Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 307, 158. löggjafarþing 3. mál: menningarminjar og mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
Lög nr. 98 26. október 2026.
I. KAFLI
Breyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012.
II. KAFLI
Breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010.
Áður en gefið er út byggingarleyfi fyrir mannvirki skal gætt, eftir því sem við á, ákvæða IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar, nr. 80/2012.
Þingskjal 307, 158. löggjafarþing 3. mál: menningarminjar og mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
Lög nr. 98 26. október 2026.
Lög um breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki (álit Minjastofnunar Íslands vegna húsa og mannvirkja).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 30. gr. laganna:- Í stað orðanna „sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: svo og forráðamönnum kirkna, sem ekki njóta friðunar, er heimilt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands.
- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
2. gr.
Tilvísunin „1. mgr. 30. gr.“ í 1. mgr. 56. gr. laganna fellur brott.3. gr.
6. mgr. 13. gr. laganna orðast svo:Áður en gefið er út byggingarleyfi fyrir mannvirki skal gætt, eftir því sem við á, ákvæða IV., VI. og VII. kafla laga um menningarminjar, nr. 80/2012.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 22. október 2026.