Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 410  —  326. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á tónlistarlögum, nr. 33/2023
(framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands).


Flm.: Gunnar Guðjónsson, Anna María Jónsdóttir, Pawel Bartoszek, Grímur Grímsson, Sandra Sigurðardóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson.


    1. gr.

    Í stað orðanna „fjögurra ára“ í 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: fimm ára.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Greinargerð.

         Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að ráða framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands til fimm ára í senn í stað fjögurra ára. Takmörkun á endurráðningu helst óbreytt.
    Samkvæmt 2. mgr. 9. gr. tónlistarlaga, nr. 33/2023, ræður stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands sér framkvæmdastjóra til fjögurra ára í senn. Skv. 3. mgr. sömu greinar má aðeins ráða sama einstakling tvisvar sinnum og getur framkvæmdastjóri því lengst gegnt starfinu í átta ár.
    Starf hljómsveitarinnar er skipulagt langt fram í tímann. Samningar við aðalhljómsveitarstjóra, einleikara og gestastjórnendur, tónleikaferðir og hljóðritanir eru oft gerðir nokkur ár fram í tímann. Fjögurra ára ráðningartími er stuttur í því ljósi, en nýr framkvæmdastjóri fylgir fyrst um sinn áætlunum forvera síns og vart komin reynsla á eigin rekstrarráðstafanir þegar huga þarf að endurráðningu.
    Fimm ára ráðningartími er auk þess í samræmi við það sem tíðkast um aðrar sérlögbundnar menningarstofnanir ríkisins. Þjóðleikhússtjóri, listdansstjóri Íslenska dansflokksins og óperustjóri eru skipaðir til fimm ára í senn samkvæmt lögum um sviðslistir, nr. 165/2019, og má skipa þá að nýju til fimm ára en eigi oftar.
    Þó svo að framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar sé ekki skipaður í embætti líkt og á við um þjóðleikhússtjóra, listdansstjóra Íslenska dansflokksins og óperustjóra er um að ræða eðlislík hlutverk æðstu stjórnenda innan stofnana sem starfa á sviði lista og menningar. Mikilvægt er að tryggja sambærilegan fyrirsjáanleika um stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gildir um aðrar grundvallarstofnanir á sviði lista og menningar.