Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 318  —  285. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Frá mennta- og barnamálaráðherra.



1. gr.
Markmið og gildissvið.

    Markmið laga þessara er að styrkja vernd barna í stafrænu umhverfi með því að draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum ótímabærrar notkunar samfélagsmiðla á líðan, þroska og öryggi þeirra og styðja við uppeldishlutverk og ábyrgð foreldra og forsjáraðila.
    Lög þessi gilda eingöngu um skyldur foreldra og annarra forsjáraðila þegar kemur að aðgangi barna þeirra að samfélagsmiðlum. Lög þessi leggja ekki skyldur á þá sem veita stafræna þjónustu skv. 2. gr. hvort sem þeir hafa staðfestu hér á landi eða erlendis.

2. gr.
Samfélagsmiðill.

    Með samfélagsmiðli í skilningi laga þessara er átt við stafræna þjónustu sem gerir notendum kleift að:
     a.      stofna eigin notendareikning,
     b.      geyma og miðla til almennings efni, svo sem texta, myndum, hljóð- eða myndskeiðum, sem þeir hafa sjálfir búið til eða hlaðið upp, án þess að birting þess sé háð ritstjórnarlegri ábyrgð miðilsins,
     c.      finna, tengjast og eiga í samskiptum við aðra notendur, fylgjast með efni annarra og bregðast við því eða fá efni miðlað til sín, einkum persónusniðið efni.
    Stafræn þjónusta telst ekki samfélagsmiðill í skilningi laga þessara ef meginhlutverk hennar felst í einu af eftirfarandi:
     a.      tölvuleikjum og spilun þeirra,
     b.      reglubundinni miðlun frétta og fréttatengds efnis til almennings undir ritstjórnarlegri ábyrgð fjölmiðlaveitu samkvæmt lögum um fjölmiðla,
     c.      rafrænum viðskiptum með vörur eða þjónustu,
     d.      fræðslu-, náms- eða kennslukerfum grunn- og framhaldsskóla,
     e.      samskiptum í lokuðum hópum vegna skipulagðs skóla-, íþrótta-, tómstunda- eða frístundastarfs,
     f.      þjónustu sem eingöngu er ætlað að miðla skilaboðum milli afmarkaðs hóps eða tiltekinna einstaklinga sem ekki eru jafnframt aðgengileg öðrum.

3. gr.
Aldurstakmark vegna samfélagsmiðla.

    Barn yngra en 15 ára skal ekki hafa sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum. Aldurstakmark þessa ákvæðis miðast við fæðingarár.
    Foreldrar og forsjáraðilar skulu sjá til þess að börn þeirra hlíti ákvæðum 1. mgr. með því að koma í veg fyrir sjálfstæðan aðgang barna yngri en 15 ára að samfélagsmiðlum.
    Skylda skv. 1. og 2. mgr. leggur hvorki beinar né óbeinar skyldur á þá sem veita stafræna þjónustu skv. 2. gr., þar á meðal að sannreyna aldur notenda, synja þeim um aðgang, fylgjast með notkun eða grípa til annarra tæknilegra eða rekstrarlegra ráðstafana.

4. gr.
Fræðsla og forvarnir.

    Ráðherra skal, eftir atvikum í samstarfi við ráðherra sem fara með málefni sem varða fjölmiðla, heilbrigðismál, fjarskipti og netöryggi, stuðla að reglubundinni fræðslu til barna, foreldra og forsjáraðila um ábyrga notkun samfélagsmiðla og áhrif notkunar þeirra á heilsu, þroska og velferð barna. Taka skal mið af réttindum hópsins sem fræðsla og upplýsingaefni beinist að. Fræðslan skal m.a. fara fram í grunnskólum.

5. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skal 6. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. ágúst 2027.

6. gr.

    Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018: Í stað orðanna „13 ára“ í 1. og 2. málsl. 5. mgr. 10. gr. laganna kemur: 15 ára.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Lög þessi skulu endurskoðuð þegar samræmdar reglur um aldurstakmörk eða aldursstaðfestingu barna á samfélagsmiðlum taka gildi á Evrópska efnahagssvæðinu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.