Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 3  —  3. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (álitsskylda vegna húsa og mannvirkja).

Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: svo og forráðamönnum kirkna sem ekki njóta friðunar er heimilt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands.
     b.      2. mgr. orðast svo:
                  Byggingarfulltrúum er heimilt að gera að skilyrði að eigendur húsa og mannvirkja, svo og forráðamenn kirkna, leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda.
     c.      Í stað orðanna „Í byggingarleyfi“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Í því eru lagðar til breytingar á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, er varða skyldu til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna tiltekinna húsa og mannvirkja, sbr. 30. gr. laganna. Frumvarp sama efnis, um afnám umsagnarskyldu húsa og mannvirkja, var lagt fram á 156. löggjafarþingi (þingskjal 257, 226. mál) og var afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd 5. júní 2025 með breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar, en náði ekki fram að ganga.
    Samkvæmt 29. gr. laga um menningarminjar eru öll hús og mannvirki sem byggð voru árið 1923 eða fyrr friðuð á grundvelli aldurs. Í 30. gr. laganna er kveðið á um verndun annarra húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar en voru byggð 1940 eða fyrr. Í greininni er mælt fyrir um skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta húsum eða mannvirkjum, flytja þau eða rífa.
    Samkvæmt fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru friðlýst hús og mannvirki á landinu 563 talsins, aldursfriðuð hús sem bera fastanúmer 4.328 talsins og því til viðbótar eru hús sem falla undir 30. gr. laga um menningarminjar 8.380 talsins, þar af eru 3.439 hús byggð á árabilinu 1924-1930 og 4.941 hús byggt á árunum 1931-1940. Önnur mannvirki en hús með fastanúmer, t.d. aldursfriðuð samgöngumannvirki, eru ekki hluti af þessum tölum en lögin ná einnig til þeirra.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Lögbundin aldursfriðun húsa og mannvirkja miðar nú við árið 1923, þ.e. hús sem voru byggð það ár eða fyrr, en aldursfriðun hafði áður miðað við hlaupandi ártal samkvæmt svokallaðri 100 ára reglu. Eigendum húsa sem byggð voru á árabilinu 1924-1940 er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa.
    Forsaga þess að hér er lagt til að afnema skyldu til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna þess sem fellur undir 30. gr. laga um menningarminjar nær til ársins 2022. Þá var ákvæðinu breytt með 2. gr. laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 126/2022, þar sem viðmiðunarártalið 1940 kom í stað ársins 1925. Ákvæði 30. gr. voru við það að renna sitt skeið og vilji hafði staðið til að færa viðmið nær í tíma sem nam fimm árum, samtímis því að festa viðmið aldursfriðunar húsa við byggingarárið 1923 eða fyrr í stað hlaupandi 100 ára reglu. Í frumvarpi er varð að lögunum ( 429. mál á 153. lögþ.) var því lagt til að viðmiðunarártalið yrði 1930. Ártalinu var síðan breytt í 1940 í meðförum þingsins og þannig samþykkt á Alþingi, og bættust þannig 10 ár við. Lögin tóku gildi 1. janúar 2023.
    Sú breyting sem gerð var með fyrrnefndri 2. gr. laga nr. 126/2022 að færa viðmiðunarártal 30. gr. laga um menningarminjar í 1940 hefur haft þau áhrif að álag á stjórnsýslu minjamála hefur aukist töluvert, enda hús sem falla undir ákvæðið 8.380 talsins. Álitsskyldan hefur einnig reynst íþyngjandi fyrir sveitarfélög og húseigendur. Grundvallaratriði er að ekki eru talin nægjanlega sterk fagleg rök fyrir gildandi viðmiðunarártali í lögum. Því má jafnframt halda fram að íþyngjandi fyrirkomulag dragi úr getu Minjastofnunar Íslands til að fjalla á vandaðan hátt um öll mál, sem til lengri tíma getur haft neikvæð áhrif á varðveislu húsa, annarra mannvirkja og fornminja með hátt varðveislugildi sem sannarlega þarf að vernda.
    Mikilvægt er að lögbundin vernd gangi ekki lengra en þurfa þykir á faglegum grundvelli, sé markviss og kröftum minjavörslunnar sé ekki varið í það sem ekki þarf að vernda. Leita þarf jafnvægis til að markmiðum um vernd varðveisluverðra húsa og mannvirkja verði náð.
    Hjá húsadeild Minjastofnunar Íslands eru tvö stöðugildi arkitekta sem sinna öllu landinu. Mat stofnunarinnar er að mál sem varða álitsskyld hús taki almennt ekki styttri tíma í undirbúningi og afgreiðslu en mál sem varða aldursfriðuð hús. Þörf sé því á að forgangsraða við nýtingu fjármuna til að sinna betur friðuðum og friðlýstum húsum og mannvirkjum.
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda húsa sem falla undir lög um menningarminjar, nr. 80/2012, en það eru hús sem njóta friðlýsingar eða aldursfriðunar og hús sem falla undir 30. gr. laganna um skyldu til að leita álits, hér nefnd álitsskyld hús. Samkvæmt upplýsingum sem aflað var frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vorið 2025 voru hús sem reist voru á árunum 1924–1930 þá 3.439 talsins og hús sem reist voru á árunum 1931–1940 voru 4.941 talsins, alls 8.380 hús. Voru þá ótalin ýmis önnur mannvirki frá árunum 1924–1940 sem ekki bera fastanúmer, auk þess sem fjölbýlishús með mörgum íbúðum geta haft áhrif á tölur af þessu tagi. Minjastofnun Íslands telur því að heildarfjöldi húsa og mannvirkja sem falla undir ákvæði 30. gr. sé um 8.700. Til samanburðar þá voru aldursfriðuð hús sem bera fastanúmer 4.328 talsins og friðlýst hús 563 talsins í byrjun árs 2025. Gera má ráð fyrir því að nokkur hús hafi vikið fyrir framkvæmdum á því rúma ári sem liðið er frá í að gagna var aflað. Friðlýst hús og mannvirki eru nú 565 talsins.

Flokkun Fjöldi
Álitsskyld hús, 1931–1940 4.941
Álitsskyld hús, 1924–1930 3.439
Aldursfriðuð hús (1923 eða fyrr) 4.328
Friðlýst hús og mannvirki 563
Samtals 13.265
Fjöldi húsa sem bera fastanúmer og falla undir lög um menningarminjar, þar af eru 8.380 álitsskyld hús sem reist voru á árunum 1924–1940. Heimild: Minjastofnun Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 2025.

    Af framansögðu er ljóst að skylda til að leita álits nær til um 63% þeirra húsa sem falla undir lög um menningarminjar og útheimtir hlutfallslega jafn mikið vinnuframlag og umsýsla í tengslum við aldursfriðuð hús, en felur ekki í sér þá lögbundnu vernd sem ætla mætti. Um er að ræða leiðbeinandi en ekki bindandi álit. Færa má rök fyrir því að óbreytt ástand flæki framkvæmd húsverndar og dragi úr skilvirkni hennar, ekki síst gagnvart þeim húsum sem sannarlega er þörf á að vernda, en þar undir geta fallið yngri hús og mannvirki.
    Rétt er að halda því sérstaklega til haga eins og fyrr kom fram að allt til ársins 2023 miðaði álitsskylda vegna húsa skv. 30. gr. laganna við fast ártal sem var 1925. Hefði lögum um menningarminjar ekki verið breytt árið 2022 hefði álitsskylda vegna húsa runnið sitt skeið á enda í lok árs 2025 án sérstakra ráðstafana löggjafans.
    Fyrir liggur að allstór hluti húsa sem byggð voru á árabilinu 1924–1930 fellur innan hverfisverndar í aðalskipulagi sveitarfélaga. Má þar sérstaklega benda á elsta borgarhlutann í Reykjavík norðan Hringbrautar. Þó má finna smærri þyrpingar húsa eða stök hús sem ekki njóta hverfisverndar í smærri byggðarlögum og í dreifbýli. Í einhverjum sveitarfélögum eru auk þess til staðar áætlanir um verndarsvæði í byggð sem ráðherra hefur staðfest, sbr. lög um verndarsvæði í byggð, nr. 87/2015. Einnig hefur reynsla síðustu ára sýnt að sveitarfélögin hafi látið meira til sín taka á sviði húsverndar og vilji gera byggingararfi hærra undir höfði m.a. með öflugri hverfisvernd og nýjum verndarsvæðum í byggð, svo sem á Ísafirði og í Hafnarfirði.
    Fágæti eykur varðveislugildi minja en hið gagnstæða dregur úr því. Ljóst er að hvorki er hægt né æskilegt að vernda allar menningarminjar og hús. Mikill fjöldi húsa sem í dag falla undir skyldu til að leita álits þarfnast ekki sérstakrar verndunar í lögum, annars vegar þar sem þau eru ekki öll varðveisluverð, og hins vegar þar sem mörg þeirra eru þegar undir hverfisvernd á grundvelli skipulagsáætlana sveitarfélaga og/eða hluti verndarsvæðis í byggð. Má ætla að skynsamlegra sé að Minjastofnun Íslands sé veitt svigrúm til að fást frekar við friðuð og friðlýst hús og mannvirki, sem og önnur varðveisluverð hús í flokki yngri byggingararfs sem fellur utan aldursviðmiða. Þá hefur reynslan jafnframt sýnt að almenningur leitar til stofnunarinnar um hús og mannvirki byggð eftir 1940 enda eru mörg hús sem falla utan álitsskyldu með mjög hátt varðveislugildi.
    Með frumvarpinu er því lagt til að skylda til að leita álits vegna húsa og mannvirkja frá fyrrnefndu árabili verði færð í það horf að í stað skyldu verði um að ræða formlega heimild eigenda húsa og mannvirkja, svo og forráðamanna kirkna sem ekki falla undir aldursfriðun til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Í slíku áliti mun þá m.a. koma til skoðunar hvort umrætt hús eða mannvirki sé að mati stofnunarinnar varðveisluvert eða hluti af byggingararfi þjóðarinnar.
    Með frumvarpi þessu er stefnt að því að tryggja skilvirka og markvissa varðveislu húsa og mannvirkja á faglegum grundvelli þannig að verndin nái utan um það sem sannarlega þarf að vernda. Ljóst er að álitsskylda skv. 30. gr. laga um menningarminjar skapar mikið álag á stjórnsýslu minjamála án þess að nægilega fagleg rök búi að baki. Með fyrirhugaðri lagasetningu er stefnt að því að vinda ofan af þessu íþyngjandi álagi.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Lagt er til að skylda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja sem byggð voru á tímabilinu 1924–1940, svo og kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, verði lögð af og í stað þess mælt fyrir um formlega heimild eigenda húsa og mannvirkja sem ekki falla undir aldursfriðun til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Lagðar eru til breytingar á 30. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Efnislega samhljóða frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi (þingskjal 257, 226. mál). Málið hlaut umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd sem skilaði af sér meirihlutaáliti með breytingartillögu (þingskjal 655, 226. mál) og tekur frumvarpið nú mið af þeirri breytingartillögu.
    Rétt er að skýra ólíka orðanotkun í frumvörpunum. Orðið umsagnarskylda hefur um langt skeið verið notað um þá skyldu eigenda húsa og mannvirkja að leita umsagnar eða álits Minjastofnunar Íslands vegna þess sem fellur undir ákvæði 30. gr. laga um menningarminjar. Í lagagreininni er þó vísað til þess að leita skuli álits. Til að tryggja samræmi var því horfið frá því að kenna frumvarpið við umsagnarskyldu. Þetta skýrir hvers vegna orðið umsagnarskylda kemur fyrir í umsögnum enda var það orðalag notað í fyrra frumvarpi.
    Við gerð frumvarpsins kallaði ráðuneytið til samráðs fulltrúa Minjastofnunar Íslands og voru haldnir fundir með stofnuninni.
    Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is dagana 3. til 17. febrúar 2025 (mál nr. S-13/2025). Umsagnir um áformin bárust frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Minjastofnun Íslands og Landsvirkjun.
    Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga kom fram að sambandið lýsi yfir stuðningi við breytingarnar þar sem þær samræmist stefnu þess um einföldun löggjafar og ferla í skipulags- og byggingarmálum. Með breytingunni muni álag á stjórnsýslu minjamála og sveitarfélaga minnka og eftirlitshlutverk byggingarfulltrúa verði einfaldara. Sambandið leggi því til að lögum um menningarminjar verði breytt í samræmi við áformin.
    Í umsögn Landsvirkjunar er fagnað því framtaki að lækka viðmiðunarmörk aftur til samræmis við upphaflegt markmið lagasetningarinnar, eða til 1930, enda liggi fyrir því fagleg rök. Í umsögninni er jafnframt tekið undir að breytingin sé líkleg til að létta álagi á stjórnsýslu og auka getu Minjastofnunar Íslands til að fjalla á vandaðan hátt um þau mál sem krefjist aðkomu hennar ásamt því að fjarlægja íþyngjandi kröfu á húseigendur. Ljóst sé að álag á byggingarfulltrúa sveitarfélaga muni minnka sem hafi jákvæð áhrif til einföldunar og aukinnar skilvirkni leyfisveitinga.
    Í umsögn Minjastofnunar Íslands eru áformin talin jákvæð fyrir minjavörsluna og tekið undir rökstuðning ráðuneytisins fyrir breytingunni. Fyrir gildistöku laga um menningarminjar, nr. 80/2012, hafi umsagnarskylda um hús og mannvirkja miðast við árið 1918. Þegar lög um menningarminjar tóku gildi í janúar 2013 miðaðist umsagnarskyldan við 1925 og aldursfriðun við 1913. Hinn 1. janúar 2023 hafi aldursfriðun húsa og mannvirkja samkvæmt svokallaðri hundrað ára reglu verið komin til 1923 og var fest við það ártal með lagabreytingu. Þá hafi einungis verið tvö ár sem féllu undir umsagnarskylduna og lagði Minjastofnun Íslands til að hún yrði færð til 1930, en með því yrðu umsagnarskyld hús u.þ.b. 3.500 talsins. Sú tillaga hafi byggst á faglegum forsendum. Þær forsendur hafi m.a. verið þær að árin milli 1924 og 1930 hafi verið mikið framfara- og uppbyggingarskeið víðast hvar á landinu þar sem reistar voru veglegar steinsteyptar byggingar í klassískum og sérþjóðlegum byggingarstíl, ekki síst í aðdraganda Alþingishátíðarinnar 1930. Í meðförum Alþingis hafi umsagnarskyldan sam-kvæmt breytingalagafrumvarpinu verið færð til ársins 1940 og húsin sem falli undir umsagnarskyldu þar með orðið rúmlega 8.000 talsins án þess að stöðugildum hjá stofnuninni hafi verið fjölgað samhliða því. Mikill fjöldi húsa sem í dag falli undir umsagnarskyldu þarfnist ekki sérstakrar verndunar í lögum, bæði þar sem þau séu ekki öll varðveisluverð og þar sem mörg þeirra séu þegar undir hverfisvernd á grundvelli skipulagsáætlana sveitarfélaga. Reynslan hafi sýnt að sveitarfélög standi vörð um varðveisluverð hverfi og götumyndir frá þessum tíma, þ.e. 1925-1940. Þá liggi fyrir að orku og tíma sérfræðinga Minjastofnunar Íslands sé betur varið í friðuð og friðlýst hús og mannvirki og önnur varðveisluverð hús sem falli utan aldursviðmiða. Byggingararfurinn á Íslandi sé mjög ungur í samanburði við önnur lönd og meiri hluti húsa og mannvirkja á landinu hafi verið reistur um miðja 20. öld eða síðar. Vegna þessa sé jafn mikilvægt fyrir húsvernd að sérfræðingar Minjastofnunar Íslands geti veitt yngri byggingararfi athygli og vernd. Þess vegna mætti að mati stofnunarinnar ganga enn lengra, þ.e. að afnema umsagnarskylduna. Fjarlægja mætti aldursviðmið og kröfu en opna formlega heimild sveitarfélaga og eigenda húsa og mannvirkja sem ekki falli undir aldursfriðun, en séu varðveisluverð og hluti af byggingararfi þjóðarinnar, til að leita álits Minjastofnunar Íslands. Reynslan hafi sýnt að mikið sé leitað til stofnunarinnar vegna breytinga og viðhalds á húsum sem reist hafi verið um miðja 20. öld eða síðar. Loks lagði stofnunin fram tillögu að orðalagi 30. gr. laganna í samræmi við fyrrgreinda tillögu. Leggur stofnunin áherslu á það að verði tillaga hennar fyrir valinu myndi það styrkja faglegt starf stofnunarinnar við vernd friðaðra og friðlýstra húsa og mannvirkja, auk þess sem þetta myndi opna á formlegan farveg fyrir varðveislu húsa og mannvirkja til þess að fá umfjöllun og ráðleggingar frá sérfræðingum stofnunarinnar, óháð byggingarári.
    Ráðuneytið taldi ábendingar Minjastofnunar Íslands málefnalegar og eftir að hafa farið yfir málið var tekin sú ákvörðun að fara þá leið í frumvarpinu sem stofnunin lagði til í umsögn sinni, þ.e. að leggja til að breyta umsagnarskyldu í heimild.
    Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is hinn 18. febrúar 2025 (mál nr. S-34/2025) og var frestur til að skila inn umsögnum til og með 6. næsta mánaðar. Alls bárust sex umsagnir, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Minjastofnun Íslands, Arkitektafélagi Íslands, Borgarsögusafni Reykjavíkur, Íslandsdeild ICOMOS og Þjóðminjasafni Íslands.
    Í umsögnum Arkitektafélags Íslands, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Íslandsdeildar ICOMOS og Þjóðminjasafns Íslands voru gerðar athugasemdir við það að umsagnar-skyldan yrði alfarið afnumin. Hluti þessara aðila telur ráðlegra að afnema ekki með öllu umsagnarskyldu heldur færa til byggingarársins 1930. Sjónarmið komu einnig fram í umsögnum þess efnis að þörf væri á skilgreiningu á varðveisluverðum yngri byggingararfi þegar aldursviðmiði sleppir og að óskýrt væri hvernig markmið frumvarpsins um markvissa og skilvirka vernd yngri byggingararfs ættu að nást. Hér verður leitast við að bregðast við efni umsagnanna hvað framangreint varðar.
    Sjónarmið komu einnig fram í umsögn sem tengdust gæðastöðlum varðandi framkvæmd húsakannana. Ekki er tekin afstaða til þess hér þar sem það tengist fyrirhugaðri lagabreytingu ekki beint.
    Mat á varðveislugildi yngri bygginga byggist á sömu matsþáttum og notaðir eru við mat á aldursfriðuðum húsum. Matsþættirnir byggjast á svonefndu SAVE-kerfi frá Danmörku. Þeir eru nánar skilgreindir í leiðbeiningum Minjastofnunar Íslands um skráningu húsa og mannvirkja. Í SAVE-kerfi er lagt er mat á eftirtalda fimm meginþætti: 1) listrænt gildi sem byggingarlist, 2) menningarsögulegt gildi, 3) umhverfisgildi, 4) upprunaleika og 5) ástand mannvirkisins. Fleira getur haft áhrif á varðveislumat, svo sem fágætisgildi mannvirkis á landsvísu og samfélagslegt gildi fyrir viðkomandi stað.
    Í Danmörku hefur nýlega verið unnin skýrsla (Slots- og Kulturstyrelsen: Det Særlige Bygningssyn – Strategi 2022 – De fredede bygninger skal fortælle Danmarks historie) um aðferðafræði við forgangsröðun á yngri byggingum sem talið er mikilvægt að friða. Í henni eru skilgreindir ákveðnir flokkar bygginga sem mikilvægt er að gera úttekt á með tilliti til varðveislugildis. Hér á landi hefur um skeið verið í undirbúningi hliðstæð úttekt á tilteknum gerðum yngri bygginga sem tengjast íslensku samfélagi, svo sem sundlaugum og sundstöðum, félagsheimilum, byggingum tengdum sjávarútvegi og land-búnaði og minjum frá seinni heimsstyrjöld.
    Þá er mikilvægt að safna upplýsingum um og skrá verk þeirra arkitekta sem áhrif hafa haft á þróun seinni tíma byggingarlistar á Íslandi. Slík skráning var hafin á vegum byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur á árabilinu 1995-2011 auk þess sem nokkur teikningasöfn hafa nýlega verið skráð á vegum Hönnunarsafns Íslands og einkaaðila.
    Í tengslum við gerð skipulagsáætlana í þegar byggðum hverfum ber sveitarfélögum að láta gera húsakannanir. Minjastofnun Íslands hefur gefið út leiðbeiningar um gerð húsakannana sem hægt er að styðjast við. Í húsakönnunum er að finna mikilvægar upplýsingar sem nýtast við mat á varðveislugildi yngri húsa á landsvísu. Mörg sveitarfélög hafa á grundvelli húsakannana kosið að setja á hverfisvernd á götur og hverfishluta þar sem eingöngu er að finna yngri byggingar. Staðbundin hverfisvernd hefur þann kost að eiga sér rætur í viðkomandi samfélagi. Hins vegar skortir forsendur í slíkri vinnu til þess að meta með samræmdum hætti fágætisgildi tiltekinna mannvirkja á landsvísu.
    Frumkvæði að skilgreiningu og afmörkun verndarsvæða í byggð á grundvelli samnefndra laga liggur hjá sveitarfélögum sem hafa sýnt mismikinn áhuga á að leggja í slíka vegferð. Þau svæði sem hingað til hafa hlotið staðfestingu ráðherra sem verndarsvæði í byggð taka flest til eldri byggðarkjarna þar sem meiri hluti húsanna nýtur þegar friðunar á grundvelli aldursreglu laga um menningarminjar. Fá dæmi eru um tillögur að verndarsvæðum þar sem horft er til yngri bygginga.
    Algengt er að sveitarfélög og húseigendur leiti til Minjastofnunar Íslands um mat á varðveislugildi yngri bygginga og mannvirkja þó að slíkt sé ekki skylt samkvæmt lögum. Í flestum tilvikum er um að ræða hús sem talin eru hafa varðveislugildi og sveitarfélög óska eftir faglegu mati sérfræðinga Minjastofnunar Íslands til að byggja ákvarðanir sínar á, m.a. um breytingar og niðurrif. Að mati stofnunarinnar er þessi tilhögun heppilegri og markvissari aðgerð fyrir varðveislu byggingararfsins en sú að fastbinda í lög álitsskyldu um hús frá þröngu árabili, án alls tillits til varðveislugildis þeirra. Slíkt faglegt mat á varðveislugildi getur einnig vegið þungt í ákvörðun húseiganda um að sækja um styrk til viðhalds eldra húss í Húsafriðunarsjóð og getur húseigandi vísað í það mat í umsókn sinni.
    Loks má benda á að stjórnvöld, þ.m.t. minjavarslan, geta farið ýmsar leiðir eða valið stefnukosti þegar kemur að markvissri vernd yngri byggingararfs og reglusetning og löggjöf er aðeins einn þeirra kosta. Hér má nefna aukna fræðslu til almennings um vernd og viðhald eldri húsa sem getur reynst skilvirk leið í átt að markmiðinu. Einnig má nefnda hagræna hvata en dæmi um það er styrkhæfni yngri byggingararfs í Húsafriðunarsjóði.

6. Mat á áhrifum.
    Frumvarpið er ekki talið hafa fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð. Á hinn bóginn mun það hafa þau jákvæðu áhrif að draga úr álagi á stjórnsýslu minjamála og byggingarfulltrúa. Markmið með frumvarpinu er í reynd að draga úr álagi á Minjastofnun Íslands í tengslum við álitsskyldu vegna húsa og annarra mannvirkja sem leiðir til þess að svigrúm myndast fyrir stofnunina til að sinna verkefnum sínum af aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Með því að breyta álitsskyldu vegna húsa og annarra mannvirkja yfir í heimildarákvæði verður létt á verkefnaálagi stofnunarinnar. Með þessu er ætlunin að styrkja starfsemi hennar og stuðla að markvissari framkvæmd minjaverndar.
    Þá má jafnframt nefna þau áhrif sem frumvarpið mun hafa fyrir almenning, verði það að lögum, þannig að sú heimild sem opnast fyrir eigendur húsa og mannvirkja til að óska faglegs álits Minjastofnunar Íslands, óháð byggingarári, eykur vernd yngri byggingararfs enda eru mörg yngri hús sem hingað til hafa fallið utan álitsskyldu með mjög hátt varðveislugildi.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Lögð er til breyting á 1. mgr. 30. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012, þannig að skylda til að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja, sem byggð voru á árunum 1924–1940, sem og kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, en njóta ekki friðunar, verði afnumin. Í stað hennar verði um að ræða formlega heimild eigenda eða forráðamanna þessara húsa, mannvirkja og kirkna til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja eða rífa.
    Með breytingu á 2. mgr. 30. gr. verður afnumin skylda byggingarfulltrúa til eftirlits með því að eigendur húsa og mannvirkja, svo og forráðamenn kirkna, sem fjallað er um í 30. gr., leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda. Þess í stað verður mælt fyrir um heimild byggingarfulltrúa til að gera það að skilyrði að umræddir aðilar leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda.
    Sú orðalagsbreyting sem lögð er til á 3. mgr. 30. gr. skýrist af greiningu á milli samþykktar byggingaráforma skv. 11. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, og útgáfu byggingarleyfis skv. 13. gr. sömu laga. Með þessu er stefnt að því að afstaðan til álits Minjastofnunar Íslands geti legið fyrir fyrr í ferlinu en ekki bara undir lok þess, enda eru stundum gefin út svokölluð takmörkuð byggingarleyfi, t.d. til jarðvegsskipta eða jarðvegsvinnu, áður en hefðbundið byggingarleyfi er gefið út.

Um 2. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.