Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 366 — 314. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013 (tekjuöflun Ríkisútvarpsins o.fl.).
Frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
1. gr.
Í stað orðanna „a.m.k. tveimur hljóðvarpsdagskrám og einni sjónvarpsdagskrá“ í 1. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: hljóðvarps- og sjónvarpsdagskrám.
2. gr.
Við 1. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna bætist: að frádreginni fjárhæð sem svarar til 10% af tekjum Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum skv. 7. gr. Hlutfallið reiknast af fjárhæð sem svarar til meðaltekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum síðustu fjögur reikningsár, samkvæmt ársreikningum dótturfélaga, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.