Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 412  —  138. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um strandsvæðisskipulag Austfjarða og leyfisveitingar í Seyðisfirði.


     1.      Hefur nýtt svæðisráð fyrir Austfirði verið skipað í samræmi við 5. gr. laga nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða? Ef svo er ekki, hvenær er fyrirhugað að skipa ráðið og hver er ástæða þess að það hefur ekki verið gert?
    Já, nýtt svæðisráð fyrir Austfirði var skipað þann 16. október 2026.

     2.      Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert í tilefni af áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12804/2024 og hefur verið lagt mat á hvort tilefni sé til frekari endurskoðunar á strandsvæðisskipulagi Austfjarða vegna þeirra annmarka sem þar voru staðreyndir?
    Í kjölfar álits umboðsmanns í máli nr. 12804/2024 og þeim tilmælum sem beint var til ráðuneytisins í álitinu, tók ráðuneytið til skoðunar þá málsmeðferð sem lauk með staðfestingu innviðaráðherra á tillögu svæðisráðs að strandsvæðisskipulagi Austfjarða. Það er mat ráðuneytisins að umræddir annmarkar sem umboðsmaður Alþingis telur hafa verið á málsmeðferðinni séu ekki það verulegir að rétt sé að fella strandsvæðisskipulagið úr gildi. Ekki hefur verið tekin endanleg afstaða til þess hvort tilefni sé til frekari endurskoðunar á strandsvæðisskipulagi Austfjarða á grundvelli umrædds álits umboðsmanns Alþingis.

     3.      Hvaða afmörkun netlaga leggur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) til grundvallar við meðferð umsókna um byggingarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði og á hvaða lagaheimild byggist sú afmörkun? Hefur stofnunin kannað hvort fyrirhuguð mannvirki eða starfsemi falli að einhverju leyti innan netlaga samkvæmt lögum nr. 88/2018?
    Ráðuneytið hafði milligöngu um að afla þessara upplýsinga frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Í svari HMS segir að við mat á samræmi byggingarleyfisumsókna við strandsvæðisskipulag Austfjarða sé miðað við að netlög séu 115 metra belti út frá stórstraumsfjöruborði, sbr. 2. tölul. 3. gr. laga nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða. Landfræðileg afmörkun netlaga í Seyðisfirði hafi verið byggð á fyrirliggjandi mælingum Náttúrufræðistofnunar á stórstraumsfjöruborði. Samkvæmt þeim gögnum eru fyrirhuguð mannvirki staðsett utan netlaga.
    Þá kveðst HMS munu taka mið af niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2607013 við meðferð byggingarleyfisumsóknanna. Þótt mannvirkin sjálf séu samkvæmt fyrirliggjandi gögnum staðsett utan netlaga muni stofnunin taka mið af því hvaða áhrif mannvirkin og tengd starfsemi kunni að hafa innan netlaga og hvort þau skerði þau réttindi sem fylgi viðkomandi sjávarjörðum.

     4.      Á hvaða grundvelli hefur HMS metið að eigendur sjávarjarða í Seyðisfirði eigi ekki aðild að byggingarleyfismálum vegna fyrirhugaðs sjókvíaeldis þegar mannvirki eða starfsemi kann að vera innan netlaga viðkomandi jarða eða í næsta nágrenni við þau?
    Ráðuneytið hafði milligöngu um að afla þessara upplýsinga frá HMS. Samkvæmt svari HMS hafi mat stofnunarinnar á málsaðild eigenda sjávaraðila byggst á almennum reglum stjórnsýsluréttar um aðild og mati á því hvort viðkomandi ætti beina, sérstaka og lögvarða hagsmuni af úrlausn byggingarleyfisumsóknar. Við fyrri meðferð málsins hafi m.a. verið lagt til grundvallar að fyrirhuguð mannvirki væru staðsett utan netlaga og í samræmi við strandsvæðisskipulag Austfjarða.
    Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2607013 hafi nefndin talið það óvarlegt hjá HMS að synja landeigendum um aðild. Nefndin hafi m.a. komist að þeirri niðurstöðu að HMS skyldi fjalla um kröfur landeiganda um málsaðild með hliðsjón af meintri skerðingu þeirra réttinda sem landareignum fylgja í fjöru og til sjávar, þ.e. heimilda landeigenda til hlunnindanýtingar. Í ljósi úrskurðarins verði við áframhaldandi meðferð byggingarleyfisumsókna fyrir sjókvíar lagt heildstætt mat á hagsmuni eigenda aðliggjandi sjávarjarða, þar á meðal hvort mannvirkin sjálf eða áhrif þeirrar starfsemi sem þeim tengist nái inn á netlög og hafi áhrif á þau réttindi sem landareignunum fylgja.

     5.      Hvaða stjórnvald ber ábyrgð á því að tryggja við leyfisveitingar og eftirlit að fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði stofni sæstrengnum FARICE-1 ekki í hættu? Hvernig hefur verið brugðist við athugasemdum Farice ehf. um óskýrt regluverk og eftirlit á þessu sviði?
    Samkvæmt lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, eru leyfisveitingar vegna fiskeldis á verksviði fleiri en eins stjórnvalds. Matvælastofnun fer með úthlutun rekstrarleyfa og Umhverfis- og orkustofnun fer með úthlutun starfsleyfa. Útgáfa rekstrarleyfa til fiskeldisfyrirtækja heyrir undir málefnasvið atvinnuvegaráðuneytis. Útgáfa starfsleyfa til fiskeldisfyrirtækja heyrir undir málefnasvið umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis. Þá heyra málefni fjarskipta undir innviðaráðuneyti.
    Ráðuneytið hafði milligöngu um að afla upplýsinga frá HMS en stofnunin ber ábyrgð á útgáfu byggingarleyfa og að sinna eftirliti með því að staðsetning mannvirkja í sjó samræmist samþykktum hönnunargögnum og í samræmi við strandsvæðisskipulag Austfjarða. HMS afmarkar byggingarleyfið og eftirlit sitt við að framkvæmd sé í samræmi við þá uppdrætti samkvæmt lögum nr. 160/2010, um mannvirki. Við veitingu byggingarleyfis beri HMS einnig að kanna hvort eldi sé í samræmi við skilmála strandsvæðisskipulags Austfjarða, en í greinargerð skipulagsins sé fjallað sérstaklega um umræddan Farice-1 streng.

     6.      Hefur ráðherra tekið afstöðu til beiðna um sjálfstæða stjórnsýsluúttekt á málsmeðferð vegna strandsvæðisskipulags og leyfisveitinga fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði? Ef svo er, hver er sú afstaða og telur ráðherra tilefni til að slík úttekt fari fram áður en frekari ákvarðanir um byggingarleyfi verða teknar?
    Ráðherra hefur ekki tekið afstöðu til beiðna um sjálfstæða stjórnsýsluúttekt á málsmeðferð vegna strandsvæðisskipulags og leyfisveitinga fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði.