Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 411 — 165. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.
1. Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
Ekki hefur verið talin þörf á því að setja sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna innlendra fjölmiðla. Ráðherra hefur á kjörtímabilinu veitt íslenskum fjölmiðlum ótal viðtöl, bæði útvarps- og sjónvarpsþáttum og vefmiðlum á borð við mbl.is og visir.is auk þess að vera gestur í fjölmörgum hlaðvarpsþáttum. Skapast hefur hefð fyrir því að ráðherrar veiti íslenskum fjölmiðlum viðtöl eftir ríkisstjórnarfundi sem að jafnaði eru haldnir tvisvar í viku. Um 150 ríkisstjórnarfundir hafa verið haldnir á kjörtímabilinu. Ráðherrar veita líka viðtöl eftir viðburði sem þeir sækja. Ráðherra hefur kappkostað að veita fjölmiðlaviðtöl þegar eftir því er leitað og svigrúm finnst í dagskrá. Berist skrifleg beiðni um viðtal er henni svarað og hún þá skráð í málaskrá ráðuneytisins. Flestar skriflegar viðtalsbeiðnir berast frá erlendum fjölmiðlum.
2. Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Eins og kemur fram í 1. tölulið hefur skapast hefð fyrir því að ráðherrar veiti fjölmiðlum viðtöl eftir ríkisstjórnarfundi sem að jafnaði eru haldnir tvisvar í viku. Aðeins fannst eitt tilvik þar sem formlegri viðtalsbeiðni var hafnað. Hún barst með tölvupósti til upplýsingafulltrúa ráðuneytisins og var frá blaðamanni hjá hollenska blaðinu Algemeen Dagblad. Ráðherra var vant við látin þegar umræddur blaðamaður var staddur í Reykjavík.
3. Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Ráðherra veitir alla jafna viðtöl þegar eftir því er leitað og svigrúm er í dagskránni. Dagbók ráðherra, sem birt er á vef ráðuneytisins, gefur takmarkaða vísbendingu um þann fjölda viðtala sem ráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu. Þau viðtöl sem skráð eru í dagbók er að finna hér að neðan. Upptalning miðast við 26. október á þessu ári.
2026
Mánudagur 26. október: Viðtal við RÚV.
Miðvikudagur 14. október: Viðtal í morgunútvarpi Rásar 2.
Þriðjudagur 13. október: Viðtal í hlaðvarpi Stígamóta.
Föstudagur 2. október: Viðtal við Ólaf Arnarson fyrir hlaðvarp Eyjunnar.
Mánudagur 28. september: Viðtal í Reykjavík síðdegis.
Mánudagur 24. ágúst: Viðtal við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu.
Föstudagur 21. ágúst: Hlaðvarpsupptaka hjá Sölva Tryggvasyni.
Mánudagur 17. ágúst: Hlaðvarpsupptaka Chess after dark.
Þriðjudagur 9. júní: Viðtal í kvöldfréttum Sýnar.
Miðvikudagur 13. maí: Viðtal við fréttastofu RÚV.
Mánudagur 11. maí: Viðtal í Brotkastinu.
Fimmtudagur 30. apríl: Viðtal í Kastljósi.
Þriðjudagur 24. mars: Viðtal í Bítinu á Bylgjunni.
Þriðjudagur 3. febrúar: Viðtal í Bítinu á Bylgjunni.
2025
Fimmtudagur 18. desember: Upptaka á hlaðvarpinu Á öðrum bjór.
Fimmtudagur 4. desember: Upptaka á hlaðvarpinu Ein pæling.
Mánudagur 10. nóvember: Viðtal í Kastljósi.
Fimmtudagur 23. október: Viðtal við Sky News í tilefni af 50 ára afmæli kvennaverkfalls.
Fimmtudagur 25. september: Viðtal í Bítinu á Bylgjunni um fangelsismál.
Þriðjudagur 23. september: Viðtal við RÚV.
Föstudagur 19. september: Upptaka á viðtali fyrir verkefnið Jafnréttislandið Ísland.
Þriðjudagur 9. september: Viðtal í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggva.
Fimmtudagur 3. júlí: Viðtal í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Mánudagur 16. júní: Viðtal í Eyjunni – hlaðvarpi.
Miðvikudagur 16. apríl: Viðtal við Spegilinn.
Miðvikudagur 26. mars: Viðtal í morgunútvarpi Rásar 2 um nálgunarbann.
Mánudagur 24. mars: Viðtal við Stöð 2.
Laugardagur 22. mars: Bakaríið á Bylgjunni.
Miðvikudagur 19. mars: Viðtal í Bítinu á Bylgjunni.
Þriðjudagur 18. mars: Símaviðtal á Rás 2.
Fimmtudagur 6. mars: Viðtal í Kastljósi.
Mánudagur 20. janúar: Viðtal í Reykjavík síðdegis.
Þriðjudagur 7. janúar: Er þetta frétt? – upptaka hjá RÚV.