Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 328 — 290. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um Stafræna heilsu.
Frá heilbrigðisráðherra.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið og markmið.
Markmið laga þessara er að stafræn þróun stuðli að öruggri, samfelldri og skilvirkri heilbrigðisþjónustu, vernd persónuupplýsinga og aðgangs einstaklinga að eigin persónuupplýsingum.
2. gr.
Stefnumörkun.
3. gr.
Skilgreiningar.
1. Miðlæg notkun: Þegar tveir eða fleiri sjálfstæðir aðilar í heilbrigðisþjónustu nota stafræna innviði sameiginlega við rekstur, hýsingu eða tæknilega umsýslu innviðanna.
2. Stafrænir innviðir heilbrigðiskerfisins: Stafræn kerfi, tæknilausnir, gagnainnviðir, gagnagrunnar og stafræn þjónusta sem styðja við veitingu heilbrigðisþjónustu eða starfsemi, upplýsingamiðlun eða þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Undir stafræna innviði heilbrigðiskerfisins falla m.a.:
a. auðkennis- og aðgangsstýringarlausnir og aðrar tæknilegar grunnlausnir fyrir heilbrigðisstarfsmenn og einstaklinga,
b. stafræn kerfi fyrir samskipti innan og milli heilbrigðisstofnana, heilbrigðisstarfsmanna og annarra aðila sem taka þátt í veitingu heilbrigðisþjónustu innan lands og erlendis,
c. samvirkni og tengilausnir sem gera örugga miðlun upplýsinga milli kerfa mögulega,
d. kerfi og gagnagrunnar til skráningar, varðveislu og annarrar vinnslu sjúkraskrárupplýsinga samkvæmt lögum um sjúkraskrá,
e. vefgáttir og aðrar stafrænar lausnir sem veita einstaklingum aðgang að eigin persónuupplýsingum,
f. stafrænar samskipta- og upplýsingatæknilausnir sem eru notaðar við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu.
3. Tæknilegar kröfur: Kröfur um tæknilega og skipulagslega útfærslu, samhæfni, samvirkni, net- og upplýsingaöryggi og önnur tæknileg atriði stafrænna kerfa og lausna.
4. gr.
Stafræn heilsa.
5. gr.
Meginverkefni.
Meginverkefni Stafrænnar heilsu eru að:
1. annast uppbyggingu, þróun, rekstur og tæknilega umsýslu stafrænna innviða, kerfa og lausna skv. 8. gr.,
2. stuðla að samhæfni, samvirkni, net- og upplýsingaöryggi og persónuvernd stafrænna innviða, kerfa og lausna sem notuð eru í heilbrigðisþjónustu,
3. setja og innleiða tæknilegar kröfur til stafrænna kerfa og lausna í heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum þessum,
4. stuðla að samræmdri og öruggri tæknilegri skráningu, varðveislu og miðlun heilbrigðisupplýsinga, þar á meðal með samræmingu kóðunar- og flokkunarkerfa og annarra þátta tæknilegrar skráningar sem stuðla að samvirkni upplýsinga, innan lands og yfir landamæri eftir því sem lög heimila,
5. stuðla að öruggu aðgengi einstaklinga að eigin heilsufarsupplýsingum og miðlun upplýsinga til þeirra eftir því sem mælt er fyrir um í lögum,
6. stuðla að hagkvæmri og tæknilega hlutlausri þróun og nýtingu stafrænna lausna og nýsköpun í heilbrigðiskerfinu,
7. styðja við stefnumörkun ráðherra á sviði stafrænnar þróunar heilbrigðiskerfisins, þar á meðal með greiningum, tillögum, áætlanagerð og eftirfylgni með stefnu,
8. taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á starfssviði stofnunarinnar,
9. sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
6. gr.
Forstöðumaður.
7. gr.
Stefnuráð.
Ráðherra setur reglugerð um skipan og starfshætti stefnuráðs.
II. KAFLI
Stafrænir innviðir og tæknileg umgjörð.
8. gr.
Uppbygging, þróun, rekstur og tæknileg umsýsla.
Leiki vafi á því hvort stafrænir innviðir falli undir 1. mgr. sker Stafræn heilsa úr um það.
Stafrænni heilsu er heimilt að annast rekstur og tæknilega umsýslu annarra stafrænna kerfa, gagnagrunna og lausna sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða samningum.
Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð á um skyldu heilbrigðisstofnana, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem veita heilbrigðisþjónustu til að nota tiltekin stafræn kerfi, lausnir eða þjónustu við veitingu heilbrigðisþjónustu, enda sé það nauðsynlegt til að tryggja hagkvæmni, gæði, samfellu og öryggi þjónustunnar eða aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
9. gr.
Tæknilegar kröfur.
Tæknilegar kröfur skv. 1. mgr. skulu, eftir því sem við á, byggjast á alþjóðlegum viðmiðum, viðurkenndum stöðlum, bestu framkvæmd og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Tæknilegar kröfur taka m.a. til:
1. samvirkni, tæknilegrar samþættingar og miðlunar upplýsinga milli kerfa, þar á meðal hvaða viðurkenndu innlendu og alþjóðlegu staðla skuli leggja til grundvallar,
2. lágmarksviðmiða um upplýsingaöryggi, þar á meðal aðgangsstýringu, auðkenningu, dulkóðun, rekjanleika, skráningu aðgerða og viðbrögð við öryggisatvikum,
3. skilyrða sem nauðsynleg eru til öruggrar tengingar við stafræna innviði heilbrigðiskerfisins,
4. samræmisprófana, vottana, prófunarumhverfis og staðfestingar á því að stafrænir innviðir og kerfi uppfylli viðeigandi kröfur.
Tæknilegar kröfur samkvæmt þessari grein geta tekið til allra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins, óháð því hver rekur viðkomandi innviði eða annast tæknilega umsýslu þeirra.
10. gr.
Tenging við stafræna innviði heilbrigðiskerfisins.
Stafræn heilsa metur hvort skilyrði fyrir tengingu séu uppfyllt og getur í því skyni krafist nauðsynlegra upplýsinga, gagna, prófana og staðfestinga. Stafrænni heilsu er heimilt að synja um tengingu eða binda tengingu skilyrðum sem nauðsynleg eru til að tryggja samhæfni, samvirkni, upplýsingaöryggi og öruggan rekstur viðkomandi stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins.
Uppfylli tenging, tæknilausn eða kerfi ekki þær kröfur sem um þau gilda eða stafi af þeim hætta fyrir öryggi eða starfsemi viðkomandi stafrænna innviða eða samfellu heilbrigðisþjónustu er Stafrænni heilsu heimilt að krefjast nauðsynlegra úrbóta innan hæfilegs frests.
Ef hætta er brýn eða aðili hefur ekki orðið við kröfu um úrbætur skv. 3. mgr. er Stafrænni heilsu heimilt að takmarka aðgang eða rjúfa tengingu þar til nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar.
III. KAFLI
Vinnsla persónuupplýsinga og þagnarskylda.
11. gr.
Vinnsla persónuupplýsinga.
Vinnslan skv. 1. mgr. er m.a. heimil að því marki sem nauðsynlegt er til að:
1. reka, þróa, hýsa, varðveita, viðhalda og annast tæknilega umsýslu stafrænna innviða, kerfa, gagnagrunna og lausna sem falla undir starfsemi Stafrænnar heilsu,
2. tryggja samvirkni, örugga miðlun og aðgengi að upplýsingum og stuðla að samræmdri tæknilegri skráningu, þar á meðal með samræmingu kóðunar- og flokkunarkerfa eftir því sem lög heimila,
3. annast auðkenningu og aðgangsstýringu og tryggja öryggi, rekstraröryggi, tiltækileika, rekjanleika og samfellu gagna og upplýsinga, svo og skráningu aðgerða og atvika, vegna stafrænna innviða, kerfa og lausna sem falla undir starfsemi Stafrænnar heilsu,
4. greina, fyrirbyggja og bregðast við net- og upplýsingaöryggisatvikum sem varða starfsemi eða verkefni Stafrænnar heilsu.
Ábyrgð Stafrænnar heilsu á vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt lögum þessum hefur ekki áhrif á ábyrgð heilbrigðisstofnana, starfsstofa heilbrigðisstarfsmanna eða heilbrigðisstarfsmanna á skráningu og faglegu efni sjúkraskráa samkvæmt lögum um sjúkraskrár né aðra faglega ábyrgð þeirra við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Ábyrgð Stafrænnar heilsu á vinnslu persónuupplýsinga ræðst af lögbundnum verkefnum hennar og að því marki sem stofnunin tekur, ein eða í samvinnu við aðra, ákvörðun um tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd þessarar greinar, þar á meðal um aðgang að persónuupplýsingum, aðgangsstýringu, rekjanleika, varðveislu og öryggi persónuupplýsinga, svo og um skjalfestingu á ábyrgð og verkaskiptingu þeirra aðila sem koma að vinnslu persónuupplýsinga við framkvæmd verkefna Stafrænnar heilsu.
12. gr.
Þagnarskylda.
Skylda skv. 1. mgr. hvílir jafnframt á þeim sem sinna verkefnum fyrir Stafræna heilsu á grundvelli samnings eða starfa á vegum stofnunarinnar án þess að vera starfsfólk hennar.
Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi eða verkefni ljúki.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
13. gr.
Samstarf og samráð.
14. gr.
Þróun og nýsköpun.
Stafræn heilsa skal stuðla að þróun og framþróun stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins og skapa skilyrði, hvort heldur fyrir opinbera aðila eða einkaaðila, fyrir þróun, vali og innleiðingu nýrra tæknilausna og þjónustuforma sem stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu.
15. gr.
Kæruheimild.
Kæra skv. 1. mgr. frestar ekki réttaráhrifum stjórnvaldsákvörðunar nema ráðherra ákveði annað.
16. gr.
Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara um:
1. Skyldu til að nota tiltekin kerfi, lausnir eða þjónustu við veitingu heilbrigðisþjónustu, sbr. 4. mgr. 8. gr.
2. Tæknilegar kröfur, sbr. 1. mgr. 9. gr.
3. Vinnslu persónuupplýsinga hjá Stafrænni heilsu og þeirra aðila sem koma að vinnslu persónuupplýsinga hjá stofnuninni, sbr. 5. mgr. 11. gr.
17. gr.
Gildistaka.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast ákvæði 4., 6. og 15. gr. gildi 1. janúar 2029.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er ráðherra heimilt að skipa forstöðumann nýrrar stofnunar fyrir gildistöku ákvæðis 4. gr. og skal hann hafa heimild til að undirbúa starfsemi nýrrar stofnunar.
Tengingar kerfa og lausna við stafræna innviði heilbrigðiskerfisins sem eru fyrir hendi við gildistöku laga þessara halda gildi sínu án sérstaks samþykkis skv. 10. gr.
18. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007:
a. Á eftir 7. gr. e laganna kemur ný grein, 7. gr. f, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Stafræn kerfi og lausnir í heilbrigðisþjónustu.
b. 27. gr. b laganna orðast svo:
Heilbrigðisstofnanir, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sem veita heilbrigðisþjónustu skulu við skipulagningu og veitingu fjarheilbrigðisþjónustu uppfylla tæknilegar kröfur samkvæmt lögum um Stafræna heilsu og reglugerðum settum á grundvelli þeirra laga og, eftir því sem við á, fagleg fyrirmæli landlæknis samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu.
2. Lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007:
a. 5.–7. mgr. 4. gr. laganna falla brott.
b. 3. mgr. 8. gr. a laganna orðast svo:
Landlæknir gefur heilbrigðisstofnunum, heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum veitendum heilbrigðisþjónustu fyrirmæli um hvaða upplýsingum skuli miðla til landlæknis vegna heilbrigðisskráa skv. 8. gr. og hvernig staðið skuli að miðlun þeirra. Fyrirmæli landlæknis skulu byggjast á þeirri skráningu, kóðun, flokkunarkerfum og skráningarviðmiðum sem ákveðin eru í fyrirmælum ráðherra samkvæmt lögum um sjúkraskrár.
3. Lög um sjúkraskrár, nr. 55/2009:
a. Í stað „VI. kafla“ í 2. málsl. 12. tölul. 3. gr. laganna kemur: V. kafla.
b. Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra skal með reglugerð kveða á um tæknilega samræmingu skráningar sjúkraskrárupplýsinga í stafrænum sjúkraskrárkerfum, þar á meðal um kóðun, flokkunarkerfi og önnur skráningarviðmið sem nauðsynleg eru til að tryggja samræmda skráningu, miðlun og aðra vinnslu upplýsinganna, svo og samvirkni milli kerfa.
c. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. a laganna:
1. Orðið „landlæknir“ í 4. mgr. fellur brott.
2. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Stafræn heilsa skal starfrækja landstengigátt fyrir miðlun sjúkraskrárupplýsinga samkvæmt þessari grein. Stafrænni heilsu er heimilt að varðveita miðlægt þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að gera miðlunina mögulega.
d. Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
1. 2. mgr. orðast svo:
Sé rekstri heilbrigðisstofnunar eða starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna hætt skal flytja sjúkraskrár sem þar eru vistaðar í stafrænu sjúkraskrárkerfi til Stafrænnar heilsu í því skyni að tryggja varðveislu þeirra og yfirfærslu í annað stafrænt sjúkraskrárkerfi. Um sjúkraskrár á pappír fer eftir ákvæðum laga um opinber skjalasöfn. Stafræn heilsa getur ákveðið að sjúkraskrár skuli vistaðar í stafrænu sjúkraskrárkerfi annarrar heilbrigðisstofnunar eða starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna. Áður en sjúkraskrá er vistuð samkvæmt ákvörðun Stafrænnar heilsu skal veita hlutaðeigandi sjúklingum andmælarétt og kost á að velja aðra heilbrigðisstofnun eða starfsstofu heilbrigðisstarfsmanna.
2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra ákveður með gjaldskrá hvað greiða skuli fyrir móttöku, yfirfærslu og aðlögun sjúkraskráa sem afhentar eru skv. 2. mgr.
e. Á eftir 13. gr. laganna kemur ný grein, 13. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Aðgangur starfsfólks félagsþjónustu sveitarfélaga að sjúkraskrárupplýsingum.
Aðgangur skv. 1. mgr. skal takmarkast við þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til veitingar þeirrar þjónustu sem starfsfólkinu hefur verið falin. Starfsfólk félagsþjónustu sem hefur aðgang samkvæmt þessari grein skal undirgangast sambærilega trúnaðar- og þagnarskyldu um sjúkraskrárupplýsingar og gilda um heilbrigðisstarfsmenn samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn.
Ráðherra skal setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, þar á meðal um skilyrði og umfang aðgangs, aðgangsstýringu, rekjanleika og aðrar öryggisráðstafanir.
f. 17. gr. b laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Aðgangur vegna tæknilegrar umsýslu.
Aðgangur skal takmarkast við það sem nauðsynlegt er hverju sinni og skal vera rekjanlegur. Að því marki sem unnt er skal notast við prufugögn eða ópersónulegar upplýsingar í stað raungagna við framkvæmd verkefna samkvæmt þessari grein.
Þeir sem fá aðgang skulu undirgangast sambærilega trúnaðar- og þagnarskyldu og heilbrigðisstarfsmenn.
g. Í stað 2. málsl. 2. mgr. 18. gr. laganna, koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Um tæknilegar kröfur til samtengingar stafrænna sjúkraskrárkerfa fer samkvæmt lögum um Stafræna heilsu. Um öryggi persónuupplýsinga við samtengingu stafrænna sjúkraskrárkerfa fer samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
h. Fyrirsögn V. kafla laganna verður: Stafræn sjúkraskrárkerfi.
i. 20. og 21. gr. laganna, ásamt fyrirsögnum, færast í V. kafla.
j. Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:
1. Orðin „með leyfi ráðherra“ í 1. mgr. falla brott.
2. 2. mgr. orðast svo:
Þegar tveir eða fleiri ábyrgðaraðilar færa og varðveita sjúkraskrár í sameiginlegu stafrænu sjúkraskrárkerfi skulu þeir ákvarða og skjalfesta með gagnsæjum hætti verkaskiptingu og ábyrgð hvers um sig á vinnslu sjúkraskrárupplýsinga í kerfinu, þar á meðal að því er varðar skráningu og meðferð upplýsinga, upplýsingaöryggi og réttindi sjúklinga.
k. Á eftir 21. gr. laganna kemur ný grein, 21. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Tæknileg umgjörð stafrænna sjúkraskrárkerfa.
Stafrænni heilsu er heimilt að þróa, reka, hýsa og annast tæknilega umsýslu tiltekinna stafrænna sjúkraskrárkerfa fyrir heilbrigðisstofnanir og starfsstofur heilbrigðisstarfsmanna.
Rekstur, hýsing eða tæknileg umsýsla samkvæmt þessari grein hefur ekki áhrif á faglega ábyrgð ábyrgðaraðila sjúkraskráa, umsjónaraðila sjúkraskráa eða heilbrigðisstarfsmanna á færslu og efni sjúkraskráa eða öðrum faglegum skyldum sem á þeim hvíla samkvæmt lögum þessum.
Um tæknilegar kröfur til stafrænna sjúkraskrárkerfa fer samkvæmt lögum um Stafræna heilsu.
l. Fyrirsögn VI. kafla laganna fellur brott.
m. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 23. gr. a laganna:
1. Við bætist nýr stafliður, l-liður, svohljóðandi: ákvæðum um aðgang starfsfólk félagsþjónustu sveitarfélaga að sjúkraskrárupplýsingum, sbr. 13. gr. a.
2. o-liður orðast svo: ákvæðum um aðgang að sjúkraskrárkerfum vegna tæknilegrar umsýslu, sbr. 17. gr. b.
n. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 24. gr. laganna:
1. Við 2. málsl. bætist: „að gættum ákvæðum laga um Stafræna heilsu“.
2. Orðin „og reglum Persónuverndar um öryggi persónuupplýsinga“ í 4. málsl. falla brott.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
Ráðherra er heimilt að flytja forstöðumann Stafrænnar heilsu í embætti forstöðumanns ríkisstofnunarinnar Stafrænnar heilsu, sbr. 36. gr. laga nr. 70/1996.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.