Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 418 — 328. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um náttúru- og innviðagjald.
Frá atvinnuvegaráðherra.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Aðgangsskírteini.
Aðgangsskírteini skulu vera persónubundin og veita aðgang að öllum gjaldskyldum landsvæðum skv. 5. gr. og skal gefið út til:
a. einstaklinga, sem gjaldskyldir eru skv. 4. gr., enda hafi þeir greitt náttúru- og innviðagjald skv. 3. gr., eða eru undanþegnir gjaldskyldu skv. 3. mgr. 4. gr.
b. einstaklinga, 18 ára og eldri, sem borið hafa almenna skattskyldu hér á landi, sbr. 1. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, á næstliðnu tekjuári fyrir gildistöku aðgangsskírteinis.
Gildistími aðgangsskírteina er 12 mánuðir, annars vegar frá útgáfudegi fyrir einstaklinga sem eru gjaldskyldir skv. 4. gr. en hins vegar frá 1. júní til 31. maí árið eftir fyrir einstaklinga sem bera almenna skattskyldu hér á landi. Aðgangsskírteini sem gefið er út gegn greiðslu lækkaðs náttúru- og innviðagjalds skv. 2. mgr. 3. gr. gildir þó eingöngu innan þess tímabils sem þar er kveðið á um.
3. gr.
Náttúru- og innviðagjald.
Þrátt fyrir 1. mgr. skal fjárhæð náttúru- og innviðagjalds fyrir aðgang að gjaldskyldum landsvæðum skv. 5. gr. á tímabilinu frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir vera 3.000 kr.
Ráðherra skal tryggja að reglulega séu teknar saman upplýsingar um heimsóknir á gjaldskyld landsvæði skv. 5. gr. og álag á náttúru þeirra og innviði.
Fjárhæð náttúru- og innviðagjalds og sekta samkvæmt lögum þessum skal taka til endurskoðunar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
Gjaldið rennur í ríkissjóð.
4. gr.
Gjaldskylda.
Greiðsla náttúru- og innviðagjalds er forsenda þess að einstaklingur skv. 1. mgr. fái útgefið aðgangsskírteini skv. 2. gr.
Þurfi fatlaður einstaklingur á aðstoðarmanni að halda til þess að geta heimsótt gjaldskyld landsvæði skal aðstoðarmaðurinn vera undanþeginn gjaldskyldu skv. 1. mgr.
5. gr.
Gjaldskyld landsvæði.
För um veg innan gjaldskyldra landsvæða, án þess að viðkomandi dvelji þar í þeim tilgangi að heimsækja svæðið, telst ekki heimsókn í skilningi laga þessara. Sama gildir ef gera þarf stutt hlé á akstri, svo sem vegna umferðar eða öryggis.
6. gr.
Framkvæmdaraðili.
a. annast álagningu og innheimtu náttúru- og innviðagjalds skv. 3. gr.,
b. tryggja að hægt sé að greiða gjald skv. 3. gr. með rafrænum og aðgengilegum greiðsluleiðum,
c. halda skrá yfir þá sem hafa gilt aðgangsskírteini skv. 2. gr.,
d. hafa umsjón með þróun stafrænnar lausnar, eftir atvikum í samstarfi við aðrar stofnanir eða einkaaðila og m.a. með tilliti til möguleika ferðaþjónustufyrirtækja til þess að hafa milligöngu um greiðslu náttúru- og innviðagjalds fyrir viðskiptavini sína,
e. annast útgáfu aðgangsskírteina skv. 2. gr.,
f. hafa eftirlit með því að farið sé að ákvæðum laga þessara, sbr. 8. og 9. gr.,
g. annast álagningu sekta og innheimtu á vettvangi, sbr. 9. gr.
Þrátt fyrir f- og g-lið 1. mgr. getur ráðherra ákveðið að Ferðamálastofa skuli með samningi fela öðrum aðilum að annast framkvæmd skv. 8. og 9. gr. Um samninginn fer eftir 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Að því marki sem við á gilda ákvæði stjórnsýslulaga um eftirlit aðila samkvæmt þessari málsgrein.
7. gr.
Greiðsla fyrir hönd gjaldskyldra einstaklinga og virðisaukaskattur.
Náttúru- og innviðagjald samkvæmt lögum þessum telst ekki til skattverðs samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Hið sama gildir um þann hluta endurgjalds fyrir vöru eða þjónustu sem svarar til náttúru- og innviðagjalds sem seljandi greiðir eða innheimtir til greiðslu fyrir hönd gjaldskylds einstaklings, beint eða fyrir milligöngu annars aðila.
Skilyrði þess að náttúru- og innviðagjald teljist ekki til skattverðs skv. 2. mgr. er að fjárhæð gjaldsins sé sérstaklega tilgreind á sölureikningi og samsvari nákvæmlega því gjaldi sem viðkomandi einstaklingi ber að greiða samkvæmt lögum þessum. Seljandi skal varðveita gögn sem gera kleift að rekja fjárhæðina til greiðslu gjaldsins og útgáfu aðgangsskírteinis fyrir viðkomandi einstakling. Komi fleiri en einn seljandi að viðskiptum skulu skilyrði þessarar málsgreinar vera uppfyllt á hverju stigi viðskipta.
Hafi seljandi tekið við fjárhæð frá viðskiptavini til greiðslu náttúru- og innviðagjalds en greiðsla gjaldsins fyrir hönd viðkomandi einstaklings fer ekki fram gildir ákvæði 2. mgr. ekki um þá fjárhæð. Um meðferð hennar við ákvörðun skattverðs fer þá samkvæmt almennum reglum laga um virðisaukaskatt nema fjárhæðin hafi verið endurgreidd viðskiptavininum.
Ákvæði 2. mgr. tekur ekki til þóknunar, álags eða annars endurgjalds fyrir milligöngu eða aðra þjónustu seljanda. Um virðisaukaskatt af slíku endurgjaldi fer eftir lögum um virðisaukaskatt.
8. gr.
Eftirlitsheimildir.
Ef einstaklingur getur af afsakanlegum ástæðum ekki framvísað gildu aðgangsskírteini á vettvangi er Ferðamálastofu heimilt að fletta upp í skrá yfir gild aðgangsskírteini til að staðreyna hvort skírteini hafi verið gefið út á nafn hans.
9. gr.
Viðurlög.
Ákvörðun um sekt skv. 1. mgr. skal afhent aðila á vettvangi eða send honum með sannanlegum hætti. Í ákvörðun skulu koma fram upplýsingar um ástæðu og lagagrundvöll sektar, fjárhæð hennar og, ef við á, greiðslufrest og dráttarvexti. Jafnframt skal veita leiðbeiningar um rétt viðkomandi til þess að óska eftir endurupptöku máls eða bera ákvörðun undir ráðherra og viðeigandi fresti í því sambandi. Ákvæði stjórnsýslulaga um andmælarétt gilda ekki um ákvarðanir skv. 3. málsl. 1. mgr. á fyrsta stjórnsýslustigi.
Gjalddagi sektar skv. 2. málsl. 1. mgr. er 30 dögum eftir að ákvörðun er tekin. Hafi sekt ekki verið greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu. Sektirnar eru aðfararhæfar og renna í ríkissjóð. Innheimtumenn ríkissjóðs annast innheimtu þeirra í samræmi við lög um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Skal Ferðamálastofa láta þeim í té þær upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru til innheimtu.
Hafi ákvörðun um sekt skv. 1. mgr., hvort sem hún er tekin af Ferðamálastofu eða aðila sem fer með eftirlit fyrir hennar hönd skv. 2. mgr. 6. gr., byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, á aðili rétt á því að mál verði tekið til meðferðar á ný hjá Ferðamálastofu. Ferðamálastofa tekur afstöðu til beiðninnar og getur synjað um endurupptöku ef skilyrði hennar eru ekki uppfyllt. Synjun skal vera rökstudd og tilkynnt aðila skriflega. Verði mál tekið til meðferðar á ný er Ferðamálastofu skylt að fella niður sekt ef afsakanlegar ástæður búa að baki því að einstaklingur gat ekki innt af hendi greiðslu náttúru- og innviðagjalds eða framvísað aðgangsskírteini á vettvangi. Um meðferð mála samkvæmt þessari málsgrein fer að öðru leyti eftir 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Heimilt er að kæra ákvarðanir skv. 1. mgr. og synjun Ferðamálastofu um endurupptöku skv. 4. mgr. til ráðherra innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Málskot frestar aðför.
10. gr.
Persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga.
11. gr.
Tölulegar upplýsingar.
12. gr.
Afnám almennra aðgangsgjalda á gjaldskyldum landsvæðum.
13. gr.
Reglugerðarheimild.
a. Útgáfu, dreifingu og tæknilega útfærslu aðgangsskírteina fyrir náttúru- og innviðagjald skv. 2. gr.
b. Söfnun, samantekt og birtingu upplýsinga um heimsóknir á gjaldskyld landsvæði og álag á náttúru þeirra og innviði skv. 3. mgr. 3. gr.
c. Greiðslumáta, innheimtu og uppgjör náttúru- og innviðagjalds skv. 3. og 7. gr.
d. Undanþágu fylgdarmanna fatlaðra einstaklinga frá gjaldskyldu skv. 3. mgr. 4. gr.
e. Kröfur sem gerðar eru til aðila sem annast eftirlit, álagningu sekta og innheimtu á vettvangi fyrir hönd Ferðamálastofu skv. 2. mgr. 6. gr.
f. Framkvæmd eftirlits með greiðslu náttúru- og innviðagjalds, framvísun aðgangsskírteina skv. 8. gr., sem og framkvæmd viðurlaga skv. 9. gr.
g. Vinnslu persónuupplýsinga skv. 10. gr., þar á meðal um eðli og umfang vinnslunnar, tegundir persónuupplýsinga, öflun þeirra, aðgang að þeim og miðlun þeirra, varðveislutíma, eyðingu og öryggi upplýsinganna.
14. gr.
Gildistaka.
15. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
Fylgiskjal I.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal II.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal III.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.