     b.      Í stað „44,75 kr.“ í 2. tölul. kemur: 47,10 kr.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. d laganna:
     a.      Í stað „8,30 kr.“ í 1. tölul. kemur: 8,75 kr.
     b.      Í stað „12,45 kr.“ í 2. tölul. kemur: 13,10 kr.
     c.      Í stað „15,55 kr.“ í 3. tölul. kemur: 16,35 kr.
     d.      Í stað „20,75 kr.“ í 4. tölul. kemur: 21,85 kr.
     e.      Í stað „41,50 kr.“ í 5. og 6. tölul. kemur: 43,65 kr.
     f.      Í stað „62,20 kr.“ í 7. tölul. kemur: 65,45 kr.

IV. KAFLI

Breyting á lögum um bifreiðagjald, nr. 39/1988.

8. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Í stað „21.260 kr.“ og „188 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 22.365 kr.; og: 198 kr.
     b.      Í stað „21.260 kr.“ og „154 kr.“ í 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur: 22.365 kr.; og: 162 kr.
     c.      Í stað „73.795 kr.“, „3,10 kr.“ og „115.460 kr.“ í 4. mgr. kemur: 77.630 kr.; 3,26 kr.; og: 121.465 kr.

V. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999.
9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
     a.      Í stað „4.961.000 kr.“ í inngangsmálslið 1. tölul. og 7. og 8. tölul. 1. mgr. kemur: 5.184.000 kr.
     b.      Í stað „0,03140%“ í a-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,02950%.
     c.      Í stað „0,050%“ í b-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0460%.
     d.      Í stað „0,3500%“ og „4.961.000 kr.“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 0,330%; og: 5.184.000 kr.
     e.      Í stað „0,1550%“ og „1.102.000 kr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 0,170%; og: 1.152.000 kr.
     f.      Í stað „2.756.000 kr.“ í 4. tölul. 1. mgr. kemur: 2.880.000 kr.
     g.      5. tölul. 1. mgr. orðast svo: Þjónustuveitendur sýndareigna með starfsleyfi skv. 63. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1114, sbr. lög um markaði fyrir sýndareignir, nr. 101/2025, og útgefendur eignatengdra tóka með starfsleyfi skv. 21. gr. reglugerðarinnar, sbr. sömu lög, skulu greiða fastagjald sem nemur 2.880.000 kr.
     h.      Í stað „0,0280%“ og „2.756.000 kr.“ í 6. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0260%; og: 2.880.000 kr.
     i.      1. og 2. málsl. 9. tölul. 1. mgr. orðast svo: Lífeyrissjóðir skulu samtals greiða 0,0055% af hreinni eign til greiðslu lífeyris. Greiða skal eftirlitsgjaldið sem 6.915.000 kr. fastagjald vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris undir fjörutíu milljörðum króna, 11.785.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá fjörutíu milljörðum til og með hundrað og áttatíu milljörðum króna, 15.200.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá hundrað og áttatíu milljörðum til og með sex hundruð milljörðum króna, 19.000.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá sex hundruð milljörðum til og með eitt þúsund milljörðum króna og 22.800.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris þar yfir.
     j.      Í stað „0,0080%“ og „4.961.000 kr.“ í 12. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0074%; og: 5.184.000 kr.
     k.      Í stað „1.102.000 kr.“ í 13. og 14. tölul. 1. mgr. og 9.-11. mgr. kemur: 1.152.000 kr.
     l.      Í stað „1.654.000 kr.“ í 15. tölul. 1. mgr. kemur: 1.728.000 kr.
     m.      2. mgr. orðast svo:
                  Einstaklingar og lögaðilar, aðrir en fjármálafyrirtæki, sem veita gjaldeyrisskiptaþjónustu, sbr. 35. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, skulu greiða fastagjald sem nemur 1.152.000 kr.
     n.      Í stað orðanna „helming eftirlitsgjalds“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: lágmarksgjald.
     o.      Í stað „2.243.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: 2.344.000 kr.
     p.      Í stað „590.000 kr.“, „1.570.000 kr.“, „4.711.000 kr.“, „8.637.000 kr.“ og „12.433.000 kr.“ í 6. mgr. kemur: 616.000 kr.; 1.641.000 kr.; 4.923.000 kr.; 9.026.000 kr.; og: 12.993.000 kr.
     q.      Í stað „197.000 kr.“, „330.000 kr.“, „725.000 kr.“, „1.179.000 kr.“, „1.704.000 kr.“ og „1.964.000 kr.“ í 7. mgr. kemur: 205.000 kr.; 345.000 kr.; 757.000 kr.; 1.232.000 kr.; 1.780.000 kr.; og: 2.052.000 kr.
     r.      Í stað „3.432.000 kr.“, „1.716.000 kr.“ og „572.000 kr.“ í 8. mgr. kemur: 3.586.000 kr.; 1.793.000 kr.; og: 598.000 kr.
     s.      Í stað „0,00180%“ og „500.000 kr.“ í 13. og 14. mgr. kemur: 0,00168%; og: 1.000.000 kr.
     t.      Í stað „535.000 kr.“ í 15. og 16. mgr. kemur: 559.000 kr.
     u.      Í stað „801.000 kr.“ tvívegis í 17. mgr. kemur: 837.000 kr.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      Í stað „3.320.000 kr.“ í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 3.469.000 kr.
     b.      Í stað orðanna „og rafeyrisfyrirtækja 1.320.000 kr.“ í 2. tölul. 2. mgr. kemur: útgefenda eignatengdra tóka og rafeyrisfyrirtækja 1.379.000 kr.
     c.      Í stað „340.000 kr.“ í 3. tölul. 2. mgr. og 3. mgr. kemur: 355.000 kr.
     d.      Í stað „1.860.000 kr.“ í 1. tölul. 4. mgr. kemur: 1.944.000 kr.
     e.      Í stað „900.000 kr.“ í 2. tölul. 4. mgr. kemur: 941.000 kr.
     f.      Í stað „220.000 kr.“ í 1. tölul. 5. mgr. kemur: 230.000 kr.
     g.      Í stað „340.000 kr.“ í 2. tölul. 5. mgr. kemur: 355.000 kr.

VI. KAFLI
Breyting á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara, nr. 166/2011.
11. gr.

    Í stað „0,0065%“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 0,006944%.

VII. KAFLI
Breyting á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.
12. gr.

    9. gr. laganna orðast svo:
    Framkvæmdasjóður aldraðra skal stuðla að sjálfbærum rekstri fasteigna undir öldrunarþjónustu um land allt.
    Fjármagni úr Framkvæmdasjóði aldraðra skal varið til að standa undir leigugreiðslum á fasteignum sem nýttar eru undir hjúkrunarheimili. Einnig er heimilt að nýta fjármagn sjóðsins til annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu í landinu, svo sem vegna viðhalds á húsnæði dagdvalar og dvalar- og hjúkrunarheimila.
    Skilyrði fyrir greiðslu húsaleigu er að ekki sé einnig veittur styrkur úr Framkvæmdasjóði aldraðra skv. 2. mgr. eða annar styrkur frá ríkinu til að standa undir viðhaldi eða endurbótum húsnæðis.
    Umsóknir um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra skv. 2. mgr. skulu berast til ráðuneytisins eða annars aðila sem ráðuneytið ákveður.

13. gr.

    Í stað „14.614 kr.“ í 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: 15.374 kr.

14. gr.

    2. og 3. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 11. gr. laganna falla brott.

VIII. KAFLI
Breyting á lögum um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987.
15. gr.

    Í stað orðanna „tekjuskatti álögðum samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt“ í 1. gr. laganna kemur: skatttekjum ríkissjóðs.

16. gr.

    2. gr. laganna orðast svo:
    Ríkissjóður skal skila 15. hvers mánaðar fjárhæð er rennur til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Fjárhæðin skal vera 1.270 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri sem skráður er í viðkomandi söfnuð eða félag í lok næstliðins árs á undan gjaldári.
    Fjárhæðin uppfærist ár hvert í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga.

17. gr.

    Í stað orðsins „tekjuskatti“ í fyrirsögn I. kafla laganna kemur: skatttekjum ríkissjóðs.

IX. KAFLI
Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.
18. gr.

    Við 4. mgr. 20. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárhæð losunargjalds skv. 2. mgr. vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2027 skal vera 11.035 kr. fyrir hvert tonn.

X. KAFLI
Breyting á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013.
19. gr.

    Í stað „22.200 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 23.400 kr.

XI. KAFLI
Breyting á lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012.
20. gr.

    Í stað „2026“ í ákvæði til bráðabirgða III í lögunum kemur: 2027.

XII. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
21. gr.

    Í stað „1,0%“ í 1. málsl. 5. tölul. 1. mgr. 66. gr. laganna kemur: 0,5%.

22. gr.

    Í stað „1,0%“ í 2. málsl. 1. mgr. A-liðar 67. gr. laganna kemur: 0,5%.

23. gr.

    Í stað „2026“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða LXXXII í lögunum kemur: 2027.

24. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 5. tölul. 1. mgr. 66. gr. og 2. málsl. 1. mgr. A-liðar 67. gr. skal framleiðnivöxtur til útreiknings skattleysis- og þrepamarka í tekjuskatti einstaklinga vera 0% á tekjuárinu 2027.

XIII. KAFLI
Breyting á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.
25. gr.

    Í stað „15.000 kr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 18.000 kr.

26. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. a laganna:
     a.      Í stað „65 kr./kg“ á eftir „umbúðir gerðar úr pappa og pappír“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 68 kr./kg.
     b.      Í stað „15 kr./kg“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 18 kr./kg.
     c.      Í stað „65 kr./kg“ á eftir ,,umbúðir gerðar úr plasti“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 125 kr./kg.
     d.      Á eftir ,,4823.9006“ í töflu í 6. mgr. koma eftirfarandi tollskrárnúmer:
                  1.      6305.3200
                  2.      6305.3300

27. gr.

    Í stað ,,65 kr./kg“ í viðauka I við lögin kemur: 125 kr./kg.

28. gr.

    Í stað ,,88 kr./kg“ í viðauka IV við lögin kemur hvarvetna: 95 kr./kg.

29. gr.

    Í stað ,,45 kr./kg“ í viðauka VIII við lögin kemur hvarvetna: 50 kr./kg.

30. gr.

    Í stað viðauka X við lögin kemur nýr viðauki svohljóðandi:

Færanlegar rafhlöður og rafgeymar.

    Á færanlegar rafhlöður <5 kg og einnota rafrettur, sem flokkast undir neðangreind tollskrárnúmer skal leggja úrvinnslugjald sem hér segir:
2404.1211 281 kr./kg
2404.1212 281 kr./kg
8506.1010 9 kr./stk.
8506.1090 149 kr./kg
8506.3000 918 kr./kg
8506.4000 918 kr./kg
8506.5000 281 kr./kg
8506.6000 918 kr./kg
8506.8000 149 kr./kg
8506.9000 149 kr./kg
8507.2021 9 kr./kg
8507.2022 12 kr./kg
8507.3050 332 kr./kg
8507.5050 149 kr./kg
8507.6050 149 kr./kg
8507.8050 149 kr./kg
8549.1100 332 kr./kg
8549.1200 332 kr./kg
8549.1300 332 kr./kg
8549.1400 332 kr./kg
8549.1900 332 kr./kg

31. gr.

    Í stað ,,250 kr./tæki“ í viðauka XI A við lögin kemur hvarvetna: 350 kr./tæki.

32. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XIX við lögin:
     a.      Í stað „5 kr./kg“ kemur tvívegis: 30 kr./kg.
     b.      Í stað „11 kr./kg“ kemur hvarvetna: 30 kr./kg.
     c.      Í stað „24 kr./kg“ kemur hvarvetna: 35 kr./kg.
     d.      Í stað „38 kr./kg“ kemur hvarvetna: 52 kr./kg.

XIV. KAFLI
Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
33. gr.

    Við 12. tölul. 3. mgr. 14. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Enn fremur er heimilt að fella niður gjald vegna umsóknar um dvalarleyfi þegar um er að ræða styrkþega sem kemur hingað til lands til að sinna námi eða fræðastörfum á vegum Menntastofnunar Íslands og Bandaríkjanna. Það sama gildir um nánustu aðstandendur sem fylgja styrkþega hingað til lands.

34. gr.

    5. tölul. 2. mgr. 14. gr. c laganna fellur brott.

XV. KAFLI
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.
35. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „1. september 2025 til og með 31. desember 2026“ í 1. málsl. kemur: 1. janúar 2027 til og með 31. desember 2027.
     b.      Í stað orðanna „5,8% hækkun 1. september 2025 og 5,2% hækkun 1. janúar 2026“ kemur: 7,3% hækkun 1. janúar 2027.

36. gr.

    Í stað „og 2026“ í ákvæði til bráðabirgða XV í lögunum kemur: 2026 og 2027.

XVI. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.
37. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða III í lögunum:
     a.      Í stað orðanna „0,193% af gjaldstofni skv. III. kafla á árunum 2024 og 2025“ í 1. mgr. kemur: 0,181% % af gjaldstofni skv. III. kafla á árinu 2026.
     b.      Í stað orðanna „árunum 2025 og 2026“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: árinu 2027.

38. gr.

    Í stað „og 2026“ í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 2026 og 2027.

XVII. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
39. gr.

    13. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.

40. gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „35%“ í 1. og 3. málsl. 2. mgr. 42. gr. laganna kemur: 20%.

XVIII. KAFLI
Breyting á lögum um gistináttaskatt og innviðagjald, nr. 87/2011.
41. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Í stað „800 kr.“ í 1. tölul. 4. mgr. kemur: 840 kr.
     b.      Í stað „400 kr.“ í 2. tölul. 4. mgr. og 5. mgr. kemur: 420 kr.

42. gr.

    Í stað „1.600 kr.“ í 2. mgr. 3. gr. a laganna kemur: 1.680 kr.

XIX. KAFLI
Breyting á lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, nr. 84/2023.
43. gr.

    Í stað „31. desember 2026“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 31. desember 2027.

XX. KAFLI
Breyting á lögum um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, nr. 137/2019.
44. gr.

    2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: Einungis er heimilt að selja eða ráðstafa eignum og tekjum sjóðsins til annarra verkefna en heyra undir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun með heimild í fjárlögum.

XXI. KAFLI
Breyting á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004.
45. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 3. gr. a laganna:
     a.      Í stað „1,01 kr.“ og „0,52 kr.“ í 1. málsl. kemur: 1,06 kr. og 0,55 kr.
     b.      Í stað „0,34 kr.“ og „0,17 kr.“ í 2. málsl. kemur: 0,36 kr. og 0,18 kr.

XXII. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
46. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 31. gr. laganna:
     a.      Í stað „0,9 aurum“ í 1. tölul. kemur: 1,116 aurum.
     b.      Í stað „2,26 aurum“ í 2. tölul. kemur: 2,802 aurum.

XXIII. KAFLI
Breyting á lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki, nr. 155/2010.
47. gr.

    Í stað „0,145%“ í 4. gr. laganna kemur: 0,254%.

48. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.
    Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 21. og 22. gr. gildi 1. janúar 2028.

Greinargerð.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.