Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.









Þingsályktun



um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu
þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.


________




    Alþingi ályktar skv. 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, að unnið verði samkvæmt eftirfarandi stefnu og framkvæmdaáætlun til ársins 2030.

STEFNA

I. Framtíðarsýn.
    Framtíðarsýn stefnunnar er sú að Ísland verði barnvænt samfélag þar sem réttindi, velferð og öryggi barna eru alltaf sett í fyrsta sæti. Framtíðarsýninni verði náð með heildstæðri nálgun með áherslu á samfellu og samþættingu við veitingu þjónustu. Sérstaklega verði hugað að þörfum barna í viðkvæmri stöðu.
    Stefnan hvíli á sex stoðum:
     a.      jafnræði,
     b.      barnvænni nálgun og þátttöku,
     c.      viðeigandi stuðningi,
     d.      fræðslu, forvörnum og réttindum,
     e.      framúrskarandi fagfólki,
     f.      áreiðanlegum gögnum.

II. Stoðir.
A. Jafnræði.
    Lögð verði áhersla á að tryggja jafnræði allra barna og fjölskyldna þeirra óháð búsetu, sérstök áhersla verði lögð á börn í viðkvæmri stöðu.

B. Barnvæn nálgun og þátttaka.
    Lögð verði áhersla á að tryggja barnvæna nálgun og möguleika allra barna til þátttöku í eigin málum. Sérstök áhersla verði lögð á að umhverfi, viðhorf, stjórnsýsla og þjónusta taki mið af skoðunum, þörfum og hagsmunum barna svo að þau hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið og eigið líf.

C. Viðeigandi stuðningur.
    Lögð verði áhersla á að þörfum allra barna og fjölskyldna þeirra verði mætt með viðeigandi stuðningi og þjónustu í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni. Sérstök áhersla verði lögð á að þjónusta og úrræði standi þeim til boða um leið og þörf krefur.

D. Fræðsla, forvarnir og réttindi.
    Lögð verði áhersla á að fræðsla, forvarnir og réttindi barna liggi til grundvallar allri stefnumótun um málefni barna sem og þegar þjónusta er veitt. Lögð verði sérstök áhersla á valdeflingu barna og fjölskyldna þeirra.

E. Framúrskarandi fagfólk.
    Lögð verði áhersla á að farsældarþjónusta í þágu barna verði veitt af framúrskarandi fagfólki. Sérstök áhersla verði lögð á að styrkja fagþekkingu og starfsumhverfi sem styður þær fjölbreyttu starfsstéttir sem sinna þeim störfum sem um ræðir.

F. Áreiðanleg gögn.
    Lögð verði áhersla á að áreiðanleg gögn liggi til grundvallar ákvarðanatöku, stefnumótun og forgangsröðun í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Sérstök áhersla verði lögð á að gögnin veiti innsýn í þarfir og stöðu fjölbreyttra hópa barna.

III. Innleiðing.
    Innleiðing stefnu þessarar verði viðvarandi verkefni stjórnvalda í víðtæku samráði við börn og samfélagið allt.
    Samráðsvettvangur þeirra ráðherra sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, sbr. 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, annist eftirfylgni framkvæmdaáætlunar, meti árangur hennar og geri ráðherra mennta- og barnamála reglubundið grein fyrir framvindu hennar.
    Unnið verði í samræmi við eftirfarandi framkvæmdaáætlun til að tryggja framgang framangreindrar framtíðarsýnar og sex stoða stefnu um farsæld barna.

FRAMKVÆMDAÁÆTLUN

1. Aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
    Aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna verði kortlagt og greint. Gerðar verði tillögur að úrbótum til að bæta aðgengi að þjónustu sé þess þörf.
     Markmið: Jafnt aðgengi allra barna að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti og Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, svæðisbundin farsældarráð, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, Samband íslenskra sveitarfélaga og frjáls félagasamtök.
     Tímabil: 2027–2028.
     Mælikvarði: Greining á aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna liggi fyrir og, eftir atvikum, tillögur að úrbótum.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.

2. Svæðisstöðvar íþróttahéraða.
    Skapaðar verði forsendur til að auka þátttöku barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu í íþróttastarfi með því að festa svæðisstöðvar íþróttahéraða í sessi.
     Markmið: Svæðisstöðvar íþróttahéraða verði virkur hluti af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og styðji markvisst við aukna þátttöku barna í viðkvæmri stöðu í íþróttastarfi.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Barna- og fjölskyldustofa og sveitarfélög.
     Tímabil: 2027–2030.
     Mælikvarði: Við lok tímabils taki fleiri börn í viðkvæmri stöðu þátt í skipulögðu íþróttastarfi en við upphaf þess.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.

3. Samfelld miðlun upplýsinga í þágu farsældar barns.
    Fram fari kortlagning á kerfislægum hindrunum, m.a. í lagaumhverfi, sem koma í veg fyrir að nauðsynlegar upplýsingar um barn berist greiðlega og örugglega á milli þeirra sem veita þjónustuna. Þá verði skoðað hvaða leiðir séu best til þess fallnar að tryggja að nauðsynleg gögn í máli barns í samþættri þjónustu geti fylgt barni á milli þjónustuveitenda. Jafnframt verði unnið að þróun tæknilausna sem styðji örugga og skilvirka upplýsingamiðlun á milli aðila.
     Markmið: Samræmd skráning og aðgengileg og örugg miðlun nauðsynlegra upplýsinga um barn í samþættri þjónustu á milli þjónustuveitenda.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Persónuvernd.
     Tímabil: 2027–2028.
     Mælikvarði: Greining á kerfislægum hindrunum sem koma í veg fyrir samfellda miðlun nauðsynlegra upplýsinga liggi fyrir ásamt tillögum að breytingum á lögum og/eða reglugerðum.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.

4. Barnvænt fræðsluefni um samþætta þjónustu.
    Gefið verði út fræðslu- og upplýsingaefni um samþætta þjónustu og efnið sett fram á barnvænu máli í samvinnu við börn. Fylgt verði meginreglum um algilda hönnun og viðeigandi aðlögun, svo sem auðlesið efni og ólík tjáskiptaform. Hugað verði að mismunandi aldri og þroska barna við gerð fræðsluefnisins. Efnið verði jafnframt þýtt á þau tungumál sem þörf er á samkvæmt þarfagreiningu. Unnið verði að innleiðingu á fræðslu sem miði að því að börn séu vel upplýst um efni laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hvernig lögin geti stutt við börn.
     Markmið: Þekking barna á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna aukist svo að þau þekki rétt sinn og séu upplýst um tengiliði í nærumhverfi sínu.
     Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Samband íslenskra sveitarfélaga, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, umboðsmaður barna, félagasamtök sem vinna að málefnum barna og íþrótta- og æskulýðssamtök.
     Tímabil: 2027–2029.
     Mælikvarði: Fjölbreytt fræðsluefni fyrir börn um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna verði gefið út og gert aðgengilegt fyrir börn. Fræðsluáætlun verði unnin og innleidd.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.

5. Innleiðing hagsmunamats út frá réttindum barna.
    Hagsmunamat út frá réttindum barna verði innleitt innan Stjórnarráðsins sem hluti af skyldubundnu ferli við undirbúning lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna, stefnumótandi ákvarðana og ákvarðana í málefnum einstakra barna. Framkvæmd hagsmunamatsins verði skýrð fyrir þeim sem vinna það. Fræðsla, fræðsluefni og þjálfun um framkvæmd og beitingu matsins í málum sem varða börn verði aðgengileg starfsfólki ráðuneyta.
     Markmið: Hagsmunir og réttindi barna verði höfð að leiðarljósi við stefnumótun og ákvarðanatöku innan Stjórnarráðs Íslands og styðji þannig farsæld barna.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna og umboðsmaður barna.
     Tímabil: 2027–2029.
     Mælikvarði: Við lok tímabils verði innleiðingu á hagsmunamati út frá réttindum barna lokið, hvert ráðuneyti með skilgreindan ábyrgðaraðila og fræðsluefni aðgengilegt starfsfólki ráðuneyta.
     Stoðir stefnu: B-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og f-liður um áreiðanleg gögn.

6. Þátttaka barna í eigin farsæld.
    Þátttaka barna í gerð stuðningsáætlana um samþætta þjónustu verði rýnd með hliðsjón af aðkomu þeirra og upplifun af ferlinu. Samdar verði leiðbeiningar fyrir málstjóra um þátttöku barna í gerð eigin stuðningsáætlana ásamt upplýsingaefni fyrir börn um rétt þeirra til þátttöku og aðkomu að gerð stuðningsáætlunar. Upplýsingaefnið taki m.a. til mismunandi aldurshópa, hvernig börn geti óskað eftir því að tjá sig, hvað þau geti gert ef þau telja ekki hlustað á sig og hvernig endurgjöf til barna verði háttað. Fylgt verði meginreglum um algilda hönnun og viðeigandi aðlögun, svo sem auðlesið efni og ólík tjáskiptaform.
     Markmið: Valdefling barna og aukin þátttaka í eigin farsæld.
     Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, umboðsmaður barna, félagasamtök sem vinna að málefnum barna og þjónustuveitendur sem koma að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna, svo sem málstjórar.
     Tímabil: 2027–2029.
     Mælikvarði: Við lok tímabils verði rýni á þátttöku og aðkomu barna að eigin stuðningsáætlun lokið. Leiðbeiningar um verklag fyrir málstjóra liggi fyrir og kynning á þeim hafi farið fram. Upplýsingaefni fyrir börn varðandi þátttöku þeirra í eigin farsæld liggi fyrir.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.

7. Bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn.
    Gerð verði þarfagreining á því hvað helst skorti í þjónustu og stuðningi við börn ásamt því að kortlagðir verði biðlistar þar sem börn bíða eftir lögbundinni þjónustu. Leitað verði lausna og lagðar fram tillögur að aðgerðum til að vinna á biðlistum.
     Markmið: Bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og fjölskyldustofa, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, umboðsmaður barna, Samband íslenskra sveitarfélaga og svæðisbundin farsældarráð.
     Tímabil: 2026–2027.
     Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir kortlagning á biðlistum og tillögur að forgangsröðun og úrbótum út frá þarfagreiningu.
     Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.

8. Farsæld í framhaldsskólum.
    Stutt verði við innleiðingu á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum með þróun gæðamælikvarða, samræmdri verklýsingu fyrir tengiliði sem starfa í framhaldsskólum og samræmdu verklagi sem tryggi hnökralausan flutning mála á milli skólastiga. Jafnframt verði samræmd upplýsingamiðlun í framhaldsskólum og fræðsla um farsæld barna efld fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.
     Markmið: Bætt aðgengi og þekking á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum ásamt aukinni samfellu í þjónustu þegar barn færist úr grunnskóla í framhaldsskóla.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Barna- og fjölskyldustofa, Persónuvernd, Skólameistarafélag Íslands og Samtök íslenskra framhaldsskólanema.
     Tímabil: 2026–2027.
     Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir verklýsing fyrir tengiliði farsældar í framhaldsskólum og verklag um flutning mála frá grunnskóla í framhaldsskóla. Skráðum tilvísunum eða málum í samþættri þjónustu í þágu farsældar barna innan framhaldsskóla hafi fjölgað um 25% miðað við mælingu þann 1. apríl 2026 og málum sem færast á milli skólastiga fjölgað um 20% frá samþykkt framkvæmdaáætlunar og til loka tímabils áætlunar.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og e-liður um framúrskarandi fagfólk.

9. Yfirsýn yfir stigskipta þjónustu hjá sveitarfélögum og ríki.
    Í samstarfi við sveitarfélög og viðeigandi stofnanir verði tekið saman yfirlit yfir fyrsta, annars og þriðja stigs úrræði og þjónustu fyrir börn samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Yfirlitið verði aðgengilegt starfsfólki þjónustuveitenda.
     Markmið: Að starfsfólk þjónustuveitenda hafi góða yfirsýn yfir úrræði og þjónustu fyrir börn.
     Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og svæðisbundin farsældarráð.
     Tímabil: 2027–2028.
     Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir yfirlit yfir þjónustu og úrræði fyrir börn í hverju sveitarfélagi. Í yfirliti verði tilgreint á hvaða stigi þjónustan og úrræðin eru.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, e-liður um framúrskarandi fagfólk og f-liður um áreiðanleg gögn.

10. Heildstæð endurskoðun á þjónustufarvegi fyrir börn með taugaþroskaraskanir.
    Núverandi þjónustufarvegur fyrir börn sem sýna einkenni taugaþroskaraskana verði rýndur og gerðar tillögur að skilvirkari þjónustufarvegi þvert á kerfi. Hugað verði sérstaklega að þjónustufarvegi nær heimabyggð.
     Markmið: Bætt þjónusta og aukið samstarf þvert á þjónustukerfi fyrir börn með taugaþroskaraskanir óháð búsetu.
     Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Ráðgjafar- og greiningarstöð og Geðheilsumiðstöð barna.
     Tímabil: 2026–2028.
     Mælikvarði: Tillögur að bættum þjónustufarvegi liggi fyrir við lok tímabils ásamt áætlun um innleiðingu skammtíma- og langtímaumbóta.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning.

11. Samræmd innleiðing farsældar í heilbrigðis-, mennta- og barnaverndarkerfum.
    Á tímabili framkvæmdaáætlunarinnar starfi formlegur samhæfingarhópur á vegum heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Hlutverk hópsins verði að efla og samræma innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á kerfi. Hópurinn stuðli að skýrri ábyrgðarskiptingu, samræmdu verklagi og auknu samstarfi á milli heilbrigðis-, mennta- og barnaverndarkerfa með það að markmiði að tryggja snemmtækan, samfelldan og samþættan stuðning við börn og foreldra þeirra.
     Markmið: Efld, samþætt og samræmd þjónusta í þágu farsældar barna þvert á þjónustukerfi.
     Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Geðheilsumiðstöð barna, Ráðgjafar- og greiningarstöð og svæðisbundin farsældarráð.
     Tímabil: 2027–2030.
     Mælikvarði: Við lok tímabils hafi samhæfingarhópur sameinast um markmið og ábyrgð og skilgreint forgangsatriði með það að markmiði að auka samhæfingu í framkvæmd og bæta upplýsingaflæði á milli kerfa.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning og e-liður um framúrskarandi fagfólk.

12. Áframhaldandi stuðningur við svæðisbundin farsældarráð barna.
    Svæðisbundin farsældarráð á vegum sveitarfélaga verði öflugur vettvangur svæðisbundinnar samvinnu þjónustuveitenda ríkis og sveitarfélaga. Skilgreindar verði leiðir til áframhaldandi stuðnings við starfsemi farsældarráða í hverjum landshluta með það að markmiði að farsældarráðin nái fótfestu.
     Markmið: Svæðisbundin farsældarráð verði öflugur vettvangur samráðs í öllum landshlutum og leiði svæðisbundna forgangsröðun í þágu farsældar barna.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Svæðisbundin farsældarráð.
     Tímabil: 2027.
     Mælikvarði: Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða til fjögurra ára liggi fyrir í öllum landshlutum við lok tímabils.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning og e-liður um framúrskarandi fagfólk.

13. Árangur farsældarstyrkja.
    Greindur verði árangur verkefna sem hlotið hafa styrk á grundvelli auglýsingar frá mennta- og barnamálaráðuneyti til að efla farsæld barna. Skýrslur styrkþega verði rýndar og lagt mat á hvort þar séu verkefni sem ástæða sé til að þróa eða innleiða á breiðari grundvelli.
     Markmið: Árangur farsældarstyrkja verði metinn og verkefnum sem hafa reynst vel miðlað og, eftir atvikum, þau innleidd á breiðari grundvelli.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Barna- og fjölskyldustofa og styrkþegar.
     Tímabil: 2028.
     Mælikvarði: Greinargerð um afrakstur verkefna sem hlotið hafa farsældarstyrki liggi fyrir ásamt tillögum að verkefnum sem ástæða verði til að þróa eða innleiða frekar.
     Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og f-liður um áreiðanleg gögn.

14. Sameiginlegur skilningur þjónustuveitenda.
    Skilningur á hlutverki og verksviði þeirra sem veita samþætta þjónustu í þágu farsældar barna verði aukinn og samræmdur með fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu fyrir starfsfólk á vettvangi. Áhersla verði lögð á að styðja og efla tengiliði og málstjóra í hlutverki sínu.
     Markmið: Þjónustuveitendur sem sinna samþættri þjónustu í þágu farsældar barna hafi skýran og sameiginlegan skilning á ábyrgð sinni, hlutverki og skyldum samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og beiti þeim í framkvæmd.
     Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
     Tímabil: 2027–2029.
     Mælikvarði: Skýrsla Barna- og fjölskyldustofu um sameiginlegan skilning þjónustuveitenda á samþættri þjónustu við börn liggi fyrir.
     Stoðir stefnu: D-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og e-liður um framúrskarandi fagfólk.

15. Fræðsla fyrir stjórnendur.
    Þróuð verði fræðsla um innleiðingu á samþættingu þjónustu sem beint verði sérstaklega að stjórnendum innan mennta- og heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustu. Stjórnendum verði boðið að sækja sér fræðslu um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til að styrkja þekkingu þeirra á inntaki laganna.
     Markmið: Þekking og skilningur stjórnenda í viðeigandi þjónustukerfum á samþættingu þjónustu aukist.
     Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Háskólasamfélagið.
     Tímabil: 2027–2030.
     Mælikvarði: Við lok tímabils hafi helmingur stjórnenda innan mennta- og heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustu sótt námskeiðið.
     Stoðir stefnu: E-liður um framúrskarandi fagfólk.

16. Árangur af fyrstu fimm árum samþættrar þjónustu.
    Lagt verði mat á árangur af innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku laganna. Byggt verði á fyrirliggjandi gögnum og ráðist í frekari rannsóknir eða upplýsingaöflun eftir því sem við á. Þá verði gerð greining á kostnaði sveitarfélaga við framkvæmd laganna. Niðurstöður matsins verði settar fram í skýrslu sem kunni, eftir atvikum, að innihalda tillögur að úrbótum í samræmi við markmið laganna.
     Markmið: Að varpa ljósi á reynslu af lögunum frá gildistöku þeirra með áreiðanlegum gögnum í þeim tilgangi að bæta ákvarðanatöku og forgangsröðun um áframhaldandi innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
     Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur í þágu farsældar barna, félagasamtök og háskólasamfélagið.
     Tímabil: 2027–2029.
     Mælikvarði: Skýrsla liggi fyrir um árangur innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku.
     Stoðir stefnu: F-liður um áreiðanleg gögn.



_____________







Samþykkt á Alþingi 11. nóvember 2026.