Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 420  —  330. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (ýmsar breytingar).

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.



I. KAFLI
Breyting á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
1. gr.

    2. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Orðskýringar.

    Í lögum þessum hafa eftirfarandi hugtök svofellda merkingu:
     1.      Búseta: Íbúðarhúsnæði sem þjónustusvæði úthlutar á félagslegum forsendum, sem fatlað fólk hefur valið að sækja um og þar sem þjónusta samkvæmt lögum þessum er veitt.
     2.      Fatlað fólk: Fólk með langvarandi líkamlega, geðræna eða vitsmunalega skerðingu eða skerta skynjun sem verður fyrir ýmiss konar hindrunum sem geta komið í veg fyrir fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra ef aðstoðar nýtur ekki við.
     3.      Fötlun: Afleiðing skerðinga og hindrana af ýmsum toga sem verða til í samspili fólks með skerðingar og umhverfis og viðhorfa sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Skerðingar hlutaðeigandi einstaklings eru langvarandi og hindranirnar til þess fallnar að viðkomandi verði mismunað vegna líkamlegrar, geðrænnar eða vitsmunalegrar skerðingar eða skertrar skynjunar.
     4.      Notendasamningar: Samningur við þjónustusvæði sem felur í sér að notandi stjórnar þeirri aðstoð sem hann fær þannig að hann skipuleggur hana, ákveður hvenær og hvar hún er veitt og velur aðstoðarfólk. Notendasamningar geta verið í formi beingreiðslusamnings, þar sem notandi sér alfarið um starfsmannahald sjálfur, notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar eða þjónustufyrirkomulags þar sem notandi stýrir sjálfur þjónustu við sig þó að þeir sem aðstoði hann séu starfsmenn þjónustusvæðis.
     5.      Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA): Aðstoð sem stjórnað er af notanda þjónustunnar með þeim hætti að hann skipuleggur aðstoðina, ákveður hvenær og hvar hún er veitt, velur aðstoðarfólk og hver annast umsýslu á grundvelli rekstrarleyfis og ákvörðunar þjónustusvæðis þar að lútandi.
     6.      Rekstraraðili: Aðili sem ber ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á grundvelli rekstrarleyfis og samnings við þjónustusvæði.
     7.      Rekstrarleyfi: Leyfi til handa rekstraraðila sem hyggst veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum þessum. Þegar aðstoð er veitt á grundvelli samnings um notendastýrða persónulega aðstoð nefnist rekstrarleyfið leyfi til umsýslu og rekstraraðilinn umsýsluaðili.
     8.      Samræmt, staðlað mat á umfangi stuðningsþarfar: Samræmt og staðlað mat á umfangi stuðningsþarfar einstaklings sem unnið er af sérfræðingum þar til bærrar miðlægrar stofnunar sem samið hefur verið við. Niðurstöður matsins eru lagðar til grundvallar ákvarðanatöku samkvæmt lögum þessum og mynda, ásamt öðrum viðeigandi gögnum, ramma um heildstæða félagslega þjónustu við hlutaðeigandi einstakling.
     9.      Stoðþjónusta: Margháttuð aðstoð við athafnir daglegs lífs, veitt á grundvelli laga þessara, sem byggist m.a. á einstaklingsbundnum þörfum fólks með hliðsjón af óskum þess.
     10.      Stuðningsáætlun: Einstaklingsbundin áætlun um samþætta og heildstæða þjónustu við notanda.
     11.      Stuðningsþörf: Þörf einstaklings fyrir stuðning vegna fötlunar innan sem utan heimilis, svo sem við athafnir daglegs lífs, nám, atvinnu og þátttöku í félagslífi, sem stuðlar að sjálfstæðu lífi á eigin forsendum og fullri þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra. Umfang þjónustu og aðstoðar samkvæmt lögum þessum skal taka mið af metinni stuðningsþörf, að teknu tilliti til félagslegrar grunnþjónustu. Stuðningsþörf er ávallt einstaklingsbundin. Við mat á stuðningsþörf er stuðst við samræmt, staðlað mat á umfangi stuðningsþarfar.
     12.      Teymi fagfólks: Fagfólk sem hefur þekkingu á þörfum fatlaðs fólks og metur stuðnings- og þjónustuþörf þess heildstætt með gagnreyndum matsaðferðum.
     13.      Umsýslukerfi: Stafræn upplýsingatæknilausn sem vinnur úr þeim gögnum sem verða til þegar sótt er um þjónustu og þegar þjónusta er veitt.
     14.      Viðeigandi aðlögun: Nauðsynlegar og viðeigandi breytingar og lagfæringar, sem eru ekki umfram það sem eðlilegt má teljast eða of íþyngjandi, þar sem þeirra er þörf í sérstöku tilviki, til þess að tryggt sé að fatlað fólk fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, öll mannréttindi og mannfrelsi.
     15.      Þjónustuaðili: Samheiti yfir þá aðila sem veita fötluðu fólki þjónustu. Í skilningi laga þessara eru þjónustuaðilar annars vegar þjónustusvæði og hins vegar rekstraraðilar.
     16.      Þjónustusvæði: Grunneining í skipulagi þjónustu samkvæmt lögum þessum sem samanstendur af einu af eftirfarandi:
                  a.      sveitarfélagi sem ber eitt faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustu innan sinna marka án þess að vera í samvinnu við önnur sveitarfélög,
                  b.      tveimur eða fleiri sveitarfélögum sem eru í samvinnu þar sem eitt af sveitarfélögunum tekur að sér að bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustu innan marka sveitarfélaganna,
                  c.      tveimur eða fleiri sveitarfélögum sem standa saman að byggðasamlagi sem ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustu innan marka sveitarfélaganna.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      4. mgr. orðast svo:
                      Fatlaður einstaklingur á rétt á þjónustu á því þjónustusvæði þar sem hann kýs að búa og á lögheimili. Einstaklingur sem nýtur þjónustu samkvæmt lögum þessum og hyggst flytja milli þjónustusvæða getur sótt um þjónustu á því þjónustusvæði sem hann ætlar að flytja til þó að hann hafi eigi skráð þar lögheimili sitt. Skal hlutaðeigandi þjónustusvæði þá taka umsókn til meðferðar og tryggja, í samvinnu við umsækjanda og eftir atvikum það þjónustusvæði sem flutt er frá, samfellu í þjónustunni við flutningana.
     b.      5. mgr. orðast svo:
                      Ákvarðanir um þjónustu og aðstoð við fatlaðan einstakling eru teknar á vegum þess þjónustusvæðis þar sem hann á lögheimili í sveitarfélagi, nema annað sé tekið fram eða leiði af öðrum lögum.
     c.      6. mgr. orðast svo:
                      Ákvarðanir um þjónustu og aðstoð skulu byggjast á mati á umfangi stuðningsþarfar. Þjónustusvæði skal leita sjónarmiða hlutaðeigandi notanda um niðurstöðu samræmds, staðlaðs mats á umfangi stuðningsþarfar. Taka skal rökstudda afstöðu til slíkra sjónarmiða og gera grein fyrir henni í ákvörðun um þjónustu. Þeim sem annast ákvörðunartöku á vegum þjónustusvæðis er heimilt að afla gagna frá opinberum aðilum sem kunna að hafa þýðingu fyrir ákvörðun í málinu. Óski notandi eftir því að aflað verði gagna frá tilteknum opinberum aðilum skal verða við þeirri beiðni. Um endurskoðun á ákvörðun, þ.m.t. varðandi það hvort stuðningsþörf sé réttilega metin, fer skv. 34. og 35. gr. laga þessara.

3. gr.

    5. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Samvinna sveitarfélaga.

    Landinu skal skipt í þjónustusvæði sem bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á að veita þjónustu samkvæmt lögum þessum. Á hverju þjónustusvæði skulu að lágmarki 6.000 íbúar eiga lögheimili nema ráðherra veiti undanþágu frá þeim fjölda, sbr. 3. mgr.
    Fámennari sveitarfélög skulu eiga samvinnu við önnur sveitarfélög um skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk og taka ákvarðanir um myndun þjónustusvæða á grundvelli samkomulags í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Bera þau þá sameiginlega ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustunnar sem og kostnaði vegna hennar nema annað sé tekið fram eða leiði af öðrum lögum.
    Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá lágmarksíbúafjölda skv. 1. mgr. ef sýnt er fram á að vegalengdir, samgöngur eða landfræðilegar aðstæður hafi veruleg neikvæð áhrif á aðgengi að þjónustu innan stærra þjónustusvæðis. Það er ófrávíkjanlegt skilyrði undanþágu að sýnt sé fram á að faglegir og fjárhagslegir burðir séu til staðar til að tryggja að gæði og samfella þjónustunnar á smærra þjónustusvæði uppfylli viðmið varðandi mönnun skv. 1. mgr. 26. gr.
    Náist ekki samkomulag milli sveitarfélaga um myndun þjónustusvæða skv. 2. mgr., sé umsókn um undanþágu skv. 3. mgr. hafnað eða standi sveitarfélög ekki undir skyldum sínum samkvæmt lögum þessum skal ráðherra, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, mæla fyrir um samvinnu tiltekinna sveitarfélaga um þjónustuna og eru þær ákvarðanir bindandi fyrir hlutaðeigandi sveitarfélög. Fyrirmæli ráðherra skulu uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til samninga sveitarfélaga um samvinnu skv. 2. mgr.
    Ráðherra skal kveða nánar á um samvinnu sveitarfélaga í reglugerð, þar á meðal um fyrirkomulag áfrýjunar- eða málskotsnefnda innan þjónustusvæða.

4. gr.

    Á eftir 5. gr. laganna kemur ný grein, 5. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Ábyrgð þjónustusvæðis.

    Þjónustusvæði ber ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk og skipulagi hennar, þ.m.t. gæðum þjónustunnar, hvort sem hún er veitt af hálfu starfsmanna þess eða af einkaaðilum samkvæmt samningi þar um, sbr. 6. gr. Þá ber þjónustusvæði ábyrgð á kostnaði vegna þjónustu samkvæmt lögum þessum nema annað sé tekið fram eða leiði af öðrum lögum. Á þjónustusvæði skal vera innra eftirlit með þjónustunni, þar á meðal með framkvæmd samninga sem gerðir eru við rekstraraðila um þjónustuna, sbr. 6. gr.
    Þjónustusvæði ber ábyrgð á samskiptum við önnur opinber þjónustukerfi til að tryggja að fatlað fólk fái einstaklingsbundna, heildstæða þjónustu sem spannar m.a. félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, öldrunarþjónustu, vinnumarkaðsaðgerðir og menntun. Sé um umfangsmikla þjónustu að ræða sem snertir fleiri en eitt þjónustukerfi skal þjónustusvæði eiga frumkvæði að gerð samkomulags sem formfestir skyldur skv. 12. gr. Þjónustusvæði er ekki skylt að veita þjónustu samkvæmt lögum þessum á stofnunum, svo sem sjúkrahúsi og öldrunarstofnun, nema um það hafi verið samið eða kveðið á um annað í öðrum lögum.

5. gr.

    Í stað orðanna „sveitarfélagsins eða byggðasamlags“ í 3. málsl. 6. gr. laganna kemur: þjónustusvæðis.

6. gr.

    9. gr. laganna orðast svo:
    Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir, sem og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Fatlað fólk á rétt á því að velja sér hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra. Óheimilt er að skilyrða þjónustu við fatlað fólk við tiltekið búsetuform.
    Almenn ákvæði laga og reglugerða á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála gilda um það húsnæði sem fatlað fólk velur til búsetu og er heimili þess. Um úthlutun á félagslegu íbúðarhúsnæði á vegum sveitarfélaga fer samkvæmt reglum sem settar eru á grundvelli XII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Reglur hvers hlutaðeigandi sveitarfélags skulu tryggja réttindi fatlaðs fólks samkvæmt lögum þessum, samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og ákvæðum annarra mannréttindasamninga um friðhelgi einkalífs og heimilis. Reglurnar skulu tiltaka að viðbótarrými sem nauðsynlegt er vegna fötlunar sé á ábyrgð þjónustuaðila.
    Við úthlutun á félagslegu húsnæði skulu fatlaðir einstaklingar sem gert hefur verið að sæta öryggisráðstöfunum á grundvelli dómsúrlausnar njóta forgangs á biðlistum sveitarfélaga.
    Ráðherra kveður nánar á um búsetu samkvæmt ákvæði þessu í reglugerð að teknu tilliti til ákvæða um húsnæðismál í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í reglugerðinni skal m.a. kveðið á um mat á þörf fyrir húsnæði og tengda þjónustu og vægi sjónarmiða sem ráða forgangsröðun umsókna um félagslegt íbúðarhúsnæði. Þá skal í reglugerðinni kveða á um samráð og upplýsingaskyldu sveitarfélaga gagnvart fötluðum einstaklingum á biðlista eftir húsnæði.

7. gr.

    12. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Stuðningsáætlanir og þjónustuteymi.

    Fatlaður einstaklingur á rétt á að gerð sé stuðningsáætlun og ber hlutaðeigandi þjónustusvæði ábyrgð á að slík áætlun sé gerð og hún reglulega endurmetin og endurnýjuð eftir þörfum. Stuðningsáætlun skal unnin í nánu samráði við notanda, og eftir atvikum forsjáraðila hans, og taka mið af vilja hans, óskum, markmiðum, aðstæðum og umhverfi.
    Stuðningsáætlun skal m.a. byggjast á niðurstöðu samræmds, staðlaðs mats á umfangi stuðningsþarfar. Niðurstöður matsins skulu lagðar til grundvallar við gerð stuðningsáætlunar en auk þess skal taka mið af öðrum gögnum eftir því sem við á, sbr. 3. gr.
    Liggi niðurstaða samræmds og staðlaðs mats á umfangi stuðningsþarfar ekki fyrir við afgreiðslu máls ber þjónustusvæði engu að síður að gera stuðningsáætlun með fyrirvara til þess að tryggja að nauðsynleg þjónusta og aðstoð sé veitt á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
    Sérstaklega skal gætt að samfellu í þjónustu þegar barn nær 18 ára aldri, m.a. í því skyni að styðja sjálfstæða búsetu, nám, atvinnuþátttöku og samfélagsþátttöku, og skal endurskoðun og undirbúningur stuðningsáætlunar hefjast með góðum fyrirvara og eigi síðar en við 17 ára aldur.
    Stuðningsáætlun skal miða að því að sú þjónusta og aðstoð sem notandi fær sé samþætt, samfelld og í samræmi við opinber gæðaviðmið. Í stuðningsáætlun skal eftir atvikum geta um:
     1.      Niðurstöður mats sem fatlaður einstaklingur hefur undirgengist.
     2.      Markmið með þjónustu og samþættingu einstakra þátta hennar.
     3.      Hlutverk þeirra aðila sem veita notanda þjónustu.
     4.      Hvernig árangur verði metinn og fylgni við gæðaviðmið.
     5.      Tímabil áætlunar.
    Þjónustuteymi sem samanstendur af fulltrúum þeirra aðila sem veita fötluðum einstaklingi þjónustu skal eiga reglubundna samvinnu um framkvæmd stuðningsáætlunar á gildistíma hennar.
    Í þeim tilvikum þegar notandi þarf umfangsmikla og fjölþætta þjónustu frá mörgum aðilum skal auk stuðningsáætlunar gert samkomulag um verka- og ábyrgðarskiptingu á milli mismunandi þjónustukerfa. Um gerð samkomulags fer skv. 2. mgr. 5. gr. a.

8. gr.

    13. gr. laganna orðast svo:
    Fötluð börn eiga rétt á öllum þeim stuðningi sem kveðið er á um í ákvæðum laga þessara. Ákvæði þessa kafla eru viðbót við önnur réttindi sem lögin hafa að geyma og takmarka á engan hátt rétt barns til annarrar þjónustu eða aðstoðar lögum samkvæmt.
    Tryggja skal að fötluð börn fái nauðsynlega þjónustu svo að þau geti notið mannréttinda og mannhelgi til jafns við önnur börn og tekið þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Þá skulu fötluð börn hafa raunverulegan aðgang að og njóta menntunar, þjálfunar, starfsundirbúnings og tómstunda. Í öllum aðgerðum sem snerta fötluð börn skal fyrst og fremst hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu og stuðla að félagslegri aðlögun og þroska þess. Fötluð börn eiga rétt á að láta skoðanir sínar óhindrað í ljós með tilliti til aldurs þeirra og þroska, með viðeigandi aðlögun og stuðningi við tjáningu.
    Fötluð börn eiga rétt á því að alast upp hjá fjölskyldu sinni og njóta þjónustu og stuðnings í nærumhverfi sínu, þar á meðal á eigin heimili, í skóla og frístundastarfi. Fjölskyldur fatlaðra barna skulu fá heildstæða og nægilega þjónustu á heimilinu til þess að börnin geti notið réttinda sinna til fulls og jafns við aðra og til að koma í veg fyrir aðgreiningu eða félagslega einangrun.
    Þjónusta sem veitt er utan heimilis barns eða í sérhæfðri vistun eingöngu fyrir fötluð börn skal aldrei vera fyrsta boð þjónustuaðila. Slík þjónusta skal aðeins standa til boða ef fyrir liggja gögn og skriflegur rökstuðningur þjónustuaðila um að fullreynt hafi verið að veita fullnægjandi þjónustu og stuðning á heimili barnsins og í nærumhverfi þess, eða ef það þjónar ótvírætt hagsmunum barnsins.

9. gr.

    Í stað tilvísunarinnar „1. mgr. 5. gr.“ í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur: 1. mgr. 5. gr. a.

10. gr.

    Í stað 1. mgr. 16. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Þjónustusvæði skulu bjóða fötluðum börnum og ungmennum, óháð rekstrarformi þess skóla sem þau sækja, upp á frístundaþjónustu eftir að reglubundnum skóladegi þeirra lýkur, og eftir atvikum áður en dagleg kennsla hefst, svo og á þeim dögum, öðrum en lögbundnum frídögum, þegar skólar starfa ekki. Þessi þjónusta tekur við af almennri frístundaþjónustu við lok 4. bekkjar í grunnskóla og henni lýkur þegar viðkomandi lýkur framhaldsskóla. Þjónustan skal vera einstaklingsmiðuð og á því formi sem best hentar viðkomandi. Veita skal þjónustu vegna fötlunar samhliða almennum frístundatilboðum, eins og mögulegt er. Þessi þjónusta skal að jafnaði taka mið af metnum stuðningsþörfum og vera hluti af stuðningsáætlun viðkomandi barns eða ungmennis.
    Óheimilt er að innheimta þátttökugjald fyrir frístundaþjónustu samkvæmt þessari grein eða gjald vegna þjónustu og aðstoðar sem veitt er vegna fötlunar. Þjónustusvæði er þó heimilt að innheimta gjald fyrir fæði, sérstök námskeið, ferðir eða annan kostnað sem fellur til í tengslum við þjónustuna. Kveði reglur þjónustusvæðis á um gjaldtöku skv. 2. málsl. skal samhliða reglum setja gjaldskrá.
    Fötluðum börnum og ungmennum skal, eftir því sem við verður komið, tryggt val á milli þátttöku í almennu félagsstarfi sveitarfélaga með nauðsynlegum stuðningi og sértækrar frístundaþjónustu. Áhersla skal lögð á inngildingu og þátttöku í almennu starfi eftir því sem kostur er. Nauðsynlegur stuðningur skal fylgja barni eða ungmenni án endurgjalds.

11. gr.

    Í stað 29. gr. laganna kemur nýr kafli, VI. kafli A, Meðferð upplýsinga, með fjórum nýjum greinum, 29. gr., 29. gr. a – 29. gr. c, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (29. gr.)

Skylda til skráningar upplýsinga.

    Þjónustuaðila er skylt að skrá upplýsingar um þá þjónustu sem hann veitir notanda samkvæmt lögum þessum. Skyldan tekur til þjónustunnar í heild sem og einstakra þjónustuþátta samkvæmt nánari fyrirmælum ráðherra.
    Vinnsla skv. 1. mgr. nefnist samræmd grunnskráning félagsþjónustu og skal tilgangur hennar vera tvíþættur:
     a.      að tryggja að notendur félagsþjónustu geti virkjað rétt sinn til þjónustuþátta samkvæmt lögum þessum,
     b.      að tryggja að þjónusta samkvæmt lögum þessum sé samþætt annarri velferðarþjónustu í þágu einstaklings og að jafnræðis sé gætt við skipulag og framkvæmd.
    Þjónustuaðili ber ábyrgð á að tryggja að umsýslukerfi sem hann nýtir til skráningar í framangreindum tilgangi geti miðlað skráðum upplýsingum á samhæfðan hátt í gegnum þjónustugátt til annarra opinberra aðila sem þurfa aðgang að slíkum upplýsingum til þess að sinna lögbundnum verkefnum sínum og í gagnagrunn skv. 29. gr. b. Þjónustuaðila er skylt að gera mat á áhrifum á persónuvernd vegna umsýslukerfa sem hann nýtir og framfylgja að öðru leyti ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og fyrirmælum sem gefin eru á grundvelli þeirra.

    b. (29. gr. a.)

Þjónustugátt.

    Starfrækja skal þjónustugátt til þess að miðla upplýsingum um veitta þjónustu samkvæmt lögum þessum í miðlæga skrá skv. 29. gr. b svo að þær séu aðgengilegar öðrum opinberum aðilum sem þurfa aðgang að þeim til að sinna lögbundnum verkefnum sínum.
    Ráðherra er heimilt að semja við þar til bæran aðila um að starfrækja gáttina og tengdar stafrænar lausnir.

    c. (29. gr. b.)

Miðlægur gagnagrunnur.

    Halda skal miðlæga skrá fyrir þjónustugáttina með upplýsingum frá þjónustuaðilum um veitta þjónustu samkvæmt lögum þessum. Ráðherra ber ábyrgð á gagnagrunninum og er heimilt að semja við þar til bæran aðila um að starfrækja hann og tengdar stafrænar lausnir og sjá um vinnslu upplýsinga.
    Ráðherra og þar til bærum aðila í umboði hans er heimilt að vinna í gagnagrunninum með persónugreinanleg gögn um einstaklingsbundna framkvæmd laga þessara, þ.m.t. stuðningsáætlanir skv. 12. gr., niðurstöður úr mati skv. 6. mgr. 3. gr. og skráðar upplýsingar skv. 29. gr. um þá þjónustu sem veitt er einstökum notendum. Persónuauðkenni í gagnagrunninum skulu dulkóðuð. Þá skal eftir því sem við á gera útdrætti úr skráðum upplýsingum um þjónustu þannig að umfang varanlegrar skráningar á grundvelli dulkóðunar sé sem minnst. Upplýsingar úr gagnagrunninum skal nota við áætlanagerð, stefnumótun, hagskýrslugerð og önnur lögbundin verkefni stjórnvalda, þar á meðal ráðuneyta, sveitarfélaga/þjónustusvæða, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, Hagstofu Íslands og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Heimilt er að tengja Samband íslenskra sveitarfélaga við grunninn til þess að miðla gögnum um ákjósanlega framkvæmd laga þessara í þágu notenda og til þess að stuðla að jafnræði á milli þjónustusvæða.
    Öll söfnun, miðlun og úrvinnsla upplýsinga í gagnagrunninum skal vera í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Skal ráðherra tryggja að fyllsta öryggis sé gætt við meðferð gagna. Setja skal öryggisstefnu, gera áhættumat og aðrar öryggisráðstafanir til samræmis við persónuverndarlöggjöf og reglur sem settar hafa verið á grundvelli hennar.

    d. (29. gr. c.)

Setning reglugerðar og eftirlit.

    Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd þessa kafla, þar á meðal um þjónustugátt, hvaða upplýsingar skuli skráðar og um nánari tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer á grundvelli laga þessara.
    Þjónustusvæði sem ekki stendur undir ábyrgð sinni og vanrækir skyldur sínar samkvæmt þessum kafla, m.a. gagnvart rekstraraðilum, skal að undangenginni aðvörun tilkynnt til ráðuneytis sveitarstjórnarmála á grundvelli XI. kafla sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Í reglugerð skal kveðið á um aðvörun og framkvæmd tilkynningar með hliðsjón af 4. gr. laga þessara. Eftirlit skal miða að því að tryggja sambærilega þjónustu við fatlaða einstaklinga í ljósi ólíkra þarfa, sbr. 3. mgr. 4. gr.
    Eftirlit af hálfu ráðuneyta kemur hvorki í stað né leysir önnur stjórnvöld undan skyldum til eftirlits.

12. gr.

    3. mgr. 31. gr. laganna orðast svo:
    Á hverju þjónustusvæði skal starfa teymi fagfólks sem í sameiningu leggur heildstætt mat á þörf fatlaðs einstaklings fyrir þjónustu og hvernig veita megi þjónustu í samræmi við óskir hans. Teymið skal hafa samráð við einstaklinginn við þetta heildstæða mat og skal það m.a. byggjast á niðurstöðu sérfræðinga þar til bærrar miðlægrar stofnunar varðandi umfang metinnar stuðningsþarfar, sem og öðru viðeigandi mati og gögnum um stuðningsþörf einstaklingsins þegar við á. Þegar við á skal teymið einnig greina hvort fötlun sé til komin vegna aldurstengdra ástæðna, eftir atvikum í samvinnu við færni- og heilsumatsnefndir.

13. gr.

    36. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Notendaráð.

    Notendaráð fatlaðs fólks skulu starfa á vettvangi sveitarfélaga og vera vettvangur samráðs milli sveitarfélaga og notenda um þjónustu samkvæmt lögum þessum.
    Eitt notendaráð skal starfa á hverju þjónustusvæði. Samsetning notendaráðs skal endurspegla breidd í hópi notenda og tryggja aðkomu af hálfu kjörinna fulltrúa og stjórnenda sveitarfélaga. Standi fleiri en eitt sveitarfélag að baki þjónustusvæði skal hlutaðeigandi sveitarfélögum skylt að samhæfa fyrirmæli í samþykktum sínum til að tryggja samsetningu ráðsins.
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð sem kveður nánar á um skipan og starfsemi notendaráða, viðeigandi aðlögun og aðgengi að samráði og þau málefni sem koma til umfjöllunar á þeim vettvangi. Sérstaklega skal mælt fyrir um hvernig tryggja skal að veigamikil mál sem varða stefnumótun á þjónustusvæðinu séu tekin til umfjöllunar og hvernig leita skuli eftir afstöðu heildarsamtaka fatlaðs fólks og aðildarfélaga þeirra, sbr. 1. mgr. 4. gr.

14. gr.

    37. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks og skýrsla ráðherra.

    Ráðherra skal leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til fjögurra ára í senn. Skal tillagan lögð fram áður en gildistími fyrri áætlunar rennur út. Þingsályktunartillagan skal unnin í samvinnu við verkefnastjórn skv. 2. gr. a laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 80/2025, samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks skv. 4. gr. laga um réttindavernd fatlaðs fólks, nr. 77/2026, og í virku samráði við sveitarfélög, þjónustusvæði, fatlað fólk, heildarsamtök fatlaðs fólks og aðildarfélög þeirra og aðra hagsmunaaðila.
    Skýrsla ráðherra um stöðu og þróun í málefnum fatlaðs fólks skal fylgja tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun skv. 1. mgr. Í skýrslunni skal m.a. koma fram mat á stöðu og árangri verkefna í síðustu þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks á hverjum tíma, auk heildstæðrar umfjöllunar um stöðu og þróun í málefnum fatlaðs fólks á helstu sviðum samfélagsins í samræmi við markmið laga þessara og laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

15. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 40. gr. laganna:
     a.      1. tölul. 1. mgr. orðast svo: samvinnu sveitarfélaga, sbr. 5. gr.
     b.      3. tölul. 1. mgr. orðast svo: húsnæði á vegum sveitarfélaga, sbr. 9. gr.
     c.      Á eftir 6. tölul. 1. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: nánari framkvæmd VI. kafla A, sbr. 29. gr. c.
     d.      Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: notendaráð, sbr. 36. gr.

II. KAFLI
Breyting á lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 80/2025.
16. gr.

    Á eftir 2. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 2. gr. a og 2. gr. b, svohljóðandi:

    a. (2. gr. a.)
    Ráðherra skipar verkefnastjórn um framkvæmd samningsins til fjögurra ára í senn. Verkefnastjórnin er sú miðstöð innan stjórnsýslunnar sem kveðið er á um í 1. mgr. 33. gr. samningsins.
    Hlutverk verkefnastjórnarinnar er að:
     a.      samhæfa aðgerðir og stefnumótun ráðuneyta, ríkisstofnana og sveitarfélaga er varðar framkvæmd samningsins þvert á málaflokka og stjórnsýslustig,
     b.      hafa forystu um gerð tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks og fylgja henni eftir, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018,
     c.      vinna skýrslu ráðherra um stöðu og þróun í málefnum fatlaðs fólks sem fylgja skal tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018,
     d.      stuðla að fræðslu, vitundarvakningu og innleiðingu á ákvæðum samningsins innan allrar opinberrar stjórnsýslu.
    Í verkefnastjórninni skulu eiga sæti fulltrúar tilnefndir af ráðherrum félags- og húsnæðismála, heilbrigðismála, mennta- og barnamála, dómsmála, sveitarstjórnarmála og fjármála, einn fulltrúi tilnefndur af fræðasamfélaginu, tveir fulltrúar tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjórir fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Ráðherra skipar formann verkefnastjórnar án tilnefningar. Gæta skal þess að fatlað fólk eigi ríka og virka aðkomu að störfum verkefnastjórnarinnar og að því sé tryggð viðeigandi aðlögum og nauðsynlegur stuðningur til jafnrar þátttöku.
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari starfshætti og verkefni verkefnastjórnarinnar.

    b. (2. gr. b.)
    Mannréttindastofnun Íslands hefur eftirlit með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í samræmi við 2. mgr. 33. gr. samningsins.

17. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 2027.
    Þrátt fyrir 1. mgr. skal sveitarfélögum veittur frestur til 1. október 2027 til að aðlaga starfsemi sína að breyttum lögum og ljúka gerð samninga um samvinnu um þjónustusvæði í samræmi við ákvæði 3. gr.

18. gr.

    Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991: 2. mgr. 42. gr. laganna fellur brott.

Greinargerð.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.