Ferill 198. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 205 — 198. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fjölmiðla og lögum um Fjarskiptastofu (niðurlagning fjölmiðlanefndar).
Flm.: Bergþór Ólason, Hilmar Garðars Þorsteinsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorgrímur Sigmundsson.
I. KAFLI
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011.
1. gr.
a. 22. tölul. fellur brott.
b. 24. tölul. orðast svo: Hljóðmiðlun er línuleg hljóðvarpsþjónusta sem fjölmiðlaveita býður almenningi á grundvelli dagskráráætlunar.
c. 25. tölul. fellur brott.
d. Á eftir 45. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu: Ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/13/ESB frá 10. mars 2010 um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu ásamt ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á tilskipun 2010/13/ESB um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
2. gr.
Lög þessi gilda ekki um hlaðvörp eða aðra miðlun hljóðefnis eftir pöntun sem ekki er jafnframt hluti af línulegri hljóðvarpsþjónustu fjölmiðlaveitu. Slík miðlun telst ekki fjölmiðlaþjónusta í skilningi laga þessara. Um starfsemina fer eftir almennum lögum.
3. gr.
b. Í stað orðsins „fjölmiðlanefndar“ í b-lið 3. mgr. 6. gr. laganna og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur: Fjarskiptastofu.
4. gr.
a. (7. gr.)
Fjarskiptastofa.
Fjarskiptastofa annast þá stjórnsýslu og það eftirlit sem henni eru sérstaklega falin samkvæmt lögunum.
Við framkvæmd verkefna skv. 2. mgr. er ráðherra óheimilt að gefa stofnuninni fyrirmæli um rannsókn, málsmeðferð eða niðurstöðu einstakra mála.
Ákvarðanir Fjarskiptastofu samkvæmt lögum þessum sæta kæru til úrskurðarnefndar fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála.
Við framkvæmd eftirlits með viðskiptaboðum sem falla jafnframt undir eftirlit annarra stjórnvalda samkvæmt sérlögum skal Fjarskiptastofa leita samstarfs við þau stjórnvöld. Leitast skal við að fela Neytendastofu eftirlit þar sem um almenn neytendaverndarsjónarmið er að ræða fremur en sérstakar skyldur sem leiða af lögum þessum.
b. (8. gr.)
Verkefni Fjarskiptastofu.
a. annast eftirlit sem stofnuninni er sérstaklega falið með lögum þessum,
b. annast leyfisveitingar vegna hljóð- og myndmiðlunar sem krefst tíðniúthlutunar,
c. halda þær skrár yfir fjölmiðlaveitur og mynddeiliveitur sem íslenska ríkinu er skylt að halda samkvæmt EES-samningnum,
d. annast samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA og sambærileg stjórnvöld annarra EES-ríkja vegna lögbundinna eftirlitsverkefna,
e. hafa eftirlit með ákvæðum um evrópskt myndefni, myndmiðlun eftir pöntun, aðgengi fatlaðs fólks að myndmiðlun og vernd barna að því marki sem slíkt leiðir af EES-skuldbindingum,
f. annast eftirlit með mynddeiliveitum skv. V. kafla A,
g. annast skýrslugjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA sem leiðir af tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu,
h. taka þátt í samstarfi eftirlitsstjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu eftir því sem skylt er samkvæmt EES-samningnum,
i. sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru sérstaklega falin samkvæmt lögum þessum. Fjarskiptastofu er ekki heimilt á grundvelli þessarar greinar að hafa almennt eftirlit með ritstjórnarlegu efni fjölmiðla umfram það sem skýr lagaheimild stendur til.
c. (9. gr.)
Upplýsinga- og miðlalæsi.
Ráðuneytinu er heimilt að fela Menntamálastofnun, háskóla eða öðrum opinberum aðila einstök verkefni samkvæmt þessari grein.
Ekki skal af hálfu stjórnvalda við framkvæmd þessarar greinar lagt mat á efni, skoðanir eða ritstjórnarstefnu einstakra fjölmiðla. Jafnframt skal á grundvelli þessarar greinar ekki flokka fjölmiðla, lögmætt fjölmiðlaefni eða skoðanir eftir áreiðanleika, gæðum eða eftir því hvort um upplýsingaóreiðu sé að ræða.
d. (10. gr.)
Málsmeðferð.
Heimild skv. 1. mgr. tekur ekki til almennrar könnunar á efni fjölmiðils eða fjölmiðla nema rökstuddur grunur sé fyrir hendi um brot gegn ákvæði sem stofnunin hefur lögbundið eftirlit með.
Fjarskiptastofa skal leitast við að ljúka málum með áliti eða ákvörðun svo fljótt sem verða má.
e. (11. gr.)
Upplýsingaöflun.
Kröfu um upplýsingar skal fylgja rökstuðningur fyrir nauðsyn þeirra og skal gæta meðalhófs.
Heimild greinarinnar tekur ekki til upplýsinga um heimildarmenn fjölmiðla eða gagna sem njóta verndar skv. 25. gr. laganna.
f. (12. gr.)
Rannsóknarheimildir.
Heimild til að gera athuganir á starfsstöð eða leggja hald á gögn skal aðeins beitt vegna alvarlegra ætlaðra brota og við framkvæmd aðgerða skal fylgja ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.
g. (13. gr.)
Upplýsingaskipti og samstarf.
Við upplýsingaskipti skal gæta þagnarskyldu, persónuverndar og verndar heimildarmanna.
5. gr.
Skráning hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Hið sama gildir um línulega hljóðvarpsþjónustu eftir því sem nauðsynlegt er vegna framkvæmdar laga þessara.
Hlaðvörp og önnur sjálfstæð miðlun hljóðefnis eftir pöntun eru ekki skráningarskyld samkvæmt þessari grein.
Tilkynning skal aðeins hafa að geyma þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til þess að ákvarða lögsögu og gera stjórnvöldum kleift að sinna lögbundnu eftirliti.
Ráðherra setur nánari reglur um skráningu samkvæmt þessari grein.
6. gr.
Skýrslugjöf vegna hljóð- og myndmiðlunar.
Upplýsingaskylda samkvæmt þessari grein skal ekki ná lengra en nauðsynlegt er til þess að uppfylla slíkar skuldbindingar.
Ráðherra ákveður með reglugerð þær upplýsingar sem veita skal.
7. gr.
8. gr.
Vernd heimildarmanna.
Heimildavernd skv. 1. mgr. verður einungis aflétt með samþykki viðkomandi heimildarmanns eða samkvæmt ákvörðun dómstóls á grundvelli laga um meðferð sakamála.
Við rannsókn eða meðferð máls er óheimilt að krefjast aðgangs að gögnum eða upplýsingum sem geta, ein sér eða ásamt öðrum upplýsingum, leitt til þess að heimildarmaður verði auðkenndur, nema úrskurður dómara liggi fyrir.
Réttur samkvæmt þessari grein er óháður skráningu fjölmiðils hjá stjórnvaldi.
9. gr.
a. 2. og 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði þessarar greinar veitir stjórnvaldi ekki sjálfstæða heimild til að leggja mat á fréttamat, hlutlægni, nákvæmni, val viðmælenda eða framsetningu skoðana fjölmiðils.
c. Fyrirsögn greinarinnar verður: Lýðræðislegar grundvallarreglur og eftirlit.
10. gr.
11. gr.
Eftirlit með þeim ákvæðum VI. kafla sem varða almenna neytendavernd, þar á meðal bann við duldum auglýsingum og almennar reglur um viðskiptahætti, færist til Neytendastofu, nema ákvæðið leiði sérstaklega af reglum EES um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Ráðherra skal með reglugerð kveða á um nánari verkaskiptingu Fjarskiptastofu og Neytendastofu.
12. gr.
Bann við miðlun og afturköllun miðlunarleyfis.
13. gr.
14. gr.
Ákvarðanir úrskurðarnefndar fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála eru fullnaðarúrlausnir innan stjórnsýslunnar. Nú vill aðili ekki una ákvörðun nefndarinnar og getur hann þá höfðað mál til ógildingar henni. Mál skal höfðað innan sex mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum nema svo standi á sem kveðið er á um í 6. mgr. Að kröfu aðila getur úrskurðarnefnd fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum ákvörðunar, að öllu leyti eða að hluta, sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð eigi síðar en sjö dögum eftir birtingu ákvörðunar.
15. gr.
Mál vegna skráningar hlaðvarpa sem er ólokið við gildistöku laga þessara falla niður.
Óinnheimtar stjórnvaldssektir sem einvörðungu byggjast á vanrækslu á skráningu hlaðvarps skulu ekki innheimtar eftir gildistöku laga þessara.
II. KAFLI
Breyting á lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.
16. gr.
17. gr.
Sjálfstæði við eftirlit með hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Ráðherra er óheimilt að gefa fyrirmæli um meðferð eða niðurstöðu einstaks máls.
18. gr.
19. gr.
Ákvarðanir Fjarskiptastofu samkvæmt fjölmiðlalögum skulu sæta kæru til sérstakrar nefndar, úrskurðarnefndar fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála. Hið sama á við um ákvarðanir stjórnvalda samkvæmt lögum um póstþjónustu. Við skipan nefndarinnar skal tryggja að við meðferð fjölmiðlamála sé fyrir hendi sérþekking á stjórnsýslurétti, fjölmiðlarétti og tjáningarfrelsi.
20. gr.
Við gildistöku laga þessara er fjölmiðlanefnd lögð niður.
21. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Lög um Ríkisútvarpið, nr. 23/2013:
a. Í stað orðsins „Fjölmiðlanefnd“ í 1. málsl. 1. mgr. 15. gr. og hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Fjarskiptastofa.
b. Í stað orðsins „fjölmiðlanefndar“ sex sinnum í 16. gr. laganna kemur: Fjarskiptastofu.
2. Lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum, nr. 62/2006:
a. Í stað orðsins „Fjölmiðlanefnd“ tvívegis í 1. mgr., tvívegis í 2. mgr., 4. mgr. og tvívegis í 6. mgr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Fjarskiptastofa.
b. Í stað orðsins „fjölmiðlanefndar“ í 1. og 2. málsl. 3. mgr. 5. gr. laganna kemur: Fjarskiptastofu.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að fjölmiðlanefnd verði lögð niður og stjórnsýsla á sviði fjölmiðla einfölduð. Markmiðið er þríþætt: Í fyrsta lagi að uppfylla áfram þær skýru skuldbindingar sem hvíla á íslenska ríkinu samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, einkum á sviði hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Í öðru lagi að fella niður sérstaka stjórnsýslu, skráningarskyldu, upplýsingagjöf og eftirlit sem byggist á íslenskum viðbótarkröfum en ekki skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum þar sem ekki verður séð að sérstök þörf sé fyrir slíkt eftirlit. Í þriðja lagi að draga skýrari mörk milli annars vegar opinbers eftirlits með tilteknum, lögbundnum þáttum fjölmiðlastarfsemi og hins vegar ritstjórnarlegs frelsis, skoðanamyndunar og frjálsrar miðlunar efnis.
Fjölmiðlanefnd var sett á fót með lögum nr. 38/2011. Hún tók við verkefnum útvarpsréttarnefndar en fékk jafnframt mun víðara hlutverk. Í frumvarpinu frá 2010 var beinlínis gert ráð fyrir því að hið nýja stjórnvald hefði eftirlit ekki aðeins með hefðbundinni hljóð- og myndmiðlun heldur „öllum öðrum fjölmiðlum“. Samhliða var innleidd almenn skráningarskylda allra fjölmiðla sem féllu undir lögin. Sú skylda var nýmæli og í greinargerð var skýrt tekið fram að hún fæli í sér auknar kvaðir á fjölmiðla. Helstu rökin voru að auðvelda stjórnvöldum að hafa yfirsýn yfir markaðinn og sinna eftirliti.
Á þeim 15 árum sem síðan eru liðin hefur fjölmiðlaumhverfið gjörbreyst. Einstaklingar geta nú miðlað hljóðefni, myndböndum, pistlum og fréttaskýringum með lítilli fyrirhöfn og án þeirrar stofnanauppbyggingar sem einkenndi fjölmiðla þegar lögin voru sett. Er því enn mikilvægara en áður að löggjafinn dragi skýr mörk um það hvenær slík miðlun verði að leyfis- eða eftirlitsskyldri starfsemi ríkisins.
2. Sjálfstæði eftirlitsins.
Við setningu laganna var sjálfstæði fjölmiðlanefndar meðal meginraka fyrir stofnun hennar. Jafnframt var þó í greinargerð frumvarpsins fjallað um þann almenna ókost sjálfstæðra stjórnsýslunefnda að þær draga úr beinni ábyrgð ráðherra og þar með möguleikum Alþingis á að kalla ráðherra til ábyrgðar.
Síðan þá hafa EES-reglur er varða hljóð- og myndmiðlunarþjónustu tekið breytingum. Með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 voru gerðar skýrari kröfur um sjálfstæði þess stjórnvalds sem annast eftirlit með hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Þær reglur voru innleiddar hér á landi árið 2024. Af því leiðir þó ekki að sérstök fimm manna fjölmiðlanefnd verði að starfa á Íslandi. Tilskipunin heimilar að sama sjálfstæða eftirlitsstofnun fari með fleiri en einn málaflokk. Fjarskiptastofa er þegar sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem sinnir viðamiklu EES-bundnu eftirliti.
Frumvarpið byggist á því að þau verkefni sem raunverulega krefjast sjálfstæðs eftirlitsaðila færist til Fjarskiptastofu.
3. Ekki öll núverandi verkefni þurfa að flytjast.
Niðurlagning stjórnvalds á ekki sjálfkrafa að þýða að öll verkefni sem heyrðu undir það þurfi að færast til annarrar ríkisstofnunar.
Í 10. gr. laga um fjölmiðla, nr. 38/2011, er fjölmiðlanefnd falið mjög almennt hlutverk að efla miðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði, standa vörð um tjáningarfrelsi, fylgjast með þróun fjölmiðlamarkaðar og safna upplýsingum. Hluti þessara verkefna leiðir af skýrum EES-skuldbindingum, svo sem tiltekin skýrslugjöf, skrár yfir hljóð- og myndmiðlunarþjónustu og mynddeiliveitur og eftirlit með þeim reglum sem innleiða hljóð- og myndmiðlunartilskipunina.
Önnur verkefni eru ákvörðun íslenska löggjafans um umfang stjórnsýslu á þessu sviði. Frumvarpið byggist á því að slíkum verkefnum skuli ekki sjálfkrafa haldið áfram. Þannig er lagt til að almennu hlutverki eftirlitsaðila við að „fylgjast með stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði“ verði ekki haldið áfram sem sjálfstæðu eftirlitsverkefni. Þá er almenn árleg upplýsingaöflun hjá fjölmiðlum takmörkuð við þær upplýsingar sem þarf til að uppfylla þær skyldur um skýrslugjöf sem leiðir af EES-samningnum eða öðrum lögbundnum skyldum. Jafnframt er lagt til að sérstök staðfesting stjórnvalds á reglum fjölmiðla um ritstjórnarlegt sjálfstæði falli niður. Við setningu laganna gerði Árvakur hf., útgefandi Morgunblaðsins, athugasemd við þennan þátt. Félagið taldi að frumvarpið legði rangan skilning í hugtakið ritstjórnarlegt sjálfstæði og að ákvæðið gæti haft áhrif á innra réttarsamband útgefanda, ritstjóra og starfsmanna. Sú gagnrýni verður að skoðast í ljósi þess að opinbert eftirlit með fjölmiðlum snertir tjáningarfrelsi og ritstjórnarlegt sjálfræði með öðrum hætti en almennt atvinnueftirlit.
Árvakur vakti jafnframt athygli á því að tenging heimildarverndar við skráningu hjá fjölmiðlanefnd gæti leitt til þeirrar óeðlilegu niðurstöðu að réttur starfsmanns til að vernda heimildarmann réðist af því hvort viðkomandi fjölmiðill hefði uppfyllt skráningarskyldu sína gagnvart stjórnvöldum. Með frumvarpinu er tekið undir þá grundvallarafstöðu að vernd heimildarmanna eigi að byggjast á eðli starfseminnar en ekki leyfi eða skráningu hjá stjórnvaldi.
4. Hlaðvörp.
Sérstök ástæða er til að endurskoða gildissvið laganna gagnvart hlaðvörpum. Í frumvarpinu frá árinu 2010 var hlaðvarp skilgreint sem form „hljóðmiðlunar eftir pöntun“. Í greinargerðinni var aðeins sagt að hlaðvarp teldist til slíkrar miðlunar og þyrfti ekki frekari skýringar. Á þessari flokkun byggist nú sú framkvæmd fjölmiðlanefndar að sjálfstætt hlaðvarp geti talist fjölmiðill, verði skráningarskylt hjá hinu opinbera og sæti stjórnvaldsviðurlögum ef skráning fer ekki fram.
Í apríl 2026 birti nefndin uppfærðar leiðbeiningar þar sem fram kemur að nefndin meti hvert hlaðvarp sérstaklega og líti m.a. til þess hvort fjárhagslegur ávinningur sé af starfseminni. Í ágúst sama ár beitti nefndin þessari heimild með ákvörðun um 500.000 kr. stjórnvaldssekt vegna óskráðs hlaðvarps. Slíkt opinbert skráningar- og eftirlitskerfi fyrir hlaðvörp leiðir ekki af núgildandi hljóð- og myndmiðlunartilskipun EES. Í formála hennar kemur sérstaklega fram að hugtakið „audiovisual“ taki til hreyfimynda með eða án hljóðs en ekki til hljóðsendinga eða útvarpsþjónustu. Það er því sjálfstæð ákvörðun íslenska löggjafans að láta fjölmiðlalög ná með þessum hætti yfir hlaðvörp. Frumvarpið leggur til að horfið verði frá þeirri ákvörðun.
Hlaðvarpsstjórnandi ber eftir breytinguna sömu almennu ábyrgð og aðrir borgarar og fyrirtæki samkvæmt almennum hegningarlögum, skaðabótalögum, persónuverndarlögum, höfundalögum, lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og öðrum sérlögum. Frumvarpið felur því ekki í sér að hlaðvarpsstarfsemi verði undanþegin lögum. Það felur hins vegar í sér að ekki verði sérstakt opinbert fjölmiðlaeftirlit með slíkri tjáningu, ekki verði krafist skráningar hlaðvarps hjá fjölmiðlayfirvaldi og vanræksla á slíkri skráningu geti ekki varðað dagsektum, stjórnvaldssektum eða refsingu.
Rétt er þó að geta þess að reglugerð (ESB) 2024/1083, svonefnd European Media Freedom Act, notar víðara hugtak um fjölmiðlaþjónustu og nefnir þar sérstaklega atvinnulega hlaðvarpsstarfsemi. Reglugerðin hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn. Samkvæmt EEA-Lex er hún enn til skoðunar og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar liggur ekki fyrir. Komi reglugerðin síðar inn í EES-samninginn þarf að meta hvaða breytingar hún kallar á í íslenskum lögum.
5. Skráningarskylda.
Almenn skráningarskylda allra fjölmiðla var nýmæli á Íslandi árið 2011. Í frumvarpinu var hún réttlætt einkum með því að fjölmiðlanefnd þyrfti yfirsýn yfir alla starfsemi til þess að sinna hinu víðtæka eftirlitshlutverki sínu. Frumvarp þetta snýr þeirri röksemd við. Sé umfang eftirlitsins minnkað og afmarkað við tiltekin lögbundin verkefni hverfur að sama skapi þörfin fyrir að allir sem miðla efni til almennings sæti skráningarskyldu hjá stjórnvaldi. Skráning skal því aðeins fara fram þar sem hennar er þörf til að framfylgja tiltekinni laga- eða EES-skyldu.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Loks er lagt til að skilgreiningu á tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu verði bætt við lögin, með vísan til tilskipunar 2010/13/ESB, eins og henni var breytt með tilskipun (ESB) 2018/1808. Breytingin miðar að því að tryggja skýrleika og samræmi í tilvísunum til tilskipunarinnar í lögunum.
Um 2. gr.
Hlaðvörp og önnur miðlun hljóðefnis eftir pöntun falla utan gildissviðs laganna nema slík miðlun sé jafnframt hluti af línulegri hljóðvarpsþjónustu fjölmiðlaveitu. Sjálfstæð hlaðvarpsstarfsemi telst því ekki fjölmiðlaþjónusta í skilningi laganna og verður ekki háð þeim skyldum eða því stjórnsýslueftirliti sem leiðir sérstaklega af fjölmiðlalögum.
Ákvæðið tengist sérstaklega 5. og 15. gr. frumvarpsins um brottfall skráningarskyldu hlaðvarpa, meðferð mála og stjórnvaldssekta sem byggjast á þeirri skyldu.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Í 7. gr. laganna, verði frumvarpið að lögum, er mælt fyrir um stjórnsýslulega stöðu Fjarskiptastofu og verkaskiptingu hennar og ráðherra.
Sjálfstæði Fjarskiptastofu er sérstaklega tryggt við framkvæmd verkefna sem leiðir af reglum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Ráðherra er þar af leiðandi óheimilt að gefa stofnuninni fyrirmæli um rannsókn, málsmeðferð eða niðurstöðu einstakra mála. Þá eru ákvarðanir stofnunarinnar samkvæmt lögunum kæranlegar til úrskurðarnefndar fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála.
Loks er lögð áhersla á skýra verkaskiptingu Fjarskiptastofu og annarra stjórnvalda vegna viðskiptaboða. Þegar álitaefni lýtur fyrst og fremst að almennri neytendavernd er miðað við að Neytendastofa fari með eftirlitið, en Fjarskiptastofa sinni því sértæka eftirliti sem leiðir af reglum tilskipunar um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Í 8. gr. laganna eru verkefni Fjarskiptastofu samkvæmt fjölmiðlalögum talin sérstaklega upp. Þar er einkum um að ræða verkefni sem tengjast framkvæmd EES-skuldbindinga á sviði hljóð- og myndmiðlunarþjónustu, svo sem eftirlit, leyfisveitingar, skráningarskyldur, samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA og stjórnvöld annarra EES-ríkja, eftirlit með tilteknum efnislegum skyldum og skýrslugjöf.
Heimild til að sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru sérstaklega falin samkvæmt lögunum felur ekki í sér almenna eða sjálfstæða eftirlitsheimild. Slík verkefni verða að eiga sér stoð í öðrum ákvæðum laganna. Sérstaklega er tekið fram að verkefnaákvæðið heimili ekki almennt eftirlit með ritstjórnarlegu efni fjölmiðla. Eftirlit sem beinist að slíku efni verður því að eiga sér skýra lagastoð.
Samkvæmt 9. gr. laganna verður stefnumótun og skýrslugjöf um upplýsinga- og miðlalæsi sem íslenska ríkinu ber að sinna samkvæmt tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu á ábyrgð ráðuneytisins. Einstök framkvæmdarverkefni má fela Menntamálastofnun, háskóla eða öðrum opinberum aðila. Slík ráðstöfun breytir ekki þeirri ábyrgð sem ráðuneytinu er falin samkvæmt ákvæðinu. Við framkvæmd verkefna á sviði upplýsinga- og miðlalæsis er stjórnvöldum óheimilt að leggja mat á efni, skoðanir eða ritstjórnarstefnu einstakra fjölmiðla. Þar með eru sett skýr efnisleg mörk á það hvernig slíkum verkefnum verður sinnt.
Í 10. gr. eru settar reglur um upphaf og meðferð eftirlitsmála hjá Fjarskiptastofu. Erindum vegna ætlaðra brota á þeim ákvæðum sem stofnunin hefur eftirlit með skal beint til hennar. Stofnuninni er jafnframt veitt svigrúm til að meta hvort erindi gefi tilefni til meðferðar og til að forgangsraða málum. Frumkvæðisheimild Fjarskiptastofu er bundin við tilvik þar sem málsmeðferð er nauðsynleg vegna lögbundins eftirlitshlutverks hennar. Heimildin nær ekki til almennrar könnunar á efni fjölmiðils eða fjölmiðla nema fyrir liggi rökstuddur grunur um brot gegn ákvæði sem stofnunin hefur lögbundið eftirlit með. Með þessu eru sérstök mörk sett frumkvæðiseftirliti sem beinist að fjölmiðlaefni.
Í 11. gr. eru upplýsingaöflunarheimildir Fjarskiptastofu afmarkaðar við gögn og upplýsingar sem eru nauðsynleg og hafa skýr tengsl við rannsókn tiltekins máls eða framkvæmd tiltekinnar lögbundinnar eftirlitsskyldu. Almenn upplýsingasöfnun án tengsla við afmarkað eftirlitsverkefni verður því ekki reist á ákvæðinu. Stofnuninni ber að rökstyðja nauðsyn upplýsingakröfu og gæta meðalhófs við beitingu heimildarinnar. Upplýsingar um heimildarmenn fjölmiðla og gögn sem njóta verndar skv. 25. gr. eru sérstaklega undanskilin upplýsingaskyldunni.
Í 12. gr. eru rannsóknarheimildir vegna ætlaðra brota á ákvæðum VI. kafla um viðskiptaboð og fjarkaup bundnar við þær heimildir sem sérstaklega eru tilgreindar í lögunum. Athugun á starfsstöð og haldlagning gagna koma aðeins til álita vegna alvarlegra ætlaðra brota og að fenginni þeirri heimild samkvæmt lögum um meðferð sakamála sem við á.
Loks er í 13. gr. mælt fyrir um upplýsingaskipti Fjarskiptastofu við stjórnvöld annarra EES-ríkja og Eftirlitsstofnun EFTA að því marki sem þau leiða af skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum. Við upplýsingaskiptin ber að gæta reglna um þagnarskyldu og persónuvernd. Vernd heimildarmanna er jafnframt sérstaklega áréttuð.
Um 5. gr.
Áður en starfsemi um myndmiðlunarþjónustu sem fellur undir gildissvið hljóð- og myndmiðlunartilskipana EES-samningsins hefst skal tilkynna starfsemina til Fjarskiptastofu, nema starfsemin sé leyfisskyld skv. 16. gr. laganna. Tilkynningarskyldan gerir stjórnvöldum kleift að ákvarða lögsögu og sinna því eftirliti sem leiðir af reglum tilskipana um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Línuleg hljóðvarpsþjónusta er skráningarskyld að því marki sem slíkt er nauðsynlegt vegna framkvæmdar laganna. Með línulegri hljóðvarpsþjónustu er átt við hefðbundna útvarpsstarfsemi þar sem hljóðefni er miðlað til almennings samkvæmt dagskráráætlun og hlustendur taka við útsendingu á sama tíma. Sem dæmi um slíka þjónustu má nefna útvarpsstöðvar á borð við Bylgjuna, Útvarp Sögu og Lindina. Orðalagið felur í sér efnislega takmörkun á skráningarskyldunni og verður ekki skýrt þannig að almenn skráningarskylda hljóðmiðlunar verði leidd af ákvæðinu án tengsla við tiltekið lögbundið verkefni.
Sérstaklega er tekið fram að hlaðvörp og önnur sjálfstæð miðlun hljóðefnis eftir pöntun séu ekki skráningarskyld. Reglan er í samræmi við breytingu á gildissviði laganna samkvæmt 2. gr. frumvarpsins.
Þá eru sett mörk við því hvaða upplýsinga má krefjast við skráningu. Tilkynning um starfsemi skal aðeins hafa að geyma þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að ákvarða lögsögu og gera stjórnvöldum kleift að sinna lögbundnu eftirliti. Reglugerðarheimild ráðherra verður að skýra innan þeirra marka og getur því ekki orðið grundvöllur víðtækari upplýsingasöfnunar en lagaákvæðið sjálft heimilar.
Fyrirsögn IV. kafla laganna breytist til samræmis við hið nýja fyrirkomulag.
Um 6. gr.
Fjölmiðlaveitu sem miðlar myndefni verður skylt að veita Fjarskiptastofu þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að íslenska ríkið geti fullnægt skýrslugjafarskuldbindingum sínum samkvæmt tilskipunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Upplýsingaskyldan er þannig tengd við tiltekinn og afmarkaðan stjórnsýslulegan tilgang.
Sérstaklega er tekið fram að upplýsingaskyldan megi ekki ná lengra en nauðsynlegt er til að uppfylla slíkar skuldbindingar. Í því felst efnisleg takmörkun á heimild stjórnvalds til upplýsingaöflunar.
Ráðherra skal ákveða með reglugerð hvaða upplýsingar veita skuli. Reglugerðarheimildina verður að skýra til samræmis við framangreint skilyrði um nauðsyn og getur reglugerð ekki mælt fyrir um víðtækari upplýsingaskyldu en stoð er fyrir í lagaákvæðinu.
Um 7. gr.
Brottfall ákvæðisins er þáttur í þeirri heildarendurskoðun á stjórnsýslu og eftirliti samkvæmt lögunum sem frumvarpið felur í sér. Verkefni og kvaðir sem ekki verður haldið áfram samkvæmt hinu nýja og afmarkaðra eftirlitskerfi flytjast þannig ekki sjálfkrafa til annars stjórnvalds við niðurlagningu fjölmiðlanefndar.
Þær skyldur og valdheimildir sem eiga sér sérstaka stoð í 24. gr. gildandi laga falla því niður við gildistöku laganna, nema annar lagagrundvöllur standi til þeirra.
Um 8. gr.
Sá sem við fréttaöflun eða gerð fjölmiðlaefnis fær upplýsingar frá heimildarmanni sem óskað hefur nafnleyndar má ekki upplýsa hver heimildarmaðurinn er eða afhenda gögn sem upplýsa um hann. Verndin tekur þannig bæði til beinnar upplýsingagjafar um auðkenni heimildarmanns og til afhendingar gagna sem með öðrum hætti geta leitt til þess að hann verði auðkenndur.
Undantekningar frá verndinni eru bundnar við samþykki heimildarmanns eða ákvörðun dómstóls á grundvelli laga um meðferð sakamála. Stjórnvald getur því ekki með almennri upplýsingakröfu samkvæmt fjölmiðlalögum krafist upplýsinga sem njóta verndar samkvæmt ákvæðinu.
Sérstaklega er kveðið á um að við rannsókn eða meðferð máls sé óheimilt að krefjast aðgangs að gögnum eða upplýsingum sem geta leitt til þess að heimildarmaður verði auðkenndur, nema að undangengnum úrskurði dómara. Verndin tekur því bæði til upplýsinga sem auðkenna heimildarmann með beinum hætti og upplýsinga sem einar sér eða í samhengi við önnur gögn geta leitt til þess að unnt verði að bera kennsl á hann. Sem dæmi um slíkar upplýsingar má nefna tölvupóstsamskipti, símtalaskrár, lýsigögn rafrænna samskipta eða upplýsingar um tímasetningar og staðsetningar samskipta sem kunna, einar sér eða ásamt öðrum upplýsingum, að leiða til þess að heimildarmaður verði auðkenndur. Með ákvæðinu er leitast við að koma í veg fyrir að vernd heimildarmanna verði sniðgengin með kröfum um afhendingu gagna eða upplýsinga við rannsókn eða meðferð máls. Ákvæðið felur þannig í sér sérstaka málsmeðferðartryggingu sem miðar að því að tryggja að aðgangur að upplýsingum sem geta leitt til auðkenningar heimildarmanns sé háður úrlausn dómara.
Verndin nær einnig til annarra sem vegna starfs síns eða tengsla við gerð eða miðlun efnis fá vitneskju um heimildarmann. Hún ræðst því ekki eingöngu af formlegu starfsheiti þess sem tók við upplýsingunum heldur af tengslum við fréttaöflun, gerð eða miðlun viðkomandi efnis.
Sérstaka þýðingu hefur sú regla að heimildarvernd sé óháð skráningu fjölmiðils hjá stjórnvaldi. Rétturinn ræðst af efnislegum skilyrðum ákvæðisins en ekki af því hvort fjölmiðill hafi fullnægt stjórnsýslulegri skráningarskyldu.
Um 9. gr.
Ákvæðið veitir stjórnvaldi ekki sjálfstæða heimild til að leggja mat á fréttamat, hlutlægni, nákvæmni, val viðmælenda eða framsetningu skoðana fjölmiðils. Ef stjórnvöldum er samkvæmt öðrum ákvæðum laganna falið eftirlit með tiltekinni háttsemi eða efni verður umfang þess eftirlits að ráðast af þeirri sérstöku lagaheimild.
Reglunni er ætlað að koma í veg fyrir að almenn ákvæði um lýðræðislegar grundvallarreglur verði túlkuð sem sjálfstæður grundvöllur almenns gæða- eða efnislegs eftirlits með ritstjórnarlegum ákvörðunum fjölmiðla.
Fyrirsögn greinarinnar verður „Lýðræðislegar grundvallarreglur og eftirlit“ til samræmis við þessa afmörkun.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Þannig eru dregin skýrari mörk milli almenns neytenda- og markaðseftirlits annars vegar og sértæks eftirlits vegna hljóð- og myndmiðlunarþjónustu hins vegar. Þar sem álitaefni lýtur að almennum neytendaverndarsjónarmiðum er gert ráð fyrir að það sæti eftirliti þess stjórnvalds sem almennt fer með slíkan málaflokk.
Undantekning gildir þegar viðkomandi ákvæði leiðir sérstaklega af reglum tilskipana um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Eftirlit með slíkum sértækum skyldum verður áfram hjá Fjarskiptastofu að því marki sem stofnuninni er falið það samkvæmt lögunum.
Ráðherra skal setja reglugerð um nánari verkaskiptingu Fjarskiptastofu og Neytendastofu. Reglugerðarheimildina verður að skýra í samræmi við þá efnislegu skiptingu eftirlitsheimilda sem lögin sjálf mæla fyrir um.
Um 12. gr.
Bann við miðlun kemur aðeins til álita þegar heimild til þess leiðir skýrlega af ákvæði fjölmiðlalaga sem innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum. Almenn verkefna- eða eftirlitsákvæði laganna geta því ekki ein og sér verið grundvöllur ákvörðunar um bann við miðlun.
Jafnframt verður beiting slíks úrræðis að fullnægja kröfum um meðalhóf. Við mat á því hvort bann verði lagt á þarf því meðal annars að líta til þess hvort markmiði viðkomandi lagaákvæðis verði náð með vægara úrræði og hvort það rask sem bann hefur í för með sér sé í eðlilegu samræmi við það markmið sem að er stefnt.
Ákvæðinu er ætlað að afmarka sérstaklega beitingu eins íþyngjandi úrræðis laganna og undirstrika að bann við miðlun verði ekki reist á almennri eða rúmri túlkun eftirlitshlutverks stjórnvalds.
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Jafnframt er lagt til að úrskurðarnefndinni verði heimilt, að kröfu aðila, að fresta réttaráhrifum ákvörðunar sinnar, að öllu leyti eða að hluta, sé talin ástæða til þess. Málshöfðun fyrir dómstólum hefur því ekki sjálfkrafa þau áhrif að framkvæmd ákvörðunar frestist. Með heimildinni er hins vegar tryggt að unnt sé, þegar aðstæður gefa tilefni til, að fresta réttaráhrifum ákvörðunar á meðan aðili leitar réttar síns. Krafa um frestun skal berast úrskurðarnefndinni eigi síðar en sjö dögum eftir birtingu ákvörðunar.
Að öðru leyti er ekki lagt til að hróflað verði við þeirri sérreglu um frestun réttaráhrifa sem fram kemur í 6. mgr. 55. gr.
Um 15. gr.
Ólokin mál vegna skráningar hlaðvarpa falla niður við gildistöku laganna. Eftir það verður því ekki haldið áfram stjórnsýslumeðferð máls sem byggist á þeirri skráningarskyldu sem frumvarpið fellir niður.
Óinnheimtar stjórnvaldssektir skulu jafnframt ekki innheimtar eftir gildistöku ef þær byggjast einvörðungu á vanrækslu á skráningu hlaðvarps. Orðið „einvörðungu“ felur í sér mikilvæga afmörkun. Hafi ákvörðun um viðurlög jafnframt verið reist á öðru sjálfstæðu broti tekur ákvæðið ekki sjálfkrafa til hennar í heild.
Reglurnar ber að skoða í samhengi við 5. gr. frumvarpsins, enda byggjast þær á því að sú starfsemi sem um ræðir skuli ekki lengur sæta sérstakri skráningarskyldu samkvæmt fjölmiðlalögum.
Um 16. gr.
Við 2. gr. þeirra laga bætist framkvæmd þeirra ákvæða laga um fjölmiðla sem stofnuninni er sérstaklega falið að annast. Orðalagið „sérstaklega falið“ afmarkar verkefnið við þær valdheimildir og skyldur sem leiða af einstökum ákvæðum fjölmiðlalaga.
Ekki verður því leidd almenn eftirlitsheimild á sviði fjölmiðla af verkefnaákvæði laga um Fjarskiptastofu einu saman. Um efnislegt umfang stjórnsýslu og eftirlits stofnunarinnar fer samkvæmt fjölmiðlalögum og þeim sérstöku lagaheimildum sem þar er að finna.
Um 17. gr.
Fjarskiptastofa skal við framkvæmd þeirra verkefna vera sjálfstæð gagnvart ráðherra og öðrum stjórnvöldum. Ráðherra er jafnframt óheimilt að gefa fyrirmæli um meðferð eða niðurstöðu einstakra mála.
Reglan tekur til sjálfstæðis stofnunarinnar við stjórnsýslulega meðferð einstakra mála. Með breytingunni er sjálfstæði Fjarskiptastofu við framkvæmd verkefna samkvæmt tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu tryggt með sérstakri reglu í lögum um Fjarskiptastofu. Ákvæðið kemur þó ekki í veg fyrir að ákvarðanir stofnunarinnar verði kærðar til þar til bærrar úrskurðarnefndar, eftir því sem lög mæla fyrir um. Í því felst breyting frá því fyrirkomulagi sem gilt hefur um fjölmiðlanefnd, en ákvarðanir hennar sættu ekki stjórnsýslukæru heldur var unnt að bera þær undir dómstóla. Sjálfstæði Fjarskiptastofu við meðferð og úrlausn einstakra mála útilokar þannig ekki lögbundna endurskoðun ákvarðana hennar á stjórnsýslustigi.
Um 18. gr.
Nefndin nefnist eftir breytinguna úrskurðarnefnd fjarskipta-, póst- og fjölmiðlamála. Samsvarandi orðabreytingar eru gerðar í þeim ákvæðum laga um Fjarskiptastofu þar sem nefndin er nefnd.
Um er að ræða lagatæknilega breytingu sem leiðir af auknu málefnasviði nefndarinnar.
Um 19. gr.
Sérstaklega er áskilið að við skipan nefndarinnar sé tryggt að við meðferð fjölmiðlamála sé fyrir hendi sérþekking á stjórnsýslurétti, fjölmiðlarétti og tjáningarfrelsi. Krafan tekur mið af sérstöðu fjölmiðlamála, þar sem ákvarðanir stjórnvalda geta varðað bæði almenn stjórnsýsluréttarleg álitaefni og réttindi sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt reglum um tjáningarfrelsi.
Áskilnaðurinn um sérþekkingu hefur sjálfstæða þýðingu við skipan nefndarinnar þegar hún fer með fjölmiðlamál og er honum ætlað að tryggja að við úrlausn þeirra sé fyrir hendi viðeigandi lögfræðileg þekking á þeim réttarsviðum sem reynir sérstaklega á.
Um 20. gr.
Við gildistökuna falla niður þau verkefni, þær skyldur og þær eftirlitsheimildir sem frumvarpið afnemur. Þau verkefni sem áfram eiga að vera á hendi stjórnvalda færast jafnframt til Fjarskiptastofu, ráðuneytisins, Neytendastofu eða annarra stjórnvalda eftir því sem einstök ákvæði laganna mæla fyrir um.
Sami gildistökudagur fyrir niðurlagningu fjölmiðlanefndar og flutning þeirra verkefna sem áfram verða við lýði tryggir samfellu í þeirri lögbundnu stjórnsýslu sem haldið verður áfram. Um meðferð ólokinna mála og gagna fer jafnframt samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða og 15. gr. frumvarpsins eftir því sem við á.
Um 21. gr.
Orðalagið afmarkar verkefnaflutninginn við þau eftirlitsverkefni sem ekki eru felld niður.
Um umfang eftirlits Fjarskiptastofu fer samkvæmt þeim efnisákvæðum laga um Ríkisútvarpið og fjölmiðlalaga sem við eiga.
Umfang verkefna og valdheimilda þess stjórnvalds sem tekur við verkefninu ræðst af þeim efnisákvæðum sem um málaflokkinn gilda.
Um ákvæði til bráðabirgða I.
Reglan tekur mið af því að þegar tiltekin starfsemi fellur ekki lengur undir sérstakt regluverk fjölmiðlalaga sé ekki haldið áfram stjórnsýslumeðferð sem eingöngu byggist á því regluverki.
Við mat á því hvort mál falli undir ákvæðið ræður úrslitum hvort sú starfsemi sem málið varðar falli áfram undir gildissvið fjölmiðlalaga eftir gildistöku breytinganna.
Ákvæðið ber að skýra í samhengi við sérreglu 15. gr. frumvarpsins um ólokin mál vegna skráningar hlaðvarpa og óinnheimtar stjórnvaldssektir vegna vanrækslu á slíkri skráningu.
Um ákvæði til bráðabirgða II.
Afhending gagna tekur mið af verkefnaflutningnum. Hún felur ekki í sér sjálfstæða heimild Fjarskiptastofu til að nýta gögn í öðrum tilgangi en leiðir af þeim lögbundnu verkefnum sem stofnunin tekur við og þeim almennu reglum sem gilda um meðferð stjórnvaldsupplýsinga.
Önnur stjórnsýslugögn fjölmiðlanefndar skulu varðveitt í samræmi við lög um opinber skjalasöfn. Um varðveislu, skil og eftir atvikum aðgang að þeim fer því samkvæmt þeim reglum sem um slík gögn gilda.