Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 334 — 295. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (dvalarleyfi).
Frá dómsmálaráðherra.
1. gr.
a. Í stað orðsins „fórnarlömb“ í 6. tölul. kemur: þolendur.
b. 17. tölul. orðast svo: Nánustu aðstandendur: Maki, sambúðarmaki og börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans.
2. gr.
a. Á eftir orðinu „skattyfirvöldum“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: löggæslu- og dómsmálayfirvöldum.
b. Á eftir orðunum „Vinnueftirliti ríkisins“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: sjúkratryggingastofnunin, Tryggingastofnun ríkisins.
c. Á eftir 3. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Útlendingastofnun er heimilt að samkeyra persónuupplýsingar frá skattyfirvöldum, embætti sýslumanns og hlutaðeigandi sveitarfélagi við meðferð umsóknar um endurnýjun dvalarleyfis og umsóknar um ótímabundið dvalarleyfi útlendings svo að tryggja megi að skilyrði 56. gr., sbr. 57. og 58. gr., teljist uppfyllt.
d. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Útlendingastofnun er heimilt að upplýsa annað stjórnvald og, eftir atvikum, innlenda menntastofnun um dvalarleyfisstöðu útlendings og gildistíma dvalarleyfis hans, enda séu þær upplýsingar nauðsynlegar til að ljúka við afgreiðslu máls er varðar hlutaðeigandi útlending og ákvörðun um réttindi hans. Heimild þessi nær aðeins til vinnslu sem stjórnvaldi eða menntastofnun er skylt að framkvæma lögum samkvæmt. Að svo miklu leyti sem lög þessi mæla ekki fyrir um á annan veg gilda ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga um vinnslu upplýsinganna. Stjórnvaldi eða menntastofnun ber að upplýsa útlending um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
3. gr.
4. gr.
a. Við 1. mgr. bætast fimm nýir málsliðir, svohljóðandi: Þá skal tekin stafræn mynd af umsækjanda auk fingrafara. Heimilt er að nýta þær upplýsingar til að auðkenna umsækjanda, sbr. e-lið 1. mgr. 55. gr., sem og við útgáfu dvalarleyfisskírteinis, sbr. 54. gr. Útlendingastofnun er heimilt að afla fyrrgreindra upplýsinga við komu útlendings til landsins þegar því verður ekki við komið á fyrri stigum. Útlendingastofnun er heimilt, á grundvelli þjónustusamnings, að fela utanaðkomandi þjónustuaðilum í þriðja ríki að annast verkefni sem tengjast framkvæmd ákvæðisins, þ.m.t. viðtöku og vörslu umsókna og ferðaskilríkja sem og skráningu stafrænnar myndar auk fingrafara. Einnig er heimilt að fela utanríkisþjónustu eða þar til bæru yfirvaldi annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu slík verkefni á grundvelli fyrirsvarssamnings eða þjónustusamnings.
b. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Útlendingur getur aðeins haft eina umsókn um dvalarleyfi til meðferðar á hverjum tíma. Leggi útlendingur fram nýja umsókn um dvalarleyfi meðan fyrri umsókn hans er til meðferðar hjá Útlendingastofnun skal hann draga fyrri umsókn til baka án tafar. Geri hann það ekki skal fyrri umsókn vísað frá enda hafi umsækjanda verið leiðbeint um afleiðingar þess að draga fyrri umsókn til baka. Umsækjandi skal án tafar ákveða hvaða umsókn hann heldur til streitu. Hafi Útlendingastofnun tekið ákvörðun um fyrri umsókn sem ekki er orðin endanleg skal nýrri umsókn vísað frá nema útlendingur uni ákvörðuninni eða dragi kæru sína til baka.
Ákvæði 3. mgr. á ekki við um umsóknir um dvalarleyfi vegna alþjóðlegrar verndar, mannúðarsjónarmiða og mansals skv. IX. kafla. Þrátt fyrir framangreint er heimilt að reka umsókn um ótímabundið dvalarleyfi samhliða umsókn um endurnýjun þess dvalarleyfis sem hún byggist á.
5. gr.
a. 2., 3. og 5. mgr. falla brott.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Forgangsröðun umsókna um dvalarleyfi.
6. gr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis skv. 1. málsl. 1. mgr., sem og nánari ákvæði um útlit og eiginleika dvalarleyfisskírteinis og þeirra krafna sem eru gerðar til varðveislu, aldurs og forms stafrænnar skráningar lífkennaupplýsinga umsækjanda.
7. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: að hann hafi auðkennt sig gagnvart íslenskum stjórnvöldum svo að ekki leiki vafi á auðkenni hans.
b. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Umsókn um fyrsta dvalarleyfi skv. VI. og VII. kafla skal hafnað ef heildarmat leiðir til þess að líklegt teljist að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið að loknum gildistíma dvalarleyfis. Við mat Útlendingastofnunar er m.a. heimilt að byggja á upplýsingum um umsækjanda sjálfan, ástæðu og nauðsyn umsóknar, aðstæðum í heimaríki hans og fyrirliggjandi upplýsingum og almennri reynslu stjórnvalda af umsækjendum í sambærilegri stöðu og með sama ríkisfang og umsækjandi. Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála er heimilt að styðjast við lista yfir ríki sem teljast áhætturíki. Heimilt er að líta til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á því hvaða ríki teljist áhætturíki sem og hvort heimaríki umsækjanda hafi í framkvæmd tryggt virka samvinnu um endurviðtöku og endursendingar ríkisborgara sinna, þar á meðal með móttöku þeirra og útgáfu nauðsynlegra ferðaskilríkja. Útlendingastofnun er skylt að halda utan um slíkan lista, uppfæra hann reglulega og birta á vef stofnunarinnar.
c. Í stað tilvísunarinnar „a–d-lið 1. mgr.“ í 3. mgr. kemur: a–e-lið 1. mgr. og 3. mgr.
8. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 3. mgr.
b. Í stað orðanna „67. eða 68. gr.“ í 5. mgr. kemur: eða 67. gr.
c. Við 8. mgr. bætist: sem og nánari ákvæði um heimild til dvalar og mat á ríkum sanngirnisástæðum samkvæmt ákvæði þessu.
9. gr.
a. Í stað orðsins „fjögur“ í 1. málsl. 1. mgr. og fyrra sinnið í b-lið 2. mgr. kemur: sex.
b. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: útlendingur er ekki í vanskilum vegna skatta, opinberra gjalda eða sekta sem eru til innheimtu hjá innheimtumanni ríkissjóðs, sveitarfélagi eða opinberum stofnunum, en hann telst ekki vera í vanskilum í skilningi ákvæðisins hafi hann, þegar umsókn hans er tekin til meðferðar, greitt hina gjaldföllnu kröfu eða gert bindandi samning eða greiðsluáætlun við kröfuhafa um greiðslu hennar og staðið skil á greiðslum samkvæmt samningnum eða greiðsluáætluninni og skal hann þá framvísa staðfestingu frá innheimtumanni ríkissjóðs og, eftir atvikum, sveitarfélagi þess efnis.
c. Við 2. mgr. bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
c. skilyrði um að útlendingur hafi samfellda dvöl hér á landi síðustu sex ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, þegar útlendingur hefur dvalið hér á landi á grundvelli dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar skv. 61. gr. í a.m.k. fjögur ár samfellt, hann hefur ótímabundinn ráðningarsamning og meðaltekjur síðustu tveggja ára nema a.m.k. meðaltali heildarlauna fólks í fullu starfi miðað við gagnaöflun Hagstofu Íslands,
d. skilyrði um samfellda dvöl síðustu sex ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis, þegar útlendingur hefur á því tímabili haft dvalarleyfi skv. 75. eða 76. gr. og telst þá dvöl á grundvelli framangreindra leyfa telst þá til samfelldrar dvalar, þó að hámarki í þrjú ár, enda hafi útlendingur að öðru leyti dvalist hér á landi á grundvelli dvalarleyfis sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
d. Á eftir orðinu „fæðist“ í 4. mgr. kemur: hér á landi.
e. 5. mgr. fellur brott.
10. gr.
Sé rökstuddur grunur um að útlendingur hafi sætt misneytingu eða alvarlegu vinnumarkaðsbroti af hálfu vinnuveitanda síns er heimilt að veita útlendingnum dvalarleyfi til 12 mánaða til þess að hann geti leitað sér að öðru starfi og leitað réttar síns kjósi hann það. Heimilt er að veita slíkt leyfi án þess að skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. séu uppfyllt. Um útgáfu dvalarleyfis fer þá eftir ákvæðum 64. gr. a.
11. gr.
Sé rökstuddur grunur um að útlendingur hafi sætt misneytingu eða alvarlegu vinnumarkaðsbroti af hálfu vinnuveitanda síns er heimilt að veita útlendingnum dvalarleyfi til 12 mánaða til þess að hann geti leitað sér að öðru starfi og leitað réttar síns kjósi hann það. Heimilt er að veita slíkt leyfi án þess að skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. séu uppfyllt. Um útgáfu dvalarleyfis fer þá eftir ákvæðum 64. gr. a.
12. gr.
Dvalarleyfi fyrir þolendur misneytingar á vinnumarkaði og alvarlegra vinnumarkaðsbrota.
a. staðfesting frá stéttarfélagi eða eftir atvikum samtökum aðila vinnumarkaðarins um að rökstuddur grunur sé um að útlendingur sé mögulegur þolandi misneytingar eða alvarlegra vinnumarkaðsbrota í því ráðningarsambandi sem dvalarleyfi hans byggist á eða
b. staðfesting frá Vinnueftirliti ríkisins um að vinnuveitandi hafi vanrækt verulega skyldur sínar gagnvart útlendingnum samkvæmt þeim lögum sem stofnunin hefur eftirlit með.
Ekki er heimilt að veita dvalarleyfi skv. 1. mgr. nema staðfesting liggi fyrir um að slit hafi orðið á ráðningarsambandi útlendings og vinnuveitanda.
Ekki er heimilt að endurnýja dvalarleyfi sem veitt er á grundvelli 1. mgr.
Ráðherra setur reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu.
13. gr.
Dvalarleyfi vegna náms á vegum opinberrar þróunarsamvinnu Íslands.
Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu eru eftirfarandi:
a. að fyrir liggi staðfesting GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu eða þess ráðuneytis sem fer með málefni þróunarsamvinnu um að útlendingi hafi verið boðin námsvist,
b. að fyrir liggi staðfesting GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu eða þess ráðuneytis sem fer með málefni þróunarsamvinnu um framfærslu námsmanns.
Dvalarleyfi skv. 1. mgr. skal ekki veitt til lengri tíma en sem nemur áætlaðri námsvist útlendings en þó aldrei lengur en til tveggja ára. Heimilt er að endurnýja leyfið að þeim tíma liðnum, enda hafi forsendur fyrir veitingu leyfisins í upphafi ekki breyst.
Ákvæði 3. mgr. 55. gr. skal ekki beitt um umsóknir á grundvelli þessa ákvæðis.
Dvalarleyfi skv. 1. mgr. getur ekki orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Óheimilt er að veita útlendingi sem hefur fengið tímabundið dvalarleyfi skv. 1. mgr. nýtt dvalarleyfi á öðrum grundvelli fyrr en að lokinni eins árs samfelldri dvöl erlendis frá lokum gildistíma leyfisins.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd þessa ákvæðis.
14. gr.
15. gr.
a. Orðin „og á framfæri og foreldrar 67 ára og eldri“ í 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að veita dvalarleyfi skv. 70.–72. gr. til nánustu aðstandenda útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli 65. gr. a og stundar fullt nám á meistarastigi eða til doktorsgráðu.
c. Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ekki er heimilt að samþykkja umsókn um fyrsta dvalarleyfi skv. 70.–72. gr. sé dvalarleyfi þess fjölskyldumeðlims, sem umsókn byggist á, veitt á grundvelli misneytingar á vinnumarkaði og alvarlegra vinnumarkaðsbrota, sbr. 4. mgr. 61. gr. eða 5. mgr. 62. gr.
Sá aðstandandi, sem umsókn um fjölskyldusameiningu byggist á, skal hafa til umráða íbúðarhúsnæði a.m.k. frá og með þeim tíma sem aðstandendum er veitt dvalarleyfi og skal það húsnæði rúma útlending og þá aðstandendur sem þar verða búsettir.
Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð nánar á um skilyrði fjölskyldusameiningar á grundvelli þessa ákvæðis. Þá skal ráðherra útfæra í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd 8. mgr.
16. gr.
a. Í stað orðsins „eitt“ í 3. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. kemur: í samfellt tvö.
b. Á eftir 3. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Við veitingu dvalarleyfis samkvæmt þessari málsgrein skulu skilyrði 70. gr. a jafnframt vera uppfyllt.
c. 5. mgr. fellur brott.
17. gr.
Aldursskilyrði hjúskapar- og sambúðarmaka.
a. aðilar gengu í hjúskap, stofnuðu til sambúðar eða eignuðust barn áður en sá maki sem búsettur er hér á landi fluttist til landsins,
b. aðilar gengu í hjúskap meðan báðir aðilar höfðu dvalarleyfi hér á landi,
c. aðilar eiga saman barn,
d. umönnunarsjónarmið vegna þess maka sem óskað er eftir sameiningu við eru aðkallandi.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, m.a. um hvað teljast vera aðkallandi umönnunarsjónarmið.
18. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „2.–4. mgr.“ kemur: 3. og 4. mgr.
b. 2. mgr. fellur brott.
19. gr.
a. Í stað orðsins „fórnarlamb“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þolandi.
b. Í stað orðsins „fórnarlambs“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: þolanda.
c. Við 4. mgr. bætist: sbr. þó d-lið 2. mgr. 58. gr.
d. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra setur reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu.
e. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Dvalarleyfi fyrir hugsanlegan þolanda mansals.
20. gr.
a. Í stað orðsins „fórnarlambi“ í 1. mgr. kemur: þolanda.
b. Við 3. mgr. bætist: sbr. þó d-lið 2. mgr. 58. gr.
c. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra setur reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu, m.a. um hvað teljist vera persónulegar aðstæður.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Dvalarleyfi fyrir þolanda mansals.
21. gr.
a. Við 3. mgr. bætist nýr stafliður: brotaferils umsækjanda hér á landi þannig að ef umsækjandi hefur endurtekið framið brot eða á mál til meðferðar í refsivörslukerfinu skal að jafnaði ekki veita dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla.
b. Í stað tilvísunarinnar „64., 65., 66., 67., 68., 75., 76., 77. og 77. gr. a.“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: 64., 65. gr. og 65. gr. a, 66., 67., 75., 76., 77. gr. og 77. gr. a.
22. gr.
Dvalarleyfi foreldris 67 ára eða eldra.
Útlendingur og aðstandandi sem umsókn byggist á skulu hafa fasta búsetu á sama stað í samræmi við ákvæði laga um lögheimili og aðsetur. Enn fremur skal aðstandandi sem umsókn byggist á hafa til umráða íbúðarhúsnæði a.m.k. frá og með þeim tíma sem umsækjanda er veitt dvalarleyfi og skal það húsnæði rúma útlendinginn og þá aðstandendur sem þar verða búsettir.
Hafi útlendingur ekki sýnt fram á trygga framfærslu skv. 56. gr. er aðstandanda heimilt að ábyrgjast framfærslu umsækjanda í samræmi við ákvæði laga þessara og hlutaðeigandi reglugerð. Teljist skilyrði um framfærslu ekki uppfyllt skal synja umsókn.
Ekki er heimilt að veita dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins ef útlendingur á aðra aðstandendur, maka eða börn, í heimaríki.
Umsókn um fyrsta dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal hafnað ef samþykki aðstandanda fyrir útgáfu þess leyfis liggur ekki fyrir.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal að jafnaði veitt til eins árs en heimilt er að veita dvalarleyfi til lengri tíma til samræmis við þann fjölskyldumeðlim sem umsókn byggist á, þó að hámarki í tvö ár. Dvalarleyfi útlendings getur þó aldrei gilt lengur en leyfi þess aðstandanda sem hann leiðir rétt sinn af. Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu um allt að tvö ár í senn enda séu skilyrði ákvæðisins enn uppfyllt.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu getur orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis en þó aðeins í því tilviki að sá fjölskyldumeðlimur sem dvalarleyfishafi leiðir rétt sinn af hafi sjálfur fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi.
Ráðherra er heimilt að útfæra skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins í reglugerð.
23. gr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um mat á skilyrðum dvalarréttar samkvæmt ákvæði þessu, þ.m.t. hvernig megi staðreyna dvöl þess EES- eða EFTA-borgara sem aðstandandi leiðir rétt sinn af skv. 86. gr.
24. gr.
a. Við 4. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Útlendingastofnun er heimilt að afla nauðsynlegra lífkennaupplýsinga, þ.e. andlitsmyndar og gagna um fingraför, vegna útgáfu skírteinis. Gæta skal ýtrustu öryggiskrafna við varðveislu lífkennaupplýsinga sem safnað er á grundvelli ákvæðisins og skulu þær ekki varðveittar lengur en þörf er á til að bera kennsl á útlending við næstu umsókn hans um endurnýjun dvalarskírteinis samkvæmt lögum þessum og eftir atvikum til útgáfu nýs dvalarskírteinis. Ekki skal varðveita lífkennaupplýsingar lengur en fimm ár frá útgáfudegi síðasta útgefna dvalarskírteinis.
b. Við 5. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Enn fremur er ráðherra heimilt að setja reglugerð sem kveður á um þær kröfur sem eru gerðar til varðveislu og forms stafrænnar skráningar lífkennaupplýsinga útlendings í samræmi við alþjóðlega staðla, sbr. 4. mgr.
25. gr.
26. gr.
a. Í stað orðanna „dvalarleyfi eða ótímabundið dvalarleyfi, EES- eða EFTA-borgara sem hefur skráð sig hér á landi skv. XI. kafla“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: dvalarleyfi, ótímabundið dvalarleyfi, rétt til ótímabundinnar dvalar EES- eða EFTA-borgara og aðstandenda þeirra.
b. Á eftir 3. málsl. 1. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvörðun um brottvísun EES- eða EFTA-borgara eða aðstandanda hans sem ekki hefur ótímabundinn dvalarrétt má ekki framkvæma meðan beiðni um frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar skv. 29. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er til meðferðar hjá kærunefnd útlendingamála. Þetta gildir þó ekki ef ákvörðun um brottvísun er tekin á grundvelli brýnna ástæðna er varða almannaöryggi skv. b- eða c-lið 1. mgr. 97. gr. Kærunefnd útlendingamála skal taka afstöðu til beiðni um frestun réttaráhrifa svo fljótt sem verða má.
27. gr.
28. gr.
Umsóknir um dvalarleyfi vegna náms sem bárust fyrir gildistöku laga þessara og varða útlendinga í námi á vegum opinberrar þróunarsamvinnu Íslands skulu afgreiddar samkvæmt lögum þessum.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. halda dvalarleyfi sem gefin hafa verið út á grundvelli 68. gr. fyrir gildistöku laga þessara gildi sínu. Enn fremur er heimilt er að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli 68. gr. laganna sem eru í gildi við gildistöku laga þessara, enda séu skilyrði endurnýjunar samkvæmt þeim ákvæðum sem giltu fyrir gildistöku laga þessara uppfyllt. Skyldur Útlendingastofnunar skv. 8. mgr. 68. gr. laganna halda gildi sínu meðan dvalarleyfi á grundvelli 68. gr. og þessarar málsgreinar vara.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. halda dvalarleyfi sem gefin hafa verið út á grundvelli 2. mgr. 72. gr. laganna fyrir gildistöku laga þessara gildi sínu. Enn fremur er heimilt er að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 72. gr. laganna, sem voru í gildi fyrir gildistöku laga þessara, enda séu skilyrði endurnýjunar samkvæmt þágildandi ákvæðum uppfyllt sem og skilyrði 2. og 3. mgr. 22. gr. laga þessara.
29. gr.
1. Lög um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019: Við 3. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Starfsmenn sendiráða á Íslandi sem eru erlendir ríkisborgarar, makar þeirra og börn.
2. Lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002: Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
a. Í stað orðsins „ári“ í inngangsmálslið 1. mgr. kemur: hverju tólf mánaða tímabili.
b. Í stað orðsins „ári“ í fyrirsögn greinarinnar kemur: hverju tólf mánaða tímabili.
3. Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991: Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 14. gr. laganna:
a. Við 6. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Fyrir umsókn um dvalarleyfi foreldris 67 ára eða eldra 110.000 kr.
b. Við 7. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Fyrir umsókn um dvalarleyfi foreldris 67 ára eða eldra 60.000 kr.
c. Við 12. tölul. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að fella niður gjald vegna umsóknar um dvalarleyfi fyrir útlending í námi á vegum opinberrar þróunarsamvinnu Íslands, sbr. 65. gr. a. Það sama gildir um nánustu aðstandendur sem fylgja umsækjanda hingað til lands.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.